Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 34
Helgarblað 12.–15. september 201434 Fólk Viðtal„Þetta er
erfitt en
þetta er ekki
óyfirstíganlegt
ljósi, hvort það yrði horft furðulega
á mig og hvort mér yrði útskúfað af
þjóðfélaginu. Ég fór í gegnum allar
þessa vangaveltur.
Ég talaði um þetta við konuna
mína, fjölskyldu og vini og komst að
þeirri niðurstöðu að ég væri í raun
og veru ekki að gera þetta fyrir mig;
ekkert af þessu sem ég hef verið
að gera í tengslum við þetta er fyr-
ir mig. Drifkraftur minn hefur ver-
ið að hjálpa öðrum og láta vita að
það er líf eftir slysin. Þetta er náttúr-
lega algjör viðbjóður í alla staði en
það sést til sólar einn daginn. Líf-
ið er svo dásamlegt að þótt maður
lendi í einhverju slæmu þá kemur
eitthvað gott á móti. Maður verður
bara að vera með opinn huga fyr-
ir því. Maður verður að taka lífinu
eins og það er. Ég lenti í þessu. Ein-
hver annar lendir í hjólastól eftir
bílslys og lamast frá hálsi og niður.
Aðrir eru blindir eða heyrnarlausir.
„Shit happens to people“. Við erum
svo gjörn á að fyllast sjálfsvorkunn
og það er eðlilegt. Ég persónu-
lega og prívat verð mjög foj yfir því
að hafa beðið svona lengi með að
segja frá þessu og leita mér hjálpar.
En svo er spurning hvort ég hafi ver-
ið tilbúinn til að takast á við þetta
þá. Núna eru allt aðrar tilfinningar
í gangi hjá mér. Ég vil segja fólki að
þetta er ömurlegt í alla staði en það
er ljós. Ljósið kemur. Ég segi líka að
fólk verður að segja frá vegna þess
að þá er það að gera öðrum greiða
því þá er frekar hægt að stoppa við-
komandi af.“
Mikil viðbrögð
Það tók á að ætla að fara í Kastljós-
viðtalið.
„Ég var svo hræddur um að all-
ir myndu dæma mig í drasl. Ég svaf
lítið fyrir upptökuna. Ég hafði mikl-
ar áhyggjur. Ég hafði líka áhyggj-
ur af því að ég myndi virka feitur í
sjónvarpinu.“ Hann hlær. Verður
svo aftur alvarlegur. „Ég hafði mikl-
ar áhyggjur en mér leið vel eftir við-
talið. Svo fór þetta í loftið og öll fjöl-
skyldan var að horfa; mamma og
pabbi og tengdaforeldrarnir frá Am-
eríku. Hjartað í mér hamaðist eins
og enginn væri morgundagurinn.
Svo kláraðist viðtalið og viðbrögð
allra voru mjög jákvæð en ég hafði
ekki búist við öðru frá fjölskyldunni.
Það liðu ekki fimm mínútur áður
en Facebook-síðan mín trylltist og
tölvupósthólfið nánast fylltist. Og
síminn stoppaði ekki. Það fylltist allt
af baráttukveðjum og það hringdi í
mig fólk sem ég vissi ekki einu sinni
hvert var og sem ég hafði ekki heyrt
um. Það sagði meðal annars að ég
væri æðislegur og hetja. Auðvitað
upplifði ég mig ekkert sem hetju.
Viðbrögðin voru ekki svona bara
þetta kvöld heldur næstu daga. Ég
fékk endalaust skilaboð í tölvu-
pósti og á Facebook og það var mik-
ið hringt í mig. Ég bara trúði þessu
ekki.“
Tveir af þeim sem höfðu ver-
ið misnotaðir á Hótel Sögu á sama
tíma hringdu í Henry.
„Þetta segir mér bara eitt og það
er að það er engin ástæða til að vera
hræddur við að tala; þótt ég hafi
fundið fyrir þeirri hræðslu. Ég get
lofað því að það er einhver þarna úti
sem hristir hausinn á meðan hann
er að lesa þetta og finnst að ég hefði
ekki átt að segja frá þessu. En veistu
hvað, það er allt í lagi. Það skiptir
engu máli. Ég bý ekki með því fólki
og ég á engin samskipti við það. Það
er í lagi ef það vill vera með bund-
ið fyrir augun. Það er bara þeirra
ákvörðun. En málið er að það lagar
ekki vandamálið ef fólk er með
bundið fyrir augun. Þetta vandamál
er til staðar.“
Nauðsynlegt að segja frá
Henry ráðleggur þeim sem hafa
verið misnotaðir kynferðislega að
segja strax frá. Hann nefnir tvær
forsendur.
„Í fyrsta lagi er það til að viðkom-
andi byrji að takast á við raunina.
