Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 8
8 Fréttir Helgarblað 12.–15. september 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Fjölskylduveikindi
sögð ástæða hvarfsins
Sendiherra Íslands í Kína hefur ekki meiri upplýsingar um málið en utanríkisráðuneytið
V
ið hér í Peking höfum svo
sem ekki aðrar upplýs-
ingar en utanríkisráðu-
neytið sjálft í Reykjavík,“
segir Stefán Skjaldarson,
sendiherra Íslands í Kína, í skrif-
legu svari við fyrirspurn DV, að-
spurður hvað hafi orðið um Ma Jis-
heng, sendiherra Kína á Íslandi.
Kínverska utanríkisráðuneytið til-
kynnti því íslenska í maí að Ma
myndi ekki snúa aftur til starfa á
Íslandi en ástæður þess voru ekki
skýrðar frekar. Ma fór af landi brott
þann 23. janúar síðastliðinn en
hugðist snúa aftur í mars. Ekkert
varð af heimkomu og engin svör
fást frá kínverska sendiráðinu um
afdrif hans.
Fjölskylduveikindi eða spill-
ingarmál hafa verið nefnd til
sögunnar sem mögulegar ástæð-
ur en engar opinberar skýringar
hafa verið gefnar út vegna starfs-
loka sendiherrans. Viðmælendur
DV hafa lýst yfir furðu vegna máls-
ins. Sendiherra Íslands í Kína segir
hvarf sendiherrans úr embætti ekki
tengjast spillingarmálum, sam-
kvæmt bestu upplýsingum sendi-
ráðsins. „Fjarveran mun stafa af
fjölskylduástæðum eingöngu, erf-
iðs heilsufars aldraðra foreldra
sendiherrans og óskar hans um
leyfi frá störfum til að sinna þeim,“
segir enn fremur í svarinu.
Flókið ferli
Eins og kom fram hér að fram-
an segist sendiherrann ekki hafa
frekari upplýsingar um málið
en íslenska utanríkisráðuneytið.
Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
sagði í skriflegu svari við fyrirspurn
DV í síðustu viku, að ráðuneytið
byggi ekki yfir upplýsingum um
ástæður þess að Ma hefði ekki
snúið aftur til starfa: „Við búum
ekki yfir frekari upplýsingum, öðr-
um en þeim að staðgengill sendi-
herra sé Chen Laiping.“
Stefán segir algengt að kínversk-
ir embættismenn fái leyfi við slíkar
aðstæður og þá séu aðrir settir til að
gegna störfum í þeirra stað. „Þetta
verður snúnara þegar um sendi-
herra er að ræða vegna þess að
ferlið til að skipa nýjan er flókið og
tímafrekt og tekur að lágmarki hálft
ár og oftast eitthvað lengri tíma.
Þetta ferli er búið að vera í gangi í
nokkra mánuði og er von á beiðni
um samþykki fyrir nýjan sendi-
herra innan tíðar, ef hún hefur ekki
þegar komið.“ Þá segir hann ljóst að
fjarvera sendiherrans hafi ekkert að
gera með samskipti Íslands og Kína
sem séu góð.
Engin opinber svör
DV hafði samband við kínverska
sendiráðið í síðustu viku og spurði
um afdrif sendiherrans. Ritari
sendiráðsins bað blaðamann um
að senda skriflega fyrirspurn. Sú
fyrirspurn hljóðar svo: „Ma Jisheng,
sendiherra Kína á Íslandi, fór frá Ís-
landi þann 23. janúar síðastliðinn.
Hann hugðist koma heim í mars en
gerði ekki, og það er engin leið að
ná í hann. Hvar er sendiherrann?“
Engin svör höfðu borist seinni
part fimmtudags þrátt fyrir að fyr-
irspurnin hefði verið ítrekuð marg-
sinnis í síma og í tölvupósti. Þegar
blaðamaður náði aftur sambandi
við ritara sendiráðsins fékkst eftir-
farandi svar: „Ég er búinn að tala
við fólkið sem stýrir svona löguðu
og svarið er að þessu verður ekki
svarað á þessum tímapunkti.“
Átti að fá heiðursnafnbót
DV greindi frá því á miðvikudaginn
að Kínversk-íslenska menningar-
félagið (KÍM) hefði undanfar-
ið haldið uppi fyrirspurnum um
kínverska sendiherrann. Arnþór
Helgason, formaður KÍM, ræddi
við Ma í síma þann 20. janúar eða
þremur dögum áður en hann fór
af landi brott. Þar var sendiherran-
um tilkynnt að félagið hygðist gera
hann að heiðursfélaga.
„Hann var mjög glaður og sagði
að þetta væri mjög gott fyrir feril-
skrána sína og að sér hefði aldrei
verið sýndur slíkur heiður,“ sagði
Arnþór sem hugðist funda með Ma
þegar hann kæmi aftur til landsins
í mars. Þá kom fram að hann hefði
engar spurnir haft af sendiherran-
um síðan þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Arnþór segist nú hafa fengið
upplýsingar um að alvarleg veik-
indi hafi komið upp í fjölskyldu
sendiherrans: „Sagt er að þetta hafi
ekkert að gera með störf hans hér á
landi eða annars staðar.“ n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
„Sagt er að þetta
hafi ekkert að gera
með störf hans hér á
landi eða annars staðar.
Engin svör Hjá kínverska sendiráðinu fást þær upplýsingar að spurningum vegna málsins
verði ekki svarað. Mynd Sigtryggur Ari
Fór í janúar Ma Jisheng
fór af landi brott í janúar og
hugðist koma aftur í mars.
Sendiherra Stefán Skjaldarson, sendi-
herra Íslands í Kína, segir sendiráðið hafa
fengið þær upplýsingar að Ma Jisheng hafi
fengið leyfi frá störfum vegna fjölskyldu-
veikinda.
Ölvaður og
dópaður
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði bifreið í Skipasundi í
Reykjavík rétt fyrir klukkan sjö að
kvöldi miðvikudags. Ökumaður-
inn var grunaður um akstur und-
ir áhrifum fíkniefna og var farþegi
í bifreiðinni grunaður um vörslu
fíkniefna. Þetta kemur fram í dag-
bók lögreglu.
Þá var tilkynnt um ölvaðan
ökumann í Öskjuhlíð aðfaranótt
fimmtudags. Bifreiðin var stöðv-
uð í Suðurhlíð og er ökumaður-
inn talinn hafa verið undir áhrif-
um áfengis og fíkniefna. Þá hefur
ökumaðurinn aldrei öðlast öku-
réttindi. Auk þess var farþegi í
bifreiðinni grunaður um vörslur
fíkniefna.
Vilja sam-
þykkisskrá
Þingflokkur Pírata hefur lagt
fram tillögu á Alþingi um stofn-
un sérstakrar samþykkisskrár.
Með henni væri innanríkisráð-
herra falið að láta hefja skráningu
á óskum einstaklinga varðandi
brottnám líffæra og nýtingu skýrt
afmarkaðra persónugagna til vís-
inda og fræðirannsókna. Einnig
væri hægt að setja þar fram aðr-
ar óskir sem snúa að persónu-
réttindum. Óska þingmennirn-
ir eftir því að innanríkisráðherra
standi að ítarlegri kynningu á
slíkri skrá og þeim tilgangi sem
hún myndi þjóna og að frumvarp
til laga um hana liggi fyrir haustið
2015. Þannig geti skráning hafist í
janúar 2016.