Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Qupperneq 22
Helgarblað 12.–15. september 201422 Fréttir Erlent
L
ögreglumenn í borginni
Wagga Wagga í Ástralíu reyna
nú að átta sig á því hvers
vegna fjölskyldufaðir myrti
eiginkonu sína og börn. Hann
mun svo sjálfur hafa svipt sig lífi.
Geoff Hunt er grunaður um að
hafa myrt eiginkonu sína og þrjú
börn með skotvopni. Lögregla var
kölluð að heimilinu og fann alla fjöl-
skyldumeðlimi, nema Geoff sjálf-
an. Lögreglumenn fundu þá einnig
bréf sem Geoff Hunt lét eftir sig. Lög-
regla hefur túlkað bréfið sem sjálfs-
vígsbréf. Í kjölfarið hófst leit að hon-
um. Talið er að lík hans hafi fundist á
landareign fjölskyldunnar.
Skelfileg aðkoma
Börnin hans, Fletcher sem var tíu ára
gamall, Mia, sem var átta ára og Pheo-
be, sem var sex ára og eiginkona hans,
Kim Hunt, 41 árs, voru öll úrskurðuð
látin þegar lögreglu bar að garði. Lík
Kim fannst á göngustíg sem liggur
að heimili þeirra, en börnin inni á
sjálfu heimilinu. Lögreglumenn hafa
sagt aðkomuna að heimili Hunt-fjöl-
skyldunar, hafa verið skelfilega og
fengu sumir þeirra áfallahjálp. Vett-
vangsrannsókn stóð enn yfir aðfara-
nótt fimmtudags. Líkur eru á því að
fólkið hafi látist snemma á mánudag
eða snemma á þriðjudag.
Var bóndi
Geoff var bóndi og bjó með fólkinu
sínu á landareign sem hafði verið í
fjölskyldunni í fjóra ættliði. Hann var
44 ára gamall. Eiginkona hans glímdi
við veikindi og erfiðleika eftir alvarlegt
bílslys árið 2012. Hún hafði þó unnið
ótrauð að því að ná bata, en hún háls-
brotnaði í slysinu og hlaut mikla höf-
uðáverka. Dóttir þeirra, Pheobe, var
í bílnum með móður sinni en slapp
án teljandi áverka. Kim átti erfitt með
gang og nærðist illa eftir slysið. Hún
starfaði sem hjúkrunarfræðingur, en
þurfti að láta af störfum vegna veik-
indanna. Hún hóf störf að nýju í vor.
Geoff sinnti henni, auk þess að sinna
störfum á bóndabænum. Fjölskyldan
hafði því glímt við erfiðleika, en stóðu
þétt saman að sögn vina og ættingja.
Mikið áfall
Vinir og fjölskylda Hunt segjast því
eiga erfitt með að skilja þennan
harmleik. Ekkert benti til þess að
Hunt ætti við erfiðleika að stríða,
hvað þá að hann þjáðist á þenn-
an hátt.
„Það var nákvæmlega ekki
neitt sem benti til þess að hon-
um liði illa eða eitthvað amaði að.
Hann virtist vera kátur og glaður
þegar ég hitti hann síðast. Hann
var yndislegur maður og virtist
vera bæði hamingjusamur og lifa
fremur venjulegu lífi,“ segir sam-
starfsmaður hans. Málið hefur
einnig tekið mikið á borgarbúa í
Wagga Wagga. Fjölskyldan öll er
sögð hafa verið glaðlynd og þægi-
leg í umgengni. Þau voru vel liðin í
samfélaginu og fráfall þeirra er því
mikið áfall. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Myrti fjöl-
skylduna
n Hunt myrti börnin sín þrjú og eiginkonu sína n Framdi svo sjálfsvíg
Fjölskyldufaðir Atvikið hefur reynt
mjög á vini og ættingja sem skilja ekki
hvernig slíkur harmleikur gat átt sér stað
án,að því er virðist nokkurs aðdraganda.
