Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 29
Helgarblað 12.–15. september 2014 Fólk Viðtal 29
– sem er að hluta til innblásin af því
umhverfi sem Jonni ólst upp við. „Ég
kem upp úr þannig æsku að mér þótti
eðlilegt að drekka og láta eins og fífl.
Ég hef lært ýmislegt í lífinu á því að
hafa svona neikvæðan byr í baki mér
en á tímabili drakk ég sjálfur mjög illa.
Í mörg ár hélt ég að ég væri þunglynd
ur. Ég stóð í þeirri trú að lífið væri bara
fyrir suma, en sumir gætu bara átt sig,“
segir Jonni og tekur fram að hann hafi
talið sig vera í seinni hópnum. Hann
lifði því svo til á brúninni og óttaðist
ekkert. Þegar hann var síðan að taka
upp þriðju kvikmyndina sína, Óska
börn þjóðarinnar, varð hann fyrir
reynslu sem kollvarpaði sýn hans á
lífið.
Sjálfur besti læknirinn
Þessi vitrun átti sér stað við tökur á
lokaatriði myndarinnar, með Pálínu
Jónsdóttur og Óttari Proppé. „Við
vorum að skjóta fyrir utan McDon
ald’s, sem þá var þar sem Hressó er í
dag. Það var rosalegur vindur þenn
an dag og við vorum í krana sem fór
allt upp í 210 metra hæð. Við þurftum
að fara fimm sinnum í kranann áður
en skotið tókst. Plássið sem við höfð
um í körfunni var ekki meira en tve
ir fermetrar. Á leiðinni upp sveiflaðist
armurinn á körfunni til í rokinu og
þegar ég leit niður sá ég bara pínulítið
fólk langt fyrir neðan mig. Ég áttaði
mig ekki strax á tilfinningunni
sem kom yfir mig.“ Jonni segist
hafa hugsað um þessa skrítnu
tilfinningu á hverjum einasta
degi í marga mánuði þegar
hann áttaði sig á því að þetta
var hræðsla við að detta nið
ur og deyja. „Þá áttaði ég mig
á því að ég gat ekki verið þung
lyndur,“ bætir hann við.
„Núna lifi ég eftir þeirri
speki að vakna á hverjum ein
asta morgni og vera forvitinn
um daginn. Hvernig dagurinn
muni verða, hvað hann muni
gefa af sér og hverja ég eigi eft
ir að hitta. Ég held að þetta sé
ágæt lífsspeki fyrir þunglyndis
sjúklinga. Hins vegar er erfitt
að segja þunglyndissjúkling
um hvernig þeir eigi að hegða
sér því þeir eru yfirleitt mjög áhuga
lausir um allt. En ef þú reynir sjálf
ur að sporna við sjúkdómnum þá
kemstu að því að þú ert sjálfur lang
besti læknirinn. Enginn annar get
ur komið þér upp úr þunglyndi. Það
er enginn staður sem þú getur flutt
á til þess að losna. Þú verður bara að
höndla aðstæður þínar.“
Þrisvar lært að ganga
Eins og fyrr segir hefur Jonni þrisvar
lært að ganga um ævina. Fyrsta
skiptið var líkt og hjá okkur flest
um í kringum fyrsta afmælisdaginn.
Annað skiptið var eftir heilahimnu
bólguna. Þriðja skiptið var fyrir fimm
árum.
Á þriðjudagskvöldi í byrjun mars
mánaðar lenti Jonni í fólskulegri
og tilefnislausri líkamsárás. „Ég var
að hjóla yfir götuna á gatnamótum
Laugavegs og Snorrabrautar þegar
allt í einu kemur bíll sem fer yfir á
rauðu ljósi og beygir í átt að mér. Bíl
stjórinn þeytir flautuna stanslaust.
Ég stoppaði hjólið því mér fannst
eins og eitthvað væri að hjólinu. Þá
steig þessi rumur út úr bílnum og
öskraði: „Drullaðu þér frá!“ Síðan
hljóp hann að mér og kastaði mér af
hjólinu með þeim afleiðingum að ég
lenti á steypusúlu þarna á Laugaveg
inum,“ rifjar Jonni upp. Hann hlaut
töluverðan skaða við árásina. Hann
mjaðmagrindarbrotnaði og urðu
læknar að setja í hann stálplötu, þrjár
festingar við fótinn og aðra í bakið.
