Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Síða 14
Helgarblað 12.–15. september 201414 Fréttir
Embættið lík-
lega lagt niður
Gert er ráð fyrir því að rekstrar-
gjöld sérstaks saksóknara lækki
um 281,9 milljónir á komandi
ári. Í upphafi var ljóst að verkefni
embættisins yrðu tímabundin og
ráðherra hefur nú heimild til að
leggja embættið niður að undan-
gengnu frumvarpi þess eðlis. Ekki
liggur fyrir endanleg útfærsla
á framtíðarskipulagi efnahags-
brotarannsókna og munu endan-
legar fjárveitingar ekki vera fast-
ákveðnar fyrr en þær niðurstöður
liggja fyrir. Innanríkisráðuneytið
mun, samkvæmt frumvarpinu,
vinna náið með sérstökum sak-
sóknara að fjárhagslegu uppgjöri
embættisins með það að mark-
miði að vel takist að ljúka þeim
verkefnum og rannsóknum sem
liggja fyrir.
Lækka framlög
til að styrkja
Gangi tillögur í fjárlagafrum-
varpi eftir mun framlag til Lista-
háskóla Íslands lækka um 24,5
milljónir króna að frátöldum
launa- og verðlagshækkunum.
Í fyrsta lagi er lagt til að framlag
til skólans lækki vegna aðhalds-
markmiða um 15,5 milljónir. Í
öðru lagi er lagt til að 10 millj-
óna króna tímabundið húsnæð-
isframlag verði fellt niður, en í
fjárlögum 2012 var samþykkt
að framlengja það um þrjú ár. Í
þriðja lagi er lagt til að framlag til
skólans hækki um 1,5 milljón-
ir vegna breytinga reikniflokka í
reiknilíkani, en þær breytingar
eru sagðar hluti af áformum um
að styrkja rekstrargrundvöll skól-
ans í áföngum á næstu árum. Í
fjórða lagi er lagt til að framlag til
skólans lækki um 0,5 milljónir í
samræmi við fjölda ársnemenda
og brautskráninga.
Ekki gert
ráð fyrir
flutningum
Gert er ráð fyrir því að fjárframlög
til Fiskistofu lækki að raungildi
um 4,3 milljónir króna. Um er að
ræða 10 milljóna króna lækkun
vegna ráðstafana til að draga úr
ríkisútgjöldum en á móti kemur
5,7 milljóna króna hækkun í sam-
ræmi við endurskoðaða áætlun
um ríkistekjur stofnunarinnar. Í
heildina er að ræða um fjárfram-
lög upp á 861,2 milljónir króna.
Til stendur að flytja Fiskistofu
til Akureyrar og á flutningum
að vera lokið í lok næsta árs ef
allt gengur eftir. Ekki virðist vera
gert ráð fyrir auknu fjármagni til
stofnunarinnar vegna yfirvofandi
flutninga.
Vilja draga úr notkun
lífsnauðsynlegra lyfja
n Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í lyfjum eykst n Þurfa að greiða fyrir S-merkt lyf
V
erði fjárlagafrumvarp-
ið samþykkt í núverandi
mynd mun greiðsluþátt-
taka sjúklinga í lyfja-
kostnaði aukast til muna
og í fyrsta skipti munu sjúklingar
þurfa að bera hluta kostnaðar af
svokölluðum S-merktum og leyfis-
skyldum lyfjum. Um er að ræða
lyf sem gjarnan eru mjög dýr, allt
upp í að ársmeðferð kosti um 100
milljónir króna, en jafnframt lífs-
nauðsynleg. Sjúklingar munu þó
aðeins taka þátt í kostnaði vegna
S-lyfja sem ávísað er til notkunar
utan sjúkrahúsa og annarra heil-
brigðisstofnana, en ekki á meðan
sjúkrahúsdvöl stendur. Samkvæmt
upplýsingum frá Landspítalanum
er til dæmis um að ræða gigtarlyf
sem sjúklingar á dagdeildum geta
sjálfir tekið heima hjá sér. Munu
S-lyfin koma til með að falla undir
greiðsluþátttökukerfi almennra lyf-
ja en þak á viðmiðunarfjárhæðum
mun einnig hækka. Um er að ræða
305 milljóna króna lækkun á fjár-
heimild til Sjúkratrygginga Íslands
vegna aðhaldsaðgerða ríkisstjórn-
arinnar.
