Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 25
Umræða 25Helgarblað 12.–15. september 2014
Mest lesið
á DV.is
1 Réðst á öldung með heykvísl „Ég nötra allur og
skelf,“ sagði Hörður Sverrisson, 74 ára
Akureyringur, en Böðvar Birgisson réðst
á hann með heykvísl á heimili Harðar
síðastliðinn miðvikudag. Böðvar var í
viðtali við DV á dögunum þar sem hann
lýsti því hvernig það væri að búa í tjaldi.
Böðvar á að baki langa sögu fíkni-
efnaneyslu og geðveilu, að eigin sögn.
13.336 hafa lesið
2 Erpur svarar fyrir sig vegna Flensborgarmáls-
ins: „Meiri spurning um
tepruskap“ „Hvað Blazroca varðar
– þótt ég rífi alveg kjaft og noti klúr orð
þá hef ég samt verið yfirlýstur femínisti í
14 ár,“ segir Erpur Eyvindarson, sem er
þekktur undir nafninu Blazroca, í
samtali við Fréttablaðið á fimmtudag
vegna Flensborgarmálsins svokallaða.
DV.is greindi frá því á miðvikudag að
skólayfirvöld í Flensborgarskóla hefðu
lagst gegn því að Dj Muscleboy og Dj Óli
Geir spiluðu á nýnemaballi Flensborgar
og voru þeir Erpur og Friðrik Dór Jónsson
fengnir í staðinn.
11.025 hafa lesið
3 „Veit hvernig ég mun borga leiguna í næsta
mánuði“ Margrét Erla Maack er
komin með dagvinnu, eins og hún orðar
það sjálf, en hún hóf nýlega störf sem
afgreiðsludama í Herrafataverzlun
Kormáks og Skjaldar. „Mér fannst
eitthvað svo fullorðins að fara í
dagvinnu,“ sagði hún kímin í samtali við
DV. „Þetta er ákveðið akkeri. Ég veit
hvernig ég mun borga leiguna í næsta
mánuði. Það er mikill lúxus.“
8.877 hafa lesið
4 Rory sleit sambandinu í gegnum síma Danska
tennisstjarnan Caroline Wozniacki segist
hafa verið brugðið þegar þáverandi
unnusti hennar, kylfingurinn Rory
McIlroy, sleit sambandi þeirra í gegnum
síma. Hún horfir þó á björtu hliðarnar og
segist nú ætla að leita að manni sem er
hærri en hún svo hún geti verið í háum
hælum.
6.468 hafa lesið
5 Borðaðu fitu til að léttast Neytir þú eingöngu
fitulausrar fæðu en tekst samt ekki að
léttast? Það er vegna þess að unninn
matur, á borð við hvítt brauð, hvít
hrísgrjón og pasta, er vanalega
sykurríkur og hefur áhrif á efnaskiptin
svo það verður erfiðara að brenna
hitaeiningum.
5.288 hafa lesið
Þ
að er nokkuð til í því sem
bloggarinn Jón Daníels-
son bendir á varðandi VSK-
breytingarnar, þ.e. að það
verði aðalfjölmiðlamálið og
svo eftir mikið leikrit sem fjölmiðlar
spila ákaft með þá verði hin endan-
lega niðurstaða 11prósenta skattur á
mat, hita og rafmagn en 24,5 prósent
á Lexusa og Rolexa.
Og það verður látið sem að rík-
isstjórnin sé að gefa eftir af góð-
mennsku þegar í raun hún er að
hækka álögur á almenning en lækk-
ar veiðigjöld og afleggur auðlegðar-
skatt sem merkilega nokk skilar jafn
miklu í tekjur fyrir ríkissjóð og það
sem virðisaukaskattshækkuninni er
ætlað að skila.
Eftir þetta leikrit, sem allir munu
taka þátt í, svo sem verkalýðsfé-
lög, þingmenn og fleiri þá mun al-
menningur sitja eftir frekar ringlaður
með skrítna tilfinningu og ekki viss
um hvað gerðist eftir að ríkisstjórn-
in byrlaði honum rófí í hinu árvissa
leikriti sem gekk yfir.
Og verður búinn að gleyma ári
síðar þegar uppfærslan á Alþingi
hefst að nýju.
Þó er samt búið að bæta við smá
tilbreytingu á leikritinu í ár.