Hinn umdeildi borgarstjóri Toronto greindist með æxli í kviðarholi
H
ann fékk viðurnefnið „krakk-
borgarstjórinn“ í fyrra en Rob
Ford er nú kominn í fréttirnar
vestanhafs fyrir aðrar sakir en
ítrekuð hneykslismál. Fréttirnar eru
þó ekki góðar. Borgarstjóri Toronto í
Kanada hefur nefnilega verið lagður
inn á spítala vegna æxlis í maga. Frek-
ari rannsóknir eiga eftir að fara fram
og eins og stendur er ekki vitað hvort
æxlið sé illkynja eður ei. Talsmaður
sjúkrahússins lætur þó hafa eftir sér
í kanadískum fjölmiðlum að æxlið
sé „ekki lítið“. Ford hefur fundið fyrir
verkjum í kviðarholi í að minnsta kosti
þrjá mánuði en leitaði á bráðamót-
töku á miðvikudagsmorgun þar sem
hann var afar þjáður.
Ford, sem sækist eftir endurkjöri
sem borgarstjóri Toronto þrátt fyr-
ir allt sem á undan er gengið, er hins
vegar jákvæður og hress eftir atvikum
að því er Doug Ford, bróðir hans og
kosningastjóri, segir. Doug er einnig
borgarfulltrúi og hefur orðrómur
þegar farið af stað þess efnis að hann
muni hugsanlega hlaupa í skarðið fyr-
ir bróður sinn. Gengið verður til kosn-
inga hinn 27. október og hefur Doug
frest þar til í dag, föstudagsmorgun, til
að bjóða sig fram.
Dagblaðið Toronto Sun greinir frá
því að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem
Rob Ford glímir við heilsufarsvanda-
mál. Árið 2009 var illkynja æxli fjar-
lægt úr botnlanga hans, hann fékk
nýrnasteina árið 2011 og þá var hann
lagður inn á sjúkrahús vegna háls-
og magavandkvæða árið 2012. Faðir
borgarstjórans lést árið 2006 eftir bar-
áttu við krabbamein í ristli. n
mikael@dv.is
Rob Ford lagður inn á sjúkrahús
Erfiðir tímar Kosningabaráttan um borgarstjórastólinn í Toronto stendur sem hæst og
koma veikindin því á versta tíma fyrir hinn 45 ára gamla Rob Ford. Mynd REutERS
Sýknaður
af morði
Dómari í máli hlauparans
Oscars Pistorius sýknaði hann
af því að hafa myrt kærustu sína,
Reevu Steenkamp, að yfirlögðu
ráði á fimmtudagsmorgun.
Mazipa dómari las upp dóm-
inn en hætti því skyndilega og
ákvað að fresta réttarhöldunum
til dagsins í dag, föstudag. Dóm-
arinn á því eftir að greina frá því
hvort hlauparinn verði dæmdur
fyrir manndráp.
Pistorius hefur alla tíð sagt
að honum hafi orðið á mistök,
hann hafi talið að innbrotsþjófur
væri á salerni íbúðarinnar, þegar
það var í raun kærastan. Dóm-
arinn sagði að Pistorius hefði
brugðist við af of miklum þunga
– hann hefði átt að hringja held-
ur á lögreglu. Fréttaskýrendur
eru á því að líklega verði Pistori-
us dæmdur fyrir manndráp.
„Einstaklega
góður maður“
Óþokkinn Jaws í kvikmyndun-
um um James Bond er látinn.
Richard Kiel var 74 ára þegar
hann lést en hann er þekktastur
fyrir hlutverk sitt sem Jaws auk
þess sem hann lék eftirminni-
legt hlutverk í Happy Gilmore.
Roger Moore, sem lék á móti Kiel
í Bond-myndunum The Spy Who
Loved Me og Moonraker sagð-
ist á Twitter vera í sjokki. „Ég er í
áfalli eftir að hafa heyrt að vinur
minn, Richard Kiel, er fallinn frá.
Við vorum saman í útvarpsþætti í
síðustu viku.“ Hann sagðist sjálf-
ur vera slæmur maður sem hefði
leikið góðmenni, þveröfugt við
Kiel sem hefði verið góður mað-
ur sem lék illmenni. „Hann var í
raun einstaklega góður maður.“
Bankinn
mun flytja
Royal Bank of Scotland mun
flytja höfuðstöðvar sínar til
London ef sjálfstæði Skotlands
verður samþykkt í kosningun-
um í næstu viku. Óvissa hefur
verið uppi um lagaleg atriði í
rekstri bankans ef Skotar lýsa yfir
sjálfstæði, eins og tvísýnt er um.
Bankinn segir að flutningurinn
muni ekki hafa áhrif á þjónustu
við skoska viðskiptavini. Hann
muni áfram sinna þeim.