Auðveldar eftirlit
„Þessi tala er fundin niðri í ráðu-
neyti og væntanlega eru einhverjir
útreikningar af þeirra hálfu þarna
að baki sem við höfum ekki séð,“
segir Steingrímur Ari Arason, for-
stjóri Sjúkratrygginga Íslands, að-
spurður út í aukna þátttöku sjúk-
linga í lyfjakostnaði. Ljóst er að
hækkun á viðmiðunarfjárhæðum
og greiðsluþátttaka á S-merktum
lyfjum mun koma sér illa við marga
sem þurfa á lífsnauðsynlegum lyf-
jum að halda. Meðal þeirra raka
sem velferðarráðuneytið gefur upp
fyrir breytingunni eru þau að hún
muni auðvelda eftirlit með notk-
un og kostnaði lyfja. Þá er áætlað
að breytingin dragi úr notkun um-
ræddra lyfja, en það hafi sýnt sig að
séu lyf ókeypis sé þeim frekar ávís-
að í of miklum mæli og oft valin
frekar en ódýrari úrræði sem sjúk-
lingar greiða fyrir, segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu.
Kom á óvart
Steingrímur segir umrædda
breytingu hafa komið sér á óvart.
„Þetta gerði það reyndar. Við feng-
um ekki að vita af því að þetta stæði
til fyrr en rétt í aðdraganda fram-
lagningar frumvarpsins. Þetta er
alfarið ákvörðun ráðuneytisins og
ég veit ekki hvað útfærslan er kom-
in langt.“ Aðspurður hvort stofn-
unin hafi einhvern tíma fengið að
gefa sitt álit eða fengið upplýsingar
í aðdraganda breytinga á kostn-
aðarþátttöku sjúkratryggðra, segir
Steingrímur það misjafnt. „Margt
sem er gert á sér langan aðdraganda
og þar með eru menn búnir að fara
yfir hluti og útfæra þegar gert er
grein fyrir því, en í þessu tilfelli var
það ekki gert.“ Hann segir útfærsl-
una skipta miklu máli og að ráðu-
neytið verði að ganga frá því þannig
að fjárhagsmarkmið náist. „Það má
auðvitað gera með ýmsum hætti,
sérstaklega þegar hvoru tveggja er
undir. Þessi lyf sem á að færa yfir
og útfærsla á því hvernig þetta á að
ganga fyrir sig, hvenær og hvaða
lyf nákvæmlega. Síðan er þá undir
líka að endurskoða þessar þrepa-
fjárhæðir, hvað lyfjakostnaður get-
ur orðið mestur,“ segir Steingrímur.
Má ekki mismuna sjúklingum
Önnur rök fyrir breytingunni
eru þau að hún styðji upphaflegt
markmið greiðsluþátttökukerf-
isins um að mismuna ekki sjúk-
lingum í kostnaði eftir sjúkdóm-
um og tegundum lyfja. Áætlað er
að útgjöld ríkisins vegna þessarar
breytingar lækki kostnað ríkisins
um 145 milljónir króna en heildar-
kostnaður S-merktra og leyfis-
skyldra lyfja eru rúmir 6,4 milljarð-
ar á ári. Áfram verður hægt að sækja
um lyfjaskírteini fyrir sjúklinga
með alvarlegan geðrofssjúkdóm,
nýrnabilun á lokastigi og í meðferð
við lok lífs, sem veitir þeim tiltekin
lyf án greiðsluþátttöku. Samkvæmt
upplýsingum frá Landspítalanum
hefði í raun ekki verið hægt að út-
færa breytinguna þannig að hún
næði yfir S-merkt lyf sem gefin eru
inni á sjúkrahúsum og heilbrigð-
isstofnunum, nema með miklum
tilkostnaði. Enda hefði þá þurft
að innleiða nýtt kerfi til að halda
utan um slíkt inni á spítalanum.
En í frumvarpinu sjálfu er ekki tek-
ið fram að eingöngu sé átt við S-lyf
sem gefin eru utan sjúkrahúsa. Þær
upplýsingar komu frá ráðuneytinu
eftir að stjórnarandstaðan hafði
gagnrýnt breytinguna og fjölmiðlar
fjallað um hana. n
„Þessi tala er fundin
niðri í ráðuneyti og
væntanlega eru einhverjir
útreikningar af þeirra
hálfu þarna að baki sem
við höfum ekki séð.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Forstjóri Sjúkratrygginga Steingrímur Ari segir stofnunina stundum hafa komið að
breytingum á kostnaðarþátttöku sjúklinga.
Aukinn kostnaður Breytingin kom Stein-
grími Ara Arasyni, forstjóra Sjúkratrygginga
Íslands, á óvart. Mynd ÁSgeiR M einARSSon