Karl Garðarsson og fleiri fram-
sóknarmenn hafa tilkynnt að þeir
séu á móti þessu og segja að það sé
alveg hryllilegt að stjórnvöld hafi
ákveðið að hækka matarskattinn.
Nokkuð sem Karl Garðarsson
orðar á þann hátt að þetta sé „done
deal“ sem hann sem stjórnvald,
það er þingmaður, getur engin áhrif
haft á.
Og kemur óvart með freudíska
játningu um að búið sé að ákveða
hlutina fyrirfram, ráðherraræðið sé
það sem gildir við færibandið sem
kallast Alþingi sem sé í raun þá óþörf
stofnun í stjórnkerfinu.
Væntanlega yrði hægt að spara
talsverða fjármuni ef það yrði ein-
faldlega lagt niður, svo gagnslítið og
tilgangslítið fyrirbæri er það orðið
undir núverandi ríkisstjórn, en nóg
um það því það er önnur flétta í
gangi.
Með andmælum Karls og Vigdís-
ar Hauks þá er einfaldlega verið að
leika eina fléttu í þessu leikriti sem
gengur út á það markmið að sýna að
Framsókn berjist fyrir hag almenn-
ings þegar í raun þetta er „done
deal“. Þau fá að þenja sig ásamt ein-
um eða tveimur framsóknarmönn-
um til viðbótar og þessu verður svo
slegið fram að samkomulag hafi
náðst meðal ríkisstjórnarflokkanna
vegna andstöðu Framsóknar, sem
mun samt samþykkja fjárlagafrum-
varpið, um að ganga ekki svona
langt í skattahækkunum á mat, hita
og rafmagn.
Tilgangurinn: auka fylgi Fram-
sóknar sem er búið að vera í frjálsu
falli og mun falla enn meira þegar
fólk fattar að matarskattshækkuninn
étur upp skuldaleiðréttinguna.
Semsagt, engin prinsipp, engar
hugsjónir, annars yrði sagt þvert
nei við að hækka neðra þrep virð-
isaukaskattsins og ekki sætt sig við
annað en að það verði óbreytt.
Og ef raunverulegur áhugi
væri hjá Framsókn að berjast fyr-
ir hag almennings þá yrði ekki tek-
ið í mál að láta sjúklinga borga lyfin
á sjúkrahúsunum heldur yrði ein-
blínt á að sækja peningana til hinna
raunverulegu og forríku hrægamma
í gegnum auðlegðarskatt, hækkun
veiðigjalds og því til viðbótar yrði
fjármagnstekjuskattur rukkaður inn
með sömu skattprósentu og tekju-
skatturinn. Svona verður leikritið og
leikfléttan í uppfærslu hins ógeðs-
lega samfélags Alþingis.
Vitið til, þessi spádómur minn
mun rætast og fólk jafnvel ganga
til liðs við Framsókn að nýju vegna
„hetjulegrar frammistöðu þeirra
í þágu almennings“ með því að
tryggja að skattur á hita, rafmagn og
mat mun „aðeins hækka um 4 pró-
sent en ekki 5 prósent“.
Það er eiginlega jafn fyrirsjáan-
legt og að Björt framtíð verður með
eina af bestu ræðunum í framhaldi af
stefnuræðu forsætisráðherra.
Og jafn fyrirsjáanlegt að svo mun
sama og ekkert heyrast og sjást til
Bjartrar framtíðar fyrr en það kemur
að næstu Morfís-keppni Alþingis er
Eldhúsdagsumræður kallast. n
Fjárlagaleikrit ríkisstjórnarflokkanna
Mynd dV Sigtryggur Ari
Agnar Kristján
Þorsteinsson
Af blogginu
„Maður er
farinn að
þekkja þetta
Myndin Skólaverkefni Verlsunarskólanemendur vinna að skólaverkefni í Grasagarðinum í Reykjavík Mynd ÞorMAr Vignir gunnArSSon
Ekki til að skamm-
ast sín fyrir
thelma Einarsdóttir hefur glímt við fæðingarþunglyndi. – DV
Umræðuhefð sem sífellt beinir
spjótum sínum að hinu neikvæða
Sigmundur davíð gunnlaugsson forsætis- og dómsmálaráðherra er ekki ánægður með umræðuhefðina í landinu. – Alþingi
Þegar fólk dansar þá
sleppir það sér og slappar af
Sigvaldi Þorgilsson 81 árs danskennari hefur kennt eldri borgurum dans í mörg ár. – DV