Þetta er hroðalegur atburður; það
lentu margir í þessu áður en ég lenti
í þessu og því miður líka margir á
eftir mér. Það er það sem ég er að
reyna að koma í veg fyrir. Því meiri
umfjöllun og því opnara sem þetta
verður því erfiðara er það fyrir ger-
endurna vegna þess að þá verður
talað um þá. Þá verða svo miklar lík-
ur á að þeir náist.“
Henry upplifði gremju, vonsku
og feluleik í mörg ár.
„Ég var búinn að gleyma hvern-
ig Karl Vignir leit út. Ég hafði ekki
hugmynd um það þangað til ég sá
mynd af honum í tengslum við um-
fjöllun Kastljóss. Ég var búinn að
blokkera hann út úr lífinu sem var
æðislegt.“
Áhrif á sjálfstraustið
Jú, þetta var áfall. Sjokk.
„Unglingsárin eru viðkvæm
ár. Ég tel að þetta hafi haft áhrif á
skólagöngu mína og að þetta hafi
eyðilagt fyrir mér sjálfstraustið. Ég
er alveg með það á hreinu vegna
þess að mér fór að líða öðruvísi
þegar ég fór að vinna úr þessum
hlutum. Ég varð kjarkmeiri.“
Þögn.
Henry horfir á mannlífið og lífið
öðrum augum en ella.
„Ég er mjög var um mig gagn-
vart mínum eigin börnum og ég hef
talað við þau um þetta. Allir foreldr-
ar eiga að gera það. Það hafa gaur-
ar verið að reyna að lokka krakka
upp í bíla með sælgæti og öðru. Við
búum ekkert í vernduðu landi. Við
þurfum að fá krakkana til að skilja
að ef einhver gerir svona hluti þá á
að láta vita af því. Það er hugsanlega
hægt að koma í veg fyrir eitthvað af
þessum tilfellum ef þetta er brýnt
fyrir börnunum.
Stundum kemur upp sú tilfinn-
ing að ég eigi inni en það er þegar
maður er fúll út í lífið. En þegar öllu
er á botninn hvolft þá skiptir máli
að börnin mín komist áfram og
standi sig í því sem þau vilja gera og
verði ánægð.
Það hefur pirrað mig að það var
aldrei haft samband við mig frá
Hótel Sögu; að enginn hafi hringt
fyrir hönd félagsins til að biðja mig
og hina strákana fyrirgefningar –
þótt það væri ekki nema að hringja
í okkur; hvað þá að bjóða okkur
einhverjar bætur sem væru sára-
bót. Það myndi ekki leysa neitt en
sýna að fólki sé ekki sama. Það má
ekki gleyma einu – við vorum flestir
krakkar og auðvitað vorum við und-
ir þeirra verndarvæng.“
Hjálp í neyð
Henry fær sér enn einn sopann af
kolsvörtu kaffinu í hvíta bollan-
um. Nokkur ský slást við sólina sem
virðist ætla að hafa betur í þeirri
viðureign. Nokkrir bílar blasa við út
um gluggann. Henry líkir því sem
hann gekk í gegnum við bílslys.
„Fólk fær sjokk og þarf
áfallahjálp. Raunveruleikinn er að
það er í sjálfu sér ekki gerandinn
sem er aðalvandamálið. Það er
raunverulega maður sjálfur vegna
þess að maður finnur fyrir vissri
skömm eins og ég hef sagt. Það hef-
ur alltaf verið tabú að tala mikið
um kynlíf. Þetta er voðalega klént
allt saman; sérstaklega á þessum
árum.“
Henry segir að þótt vel hafi verið
tekið á móti honum hjá Stígamót-
um þá finnist honum líka vera þörf
fyrir félag sem taki á kynferðisbrota-
málum á annan hátt. Hann nefnir
félagasamtök sem gætu heitið Hjálp
í neyð.
„Ég þurfti til dæmis að finna allt
út sjálfur. Það fór aldrei neitt batterí
í gang; ég hef það á tilfinningunni að
það fari ekki neitt merkilegt í gang
eins og eftir að fólk lendir í bílslysi.
Ég tek sem dæmi tvo einstaklinga.
Það er keyrt á annan en hinum er
nauðgað. Það er samstundis kallað
á lögregluna og hringt á sjúkrabíl
vegna einstaklingsins sem keyrt
var á. Þar er hlúð að honum og far-
ið með hann á sjúkrahús þar sem er
teymi fólks sem tekur við honum og
þar fær hann alla þá þjónustu sem
hann þarf án þess að taka krónu
upp úr vasanum. Svo er eftirfylgni
með honum þar til hann er búinn
að ná sér eftir slysið. Svo fær hann
slysabætur í kjölfarið.
Það kemur enginn ef einstak-
lingi er nauðgað. Hann er hins
vegar boðaður í skýrslutöku ef hann
segir frá nauðguninni eða misnotk-
uninni og honum bent á að fara á
sjúkrahús til að hægt sé að taka sýni
og mælt með því að viðkomandi tali
við einhvern hjá Stígamótum. Mað-
ur þarf hins vegar sjálfur að gera
alla þessa hluti. Mér finnst að teymi
eigi að fara af stað eins og þegar
einstaklingur lendir í bílslysi.
