Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 12.–15. september 201418 Fréttir
Einkabílaleiga
eins og völundarhús
Ó
löglegt er fyrir einstaklinga
að leigja einkabíla sína út til
fólks ef þeir hafa sjálfir ekki
bílaleiguleyfi og ef þriðji aðili
hagnast á leigunni. Þetta kem-
ur fram í svari Samgöngustofu við fyr-
irspurn blaðamanns, sem fór á stúf-
ana vegna allra þeirra nýju vefsvæða
sem bjóða fólki að auglýsa bílana sína
til leigu og taka gjald fyrir þjónustuna.
Í dag eru fjögur fyrirtæki sem bjóða
slíka þjónustu: Caritas, Viking Cars,
Rentit og Carrenters. Á öllum þessum
síðum er hægt að skrá bílana sína til
útleigu, en þó er munur á því hvernig
það er gert.
Nýtt frumvarp um bílaleigur verð-
ur lagt fram að nýju á haustþingi en
það náði ekki fram að ganga á síð-
asta þingi. Nokkur fyrirtækjanna vilja
stofna samtök til að berjast gegn því
að starfsemi þeirra verði gerð ólögleg,
líkt og segir í núverandi frumvarpi, og
eru hrædd um að afleiðingarnar verði
þær að leiga á einkabílum færist alfar-
ið á svartan markað.
Starfsemin ekki ólögleg
Í tilfellum Caritas og Rentit starfa fyr-
irtækin í raun sem hefðbundnar bíla-
leigur. Þau leigja bílana af einstak-
lingum og leigja þær síðan áfram til
einstaklinga sem finna bílana á vef-
svæðum þeirra. Löglegt er að leigja
bílinn sinn til bílaleiga og þekkt í
þessum geira. Eigandi bílsins ræð-
ur þó verðinu og hverjum hann vill
leigja, en sjálfur leigusamningurinn
er gerður annars vegar á milli eiganda
bílsins og fyrirtækisins og hins vegar
á milli fyrirtækisins og leigutakans. Í
tilfellum Viking Cars og Carrenters
horfir málið öðruvísi við, þar sem
sjálfur leigusamningurinn tengist
fyrirtækjunum ekki beint. Starfsemi
þeirra er ekki ólögleg, en hún ger-
ir það að verkum að leigusamningar
sem verða til í gegnum síður þeirra
eru ólöglegir, þar sem fyrirtækin fá
hlutfall af leigugjaldinu í þóknun. Það
er í það minnsta túlkun Samgöngu-
stofu á lögum um bílaleigur.
Leiga í eigin þágu
Leiga á bílum er jafnan nokkuð flók-
ið mál og í mörg horn þarf að líta, sér-
staklega ef tekið er tillit til trygginga
og laga. DV hefur áður fjallað um
bæði Viking Cars og Carrenters, en
forsvarsmenn fyrirtækjanna líta bæði
svo á að um leigu í eigin þágu sé að
ræða. Í lögum um bílaleigur segir að
þau nái ekki til leigu í eigin þágu eða
til tengdra aðila. Svo einfalt er málið
ekki, því samkvæmt upplýsingum frá
Samgöngustofu þurfa bílaleiguleyfi að
vera fyrir hendi ef þriðji aðili hagnast.
Um þetta var fjallað í grein DV í
júlí, þar sem sagt var frá því að þriðji
aðilinn þyrfti að hafa bílaleiguleyfi.
Það átti við hjá Viking Cars, sem
greinin fjallaði um. Samkvæmt nýju-
stu upplýsingum frá Samgöngustofu
er það þó ekki svo, því sá aðili sem
leigir út bílinn og skrifar undir leig-
usamninginn er sá sem þarf að hafa
leyfið. Í tilfelli Viking Cars er það því
sá sem auglýsir bílinn sinn hjá þeim
sem þarf að hafa leyfið. Hans skiln-
ingur, eftir að hafa rætt við Sam-
göngustofu í kjölfar umfjöllunar DV,
var sá að nóg væri að fyrirtækið hefði
bílaleiguleyfi.
