Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 12
Helgarblað 12.–15. september 201412 Fréttir
Leynd hvílir yfir
laugardagsfundi
n Lítið um svör í bréfi Hönnu n Neitar að upplýsa um fundinn sem hún boðaði Stefán á
H
anna Birna Kristjánsdótt-
ir innanríkisráðherra kem-
ur sér hjá því að svara
ýmsum spurningum um-
boðsmanns í þriðja svar-
bréfi sínu, sem birtist á þriðju-
daginn. Þannig svarar hún því til að
mynda ekki hvort Stefán Eiríksson,
fyrrverandi lögreglustjóri á höfuð-
borgarsvæðinu, hafi greint rétt frá
samskiptum þeirra í símtölum og á
fundum. Þess í stað sakar hún um-
boðsmann um að „draga upp“ mynd
af samskiptum sínum við Stefán sem
ekki samræmist hennar eigin upp-
lifun og rekur í löngu máli það sem
hún telur vera meginatriði málsins.
Ráðherra neitar að upplýsa um-
boðsmann Alþingis nánar um til-
efni og boðun laugardagsfundarins
sem hann átti með Stefáni daginn
eftir að dómsúrskurðir héraðsdóms
og Hæstaréttar voru birtir. Fundur-
inn fór fram í húsakynnum innan-
ríkisráðuneytisins hinn 3. maí og
engin fundargerð rituð. Í samtali við
umboðsmann Alþingis sagði Stefán
að Hanna Birna hefði hringt í hann
þennan laugardag og boðað hann
á sinn fund. Þetta hafi gerst í kjölfar
annars símtals þar sem hún hefði
talið sig hafa farið yfir strikið í gagn-
rýni sinni á framgöngu lögreglunnar.
DV greindi meðal annars frá því
í forsíðufrétt hinn 29. júlí að Hanna
Birna hefði hringt í Stefán, reiðst
honum og boðað hann á fund sinn
vegna rannsóknarinnar. Hanna
Birna hefur ítrekað haldið því fram
í viðtölum og í svörum til umboðs-
manns að hún og Stefán hafi ákveðið
samskiptin „í sameiningu“. Stef-
án hefur hins vegar lýst því hvern-
ig hann forðaðist samskipti við ráð-
herrann meðan á rannsókninni stóð.
Að frumkvæði ráðherra
Í þriðja bréfi umboðsmanns til
Hönnu Birnu biður hann ráðherr-
ann sérstaklega um að gera nánar
grein fyrir tilefni og boðun laugar-
dagsfundarins. Í svari sínu segist
Hanna Birna þegar hafa veitt um-
boðsmanni upplýsingar um þetta og
vísar til fyrra svars þar sem fram kom
að fundurinn hefði verið ákveðinn „í
sameiningu“ af þeim Stefáni í þeim
tilgangi að upplýsa hana „almennt
um löggæslu- og öryggismál og
stöðu ýmissa verkefna á því sviði“. Af
lýsingu Stefáns að dæma var fund-
urinn hins vegar að frumkvæði ráð-
herra og efni hans rannsókn lög-
reglunnar á lekamálinu:
„Í einu af þeim samtölum þá er
hún mjög ósátt við framgöngu lög-
reglu og rannsóknir og annað í þeim
dúr, og ég tek bara við því, en hr-
ingir svo í mig aftur og óskar eftir að
fá að hitta mig bara svona í þeim til-
gangi – það var þá á laugardegi sem
hún bað mig um að koma og hitta
sig … til þess að undirstrika það að
hún sé ekki að reyna að hafa nein
áhrif á rannsókn málsins eða annað
heldur sé bara að leita eftir svörum
við spurningum. Og ég held að hún
hafi upplifað það þannig að hún hafi
farið yfir strikið, já. a.m.k. faglega og
líklega bara svona í persónulegum
samskipum, og viljað einhvern veg-
inn slétta það út. Við áttum þarna
örugglega klukkutímafund í ráðu-
neytinu þar sem ég var eiginlega að
svara sömu spurningum og áður í
tengslum við þetta.“
Ítrekar fyrra svar
Umboðsmaður spurði Hönnu Birnu
hvernig skýringar hennar um að til-
efni fundarins hafi verið að upplýsa
hana „almennt um löggæslu- og ör-
yggismál“ samrýmdist fyrrgreindri
lýsingu lögreglustjórans. Ráðherra
svarar því ekki að öðru leyti en því
að ítreka fyrra svar: „Í samtölum
mínum við L var rætt um löggæslu-
og öryggismál almennt.“ Sú leynd
sem hvílir yfir laugardagsfundin-
um er áhugaverð í ljósi þess að úr-
skurður Hæstaréttar sýndi hve alvar-
legum augum lögreglan leit málið.
Í málatilbúnaði saksóknara kom
meðal annars fram að það varðaði
almannahagsmuni að málið yrði
upplýst og að starfsmaður ráðuneyt-
isins væri með réttarstöðu grunaðs
manns. Nokkru síðar kom í ljós að
báðir aðstoðarmenn ráðherra voru
með réttarstöðu grunaðs.
