Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 16
Helgarblað 12.–15. september 201416 Fréttir
„Við erum mörg hrædd“
n Koma sér fyrir í stigagangi á Vesturgötu og neyta fíkniefna n Íbúar óttaslegnir
Þ
etta er alveg hræðilegt. Við
erum mörg hrædd við þetta
vegna þess að maður veit
ekki í hvernig ástandi þau
eru,“ segir eldri borgari sem
býr í íbúðum á horni Vesturgötu og
Garðastrætis. Í húsnæðinu er rek-
in bæði heilsugæsla, félagsmiðstöð
fyrir eldri borgara auk þess að bíla-
stæðahús er aðliggjandi húsnæðinu.
Ungmenni sem neyta fíkniefna
hafast oft við í bílastæðahúsinu og
hafa hrellt íbúa þess. Oftast er um
yngra fólk að ræða, unglinga og
jafnvel börn þótt stundum séu þau
í fylgd með eldra fólki. „Það er ítrek-
að sem þau skemma og skilja eft-
ir sig eyðileggingu. Við höfum oft
þurft að kalla á lögregluna,“ seg-
ir Halldóra Guðmundsdóttir, verk-
efnastjóri hjá félagsstarfi við Vestur-
götu 7 í miðborg Reykjavíkur.
Hún er í miklum samskiptum
við íbúa í húsinu og segir þá oft
óttaslegna en einnig langþreytta á
ónæði og skemmdarverkum.
Megn lykt
Unglingarnir sitja í stigagangi bíla-
stæðahússins og neyta þar fíkni-
efna. Mikil og ítrekuð skemmdar-
verk hafa verið unnin á húsnæðinu
bæði í sjálfu bílastæðahúsinu og í
stigaganginum eins og sést á með-
fylgjandi myndum. Megna lykt af
fíkniefnum leggur yfir alla efri hæð
bílastæðahússins og oft út á götu.
Þá má einnig finna hluti sem eru
notaðir til fíkniefnaneyslu, afganga
af fíkniefnum og áfengi auk þess
sem ungmennin skilja eftir sig mik-
ið af drasli.
Harpa Rún Jóhannsdóttir, for-
stöðumaður félagsstarfsins á Vest-
urgötu, tekur í sama streng og Hall-
dóra. Hún bendir á að á Vestur götu
7 séu bæði heilsugæsla, íbúðir, fé-
lagsstarf og fyrirtæki. Þá sé bíla-
stæðahúsnæðið opið fyrir almenn-
ing og því sé eðli málsins samkvæmt
ekki hægt að loka því. Hins vegar sé
ljóst að það þurfi að grípa til að-
gerða og hafi þau kappkostað að
eitthvað yrði að gert.
„Íbúarnir eru hræddir,“ seg-
ir Halldóra. „Það hefur komið fyrir
að krakkarnir reyna að komast inn
til íbúanna. Það er ekki sjónvarps-
sími og stöku sinnum hefur það
gerst að þau opna fyrir krökkunum.
Þau þurfa að passa sig á því að opna
ekki fyrir hverjum sem er en þetta
er samt ekki góð staða. Sem betur
fer hefur ekkert alvarlegt gerst,“ seg-
ir hún. „Þetta eru þvílík skemmdar-
verk, eiginlega alveg ótrúleg. Svo er
reynt að laga þetta, en þetta fer allt
í sama farið stuttu seinna. Það þarf
að grípa til meiri aðgerða vegna
þessa,“ segir Halldóra sem er í mikl-
um samskiptum við bílastæðasjóð
vegna málsins. Hún segist skilja að
fólkið leiti í aðstöðu innanhúss, en
harmar að það komi svona fram.
Engar myndavélar
Blaðamaður ræddi við nokkur ung-
menni á dögunum sem urðu helst til
hvekkt þegar blaðamaður nálgaðist
þau. Spurð um hvað þau væru að gera
þarna sögðust þau ekki vera að gera
neitt sérstakt og földu fíkniefni sem
þau höfðu undir höndum. Blaða-
maður var vinsamlegast beðinn um
að hypja sig þegar hann hóf að spyrja
frekari spurninga. Þau bentu blaða-
manni á að engar myndavélar væru
í stigaganginum þó svo að þær væri
að finna í sjálfu bílastæðahúsinu.
Halldóra segist hafa bent á það sjálf,
en telur þó að ef til vill yrðu unnin
skemmdarverk á myndavélunum ef
þær yrðu settar upp.
Í einu tilfelli voru ungmenn-
in að leika sér með brunaslöngu
sem endaði með því að vatn barst
inn í lyftuhús og af hlutust nokkrar
skemmdir. Það atvik náðist á mynd-
band í öryggismyndavélum.
Ítrekaðar tilraunir til að ná tali
af þeim er hafa umsjón með bíla-
stæðahúsinu báru ekki árangur. DV
hefur þó upplýsingar um að svipuð
staða sé komin upp í öðrum bíla-
stæðahúsum borgarinnar. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Stigagangurinn Í þessum stigagangi hafast ungmennin við. Það er ekki sami hópurinn sem er á svæðinu alltaf, en svo virðist sem þetta
þyki góður staður til að vera á. Eins og sést hafa verið unnin mikil skemmdarverk á húsnæðinu og draslið er mikið. Efrihluti stigagangsins
minnir helst til á dópgreni. Myndir ÞorMar Vignir gunnarSSon
„Það er ítrekað
sem þau skemma
og skilja eftir sig eyðileggingu
Heimagerð Hér má sjá heimagerða pípu
sem fannst í stigaganginum fyrir skemmstu.
Bílastæðahúsið Hér sést stigagangurinn utanfrá. Dyrnar á honum eru ólæstar til miðnættis.
garður Þessi garður fylgir Vesturgötu 7.
Hann nýta íbúar götunnar, en stigagangur-
inn vísar að garðinum.
Skemmdarverk Mikið hefur verið krotað á veggina.
Komu sér makindalega fyrir Krotað hefur verið á veggina og hér má sjá stól sem
krakkarnir komu með sjálf.