Ekki samræmi í svörum
Samgöngustofu
„Þessi útfærsla er sú útfærsla sem
Samgöngustofa leggur til. Ég fór á
fund þar sem þetta var lagt til að fer-
illinn sé þannig að ef ég er með bíla-
leiguleyfi þá má einstaklingur leigja
út bílinn sinn í gegnum mig, þar sem
hann í raun nýtir mitt leyfi og ég sé
um tryggingamál,“ segir Sölvi Melax,
annar eigandi Viking Cars. Hann seg-
ist hafa farið á fundi með Samgöngu-
stofu og vinni samkvæmt því sem
honum hafi verið ráðlagt þar. Svör-
in sem blaðamaður hefur fengið frá
Samgöngustofu eru hins vegar ekki
þau sömu. Sölvi segir að aldrei hafi
verið samræmi í svörum frá Sam-
göngustofu. „Við stóðum í einhverj-
um ábyrgðarmálum í sumar og nú
erum við komnir á annað stað. Það er
heldur ekki samræmi í því, þeir vita
ekki hvernig þeir eiga að taka á þessu.
Þetta er allt í þróun,“ segir Sölvi.
Hann hafi ákveðið eftir fundi með
Samgöngustofu að fylgja frekar þeirra
leiðbeiningum en fara í eitthvert „lög-
fræðistríð“ eins og hann orðar það.
Túlkunin á lögunum er skýr af hálfu
Samgöngustofu en ekki taka all-
ir undir að þessi starfsemi falli undir
leigu í eigin þágu ef þriðji aðili hagn-
ast. Ljóst er hins vegar að þriðji að-
ili hagnast alltaf af slíkri leigu, þegar
bíllinn er leigður í gegnum miðlun á
borð við þær sem hér er fjallað um.
„Bara bókunarþjónusta“
Eigandi Carrenters er lögfræðingur-
inn Guðmar Valþór Kjartansson og
hann segist túlka lög um bílaleigur á
þann veg að leiga í gegnum heima-
síðu fyrirtækisins sé í eigin þágu.
„Það stendur bara í fyrstu greininni.
Við erum bara bókunarþjónusta,
eins og Airbnb er til dæmis. Þeir eru
ekki með hótelrekstrarleyfi, held-
ur eru bara bókunarþjónusta. Sjálf-
ir erum við ekki með bílaleiguleyfi,“
segir Guðmar. Hann segir það fara
eftir viðskiptavininum hvort að fyrir-
tækið ráðleggi viðkomandi að verða
sér úti um bílaleiguleyfi. „Við erum
með bílaleigur sem viðskiptavini sem
auðvitað hafa leyfi og svo eru einstak-
lingar sem hafa sótt um leyfi líka. Að
mínu mati kemur það skýrt fram í
fyrstu greininni að leiga í eigin þágu
er undanþegin,“ segir Guðmar.
Hann segir þó rétt að vissulega
megi líta svo á að leigan sé í atvinnu-
rekstri, þar sem þriðji aðilinn hagn-
ast á leigunni. Ekki hefur þó komið til
tals að breyta skilmálum á þann veg
að fyrirtæki starfi eins og hefðbund-
in bílaleiga. „Við erum í mjög lifandi
umhverfi og þetta er allt í skoðun. Í
nýja frumvarpinu eru alls kyns pæl-
ingar um að banna svona framleigu
og það er ekki einu sinni rökstuðning-
ur í greinargerðinni af hverju það á að
banna það. Ég veit ekki alveg á hvaða
vegferð frumvarpið var þegar það var
sett inn. Í starfshópnum sem vann
frumvarpið er framkvæmdastjóri
Hölds, sem er stærsta bílaleiga á Ís-
landi,“ segir Guðmar og ýjar þar að
því að einn tilgangur frumvarpsins sé
sá að gera út af við fyrirtækin sem hér
um ræðir.
Breyttu skilmálum
Hin tvö fyrirtækin sem vilja fara aðra
leið eru Caritas og Rentit. Í tilfelli Car-
itas var upphaflega farin sama leið
n Ný lög banna leigu á einkabílum n Löglegt samkvæmt núgildandi lögum n Telja stóru bílaleigurnar á móti einkabílaleigu
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Vilja stofna samtök Vignir, Janus og Þengill eru eigendur Caritas. Þeir hafa lagt á sig
talsverða vinnu til að eigendur einkabíla geti leigt sína bíla löglega og breyttu skilmálum
sínum nýverið. Fyrirtækið er í raun hefðbundin bílaleiga í dag.