Sú staðfasta afstaða Hönnu Birnu
að þau Stefán hafi ákveðið fundinn í
sameiningu er áhugaverð í ljósi þess
að Stefán upplýsti í samtali sínu við
umboðsmann að hann hefði forðast
að eiga samskipti við ráðherra að fyrra
bragði og leit svo á að hann gæti ekki
óskað eftir fundum með Hönnu Birnu
meðan á rannsókninni stóð. Í bréfi
umboðsmanns Alþingis segir meðal
annars: „Þannig að ég leit svo á að frá
upphafi og ég gerði ríkissaksóknara
grein fyrir því að ég þyrfti að halda
að mér höndum hvað þetta varðaði,
þessi samskipti við ráðuneytið, með-
an sú staða væri uppi að við værum að
rannsaka ráðherra og samstarfsmenn
hennar vegna gruns um brot á hegn-
ingarlögum.“ L segist hafa lýst því „…
margoft við ráðherrann að þessi staða
væri algjörlega ómöguleg“.
Ólík upplifun
Í samtali sínu við umboðsmann fyrr
í sumar sagði Stefán ráðherra meðal
annars hafa „ýtt á eftir“ lögreglunni,
sett á hana tímapressu, hellt yfir sig
„dágóðri gusu af gagnrýni“, kvartað
undan umfangi rannsóknarinnar,
deilt á einstakar rannsóknarathafn-
ir lögreglu, gagnrýnt lögregluna fyrir
að taka og rannsaka tölvu aðstoðar-
manns hennar, beðið um að flýta yf-
irheyrslum og lýst því yfir að rann-
saka þyrfti rannsókn lögreglu og
ríkissaksóknara.
Umboðsmaður óskaði sérstak-
lega eftir afstöðu Hönnu Birnu til
þess hvort þarna hefði verið rétt
greint frá því sem þeim fór á milli.
Hanna Birna svarar þessu ekki og vís-
ar til þess að hún geti ekki haft orðrétt
eftir samskipti hennar við embættis-
menn, „en ég get hins vegar fullyrt að
upplifun mín af þessum samtölum
var ekki í samræmi við þá mynd sem
þér dragið upp í bréfi yðar“.
„Sé ekki ástæðu til að nefna nöfn“
Hanna Birna neitar að afhenda um-
boðsmanni Alþingis upplýsingar
um lögfræðiráðgjöf sem hún hefur
margsinnis sagst hafa fengið inn-
an úr ráðuneytinu vegna samskipta
sinna við Stefán. DV hefur kallað ár-
angurslaust eftir sömu upplýsing-
um í allt sumar en engin svör fengið.
Þeir lögfræðingar ráðuneytisins
sem DV hefur rætt við kannast ekki
við umrædda ráðgjöf. Einn þeirra
segir það hafa komið mörgum í
ráðuneytinu, ekki síst lögfræðing-
um, á óvart þegar upplýst var um
ítrekuð samskipti Hönnu Birnu við
lögreglustjórann.
Í bréfi umboðsmanns er Hanna
Birna beðin um að upplýsa hvaða
lögfræðingar innanríkisráðuneytis-
ins hafi ráðlagt henni að ræða við
Stefán með þeim hætti sem hún
gerði. Hanna Birna sér ekki ástæðu
til að svara þessu: „Ég sé ekki
ástæðu til að nefna nöfn þeirra sér-
staklega enda er ábyrgðin mín sem
ráðherra.“
Grundvallarmisskilningur
Hanna Birna fullyrðir ítrekað í svar-
bréfi sínu að embætti lögreglustjór-
ans á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki
borið ábyrgð á rannsókninni né far-
ið með yfirstjórn hennar. „Sam-
kvæmt því geta ekki verið forsendur
til að fylgja athugun þessari frekar
eftir,“ fullyrðir ráðherra. Á vef rík-
issaksóknara segir orðrétt hinn
20. júní: „Lögreglustjórinn á höf-
uðborgarsvæðinu hefur farið með
rannsókn málsins samkvæmt fyr-
irmælum ríkissaksóknara.“ Stefán
Eiríksson var lögreglustjóri meðan
rannsóknin fór fram.
Fréttastofa Rúv fjallaði um þetta
atriði á miðvikudag en þar var haft
eftir ríkissaksóknara að lögreglu-
stjórinn á höfuðborgarsvæðinu
hefði farið með framkvæmd rann-
sóknarinnar á lekamálinu. Rík-
issaksóknari hafi gefið ákveðin
fyrirmæli. Þá var haft eftir lögspek-
ingum að afstaða innanríkisráð-
herra sem komið hefði fram í bréfi
hennar byggðist á grundvallarmis-
skilningi í sakamálarétti.
Þá kom fram í kvöldfréttum
Stöðvar 2 sama dag að þessi skoðun
ráðherrans gengi í berhögg við þau
ákvæði sem gilda um lögregluna í
lögreglulögum og starfsskyldur lög-
reglustjóra í sömu lögum. Þegar
fjölmiðlar kölluðu eftir viðbrögð-
um Stefáns við bréfi Hönnu Birnu á
þriðjudag vísaði hann í fyrri orð sín
en vildi ekki tjá sig frekar. n
„En ég get hins
vegar fullyrt að
upplifun mín af þessum
samtölum var ekki í sam-
ræmi við þá mynd sem
þér dragið upp í bréfi yðar.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Spyr um laugardagsfund Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, spyr
Hönnu Birnu meðal annars nánar út í laugar-
dagsfundinn en fær engin svör.
Í kjölfar reiðisímtals Stefán Eiríksson lýsir
því í samtali við umboðsmann Alþingis hvernig
Hanna Birna hringdi í hann daginn eftir að
dómsúrskurðir voru birtir og boðaði hann á fund.
Neitar
að svara
Hanna
Birna neitar
að svara
ýmsum
spurningum
umboðs-
manns
Alþingis.