Alls voru saumuð 27 spor í mjöðm
ina á Jonna og var hann rúmfastur
um langa hríð. Hann gat ekki geng
ið og varð því að styðjast við hjóla
stól til þess að komast leiðar sinnar.
„Ég hugsaði með mér að ég hefði ver
ið lamaður hálfa ævina og það kæmi
ekki til greina að ég yrði í hjólastól
hinn helminginn.“
Á morfíni í fjórtán mánuði
„Það fylgdi þessu mjög mikill sársauki
en þetta gerðist náttúrlega á spastísku
hliðinni. Þegar þú ert spastískur þá
ertu með vöðva til þess að gera hreyf
inguna en vöðvarnir taka ekki á móti
skilaboðunum. Þú festist því oft í
sömu stellingunni og þegar þú finnur
svona mikinn sársauka er ekki þægi
legt að halda spennunni. Þeir urðu
að sprauta mig niður,“ segir Jonni
er hann rifjar upp mínúturnar eft
ir árásina. Þar sem hann var nýbú
inn að borða þegar þetta gerðist varð
hann að bíða í átján klukkustund
ir þar til hann gat farið í aðgerð. „Ég
var vakandi í uppskurðinum og fékk
því að sjá þegar þeir boruðu og skrúf
uðu í mjöðmina á mér. Mér var nátt
úrlega alveg sama því ég var á svo
miklu morfíni. Þetta var bara eins og
að horfa á splattermynd í næsta her
bergi.“
Jonni ákvað að líta jákvæðum aug
um á atvikið og datt aldrei í sjálfsvor
kunn eða biturleika. „Ég ákvað strax
að ég ætlaði ekki að verja hinum
helmingnum af ævinni í hjólastól. Ég
bað því fljótlega um grind sem ég gæti
ýtt og gekk með hana í smá stund og
fékk að lokum fimm punkta staf. Alls
þurfti ég að fara í þrjár aðgerðir og var
á morfíni í alls fjórtán mánuði þar til
ég ákvað sjálfur að hætta.“
Lán í óláni
Jonni fór oft í sund og í gufu á milli
uppskurða og trúir því að það sé
lækningamáttur bæði í íslenska vatn
inu og jákvæðu hugarfari. Í þriðju
og síðustu aðgerðinni var rétt
úr hægri fætinum. „Í dag geng
ég örlítið betur en ég gerði fyr
ir árásina. Þannig þetta var eig
inlega hálfgert lán í óláni,“ seg
ir hann og hlær. Hann segist ekki
vera reiður manninum sem réðst
á sig. „Ég fór ekki í sakbendingu
fyrr en tveimur árum eftir þetta
og man í rauninni ekkert hver
gerði þetta. Ég gat ekki einu sinni
bent á réttan mann. Síðar frétti ég
reyndar að hann hefði setið inni
út af öðru máli.“
Jonni gekk með staf í nokkurn
tíma eftir árásina. Þegar hann var
síðan á leiðinni til Berlínar í eitt
skiptið ákvað hann að segja skilið
við stafinn og skildi hann eftir á
flugvellinum.
Setti lífið í forgang
Jonni bjó í Berlín frá árinu 2001 til
2011. „Ég var í Berlín með þriðju
kvikmyndina mína á kvikmyndahá
tíð þegar ég kynntist þýskri leikkonu.
Mánuði seinna var ég fluttur til henn
ar,“ segir hann en hann var með um
ræddri leikkonu í á þriðja ár. Þegar
sambandinu lauk var hann hins vegar
orðinn hugfanginn af Berlín og ákvað
að vera þar áfram. „Þetta var mjög
þroskandi tími. Drykkjan hélt hins
vegar áfram, en varð öðruvísi. Það
sem hjálpaði mér við að ná tökum á
drykkjuvandamálinu var að hugsa
öðruvísi um það. Áður þá hugsaði ég
alltaf fyrst um áfengið og síðan um
allt annað sem ég ætlaði að gera í líf
Hefur þrisvar lært að ganga
Stormasöm ævi
Jonni átti að eigin sögn
erfiða en fjöruga æsku.
Mynd Sigtryggur Ari
Hlaut verðlaun Hér er Jonni á alþjóðlegu hönnunarkeppninni í Mílanó.
„Hann reyndi
þrettán
sinnum að fremja
sjálfsmorð áður
en það tókst