Mér finnst að ef einhverjum
er nauðgað ætti hjálpin að koma
til viðkomandi og ætti hún öll að
vera á einum stað svo sem læknis-
skoðun, áfallahjálp og sálfræði-
aðstoð; viðkomandi ætti hugsan-
lega að vera lagður inn ef hann er í
þannig ástandi vegna áfalls.“ Hann
segir að það breyti því ekki hvort
honum hafi verið nauðgað hálftíma
fyrr eða fyrir nokkrum árum.
„Sjokkið er alltaf til staðar. Þegar
viðkomandi byrjar að tala um þetta
þá skiptir það ekki máli; viðbrögð-
in eru kannski ekki eins dramatísk
ef lengra er liðið en þau eru samt til
staðar. Og tilfinningarnar eru alltaf
til staðar.“
Alveg hrár
Henry segir að þegar viðkomandi
sé búinn að taka þá ákvörðun að
segja frá þá sé hann eins og bert
hold.
„Hann er í raun og veru al-
veg hrár. Það þarf að hlúa að hon-
um og passa upp á hann. Ef fólk
þarf lyf þá fær það lyf. Ef viðkom-
andi þarf sálfræðiaðstoð – en það
er pottþétt að fólk sem hefur ver-
ið misnotað þarf einhvers konar
ráðleggingu – þá á hún að vera til
staðar. Mér finnst að viðkomandi
ætti að vera inni á stofnun – hvort
sem það er á Landspítalanum eða
annars staðar – þar sem hann væri
með aðgang að allri aðstoð. Mér
finnst til dæmis að viðkomandi eigi
ekki að þurfa að rífa upp peninga.
Ég er þakklátur fyrir að sálfræðiað-
stoðin var ekki lengri vegna þess
að ég hefði ekki haft efni á því. Fólk
sem lendir í þessu fær áfall og mér
finnst að þetta eigi að vera inni í
okkar sköttum og að viðkomandi sé
inni í verndarhring þangað til hann
treystir sér til þess að fara út aftur
og fái þá sálfræðiaðstoð sem væri
honum að kostnaðarlausu.
Þetta er slys. Fólk lendir í and-
legu slysi. Mér finnst að það eigi
ekki að vera neinn munur á mann-
eskju sem lendir í bílslysi eða
þessu.“
Erfitt en ekki óyfirstíganlegt
Henry er búinn að fyrirgefa Karli
Vigni.
„Það var ekki auðvelt í fyrstu en
þegar á tímann leið og með réttri
hjálp þá kom það allt saman. Það
sem ég hef lært af þessu er að það er
hægt að yfirstíga allan andskotann.
Það kemur betri dagur á morgun.
Það er það sem ég hef lært. Þetta
var ekki mér að kenna og þetta hafði
ekki með mig að gera,“ segir hann
með áherslu, „nema að því leyti
að ég var á röngum stað á röngum
tíma. Ég var virkilega á röngum stað
á röngum tíma. “
Þögn.
„Þetta er erfitt en þetta er ekki
óyfirstíganlegt. Það er fólk þarna úti
til að hjálpa manni þótt það megi
vera meira. Samstaða skiptir miklu
máli. Þeir sem lenda í þessu verða
að standa saman. Ég hef lært að líf-
ið er yndislegt og jú, „shit happ-
ens“. Það kemur sól. Þótt maður geti
á tímabili ekki ímyndað sér að það
birti til þá gerist það. Þetta verður
hins vegar alltaf með mér engu að
síður. Ég hugsa þó í raun og veru
aldrei um þetta,“ segir Henry með
áherslu. „Þetta er ekki eitthvað sem
ég hef löngun til að hugsa um. Ég
er í raun og veru löngu búinn að
vinna úr þessu vegna þess að ég tók
ákvörðun um að vinna úr þessu á
sömu forsendum og ef ég hefði lent í
bílslysi. Ég var á röngum stað á röng-
um tíma. Það er ekkert við þessu að
gera. Það verður að halda áfram af
því að lífið er svo indælt. Það hefur
upp á ýmislegt annað að bjóða en
þetta atvik. Það er það sem er svo
dásamlegt við þetta allt saman.“
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
frá því martröðin hófst. Henry hef-
ur þroskast og lært mikið en það var
ekki fyrr en hann sagði fólkinu sínu
frá því sem hann gekk í gegnum sem
hann fór að feta réttu leiðina.
Hann kveðjur jafn brosandi og
hann hafði heilsað.
Brosið nær til augnanna. n
Svava Jónsdóttir
Hjálpar öðrum Henry ráðleggur þeim sem hafa verið misnotaðir kynferðislega að segja strax frá.