Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 39
Helgarblað 12.–15. september 2014 Skrýtið Sakamál 39
Í
dag, föstudaginn 12. septem-
ber, verður tekinn af lífi Surind-
er nokkur Koli, indverskur mað-
ur sem dæmdur var til dauða
13. febrúar 2009. Mál Surinders
var kallað „mál hryllingshússins“ og
voru hvor tveggja Surinder og vinnu-
veitandi hans, Moninder Singh
Pandher, dæmdir til dauða fyrir
morð á 14 ára stúlku, Rimpa Hald-
ar. Moninder var síðar sýknaður af
morðinu.
Þeir voru handteknir árið
2007 eftir að líkamshlutar fund-
ust skammt frá heimili Moninders,
í Noida í grennd við Nýju-Delí, þar
sem Surinder hafði einnig aðsetur,
árið 2006.
Líkamsleifar finnast
En málið var viðameira og varðaði
mun fleiri fórnarlömb og skuggalegt
athæfi sem þeir höfðu stundað um
árabil. Um tveggja ára skeið höfðu
ungar stúlkur, allt niður í þriggja ára
aldur, horfið úr þorpinu Nithari og
í desember 2006 höfðu tveir íbúar
þorpsins samband við lögregluna.
Sögðust þeir vita hvar væri að finna
líkamsleifar einhverra þeirra stúlkna
sem horfið höfðu; í vatnstanki á bak
við hús D5.
Hvor tveggja mannanna var fað-
ir stúlkna sem horfið höfðu og grun-
aði þá báða að Surinder Koli, heim-
ilishjálp Moninders, væri viðriðinn
hvarf dætranna. Þeir sögðu enn
fremur að þeir hefðu ítrekað komið
að lokuðum dyrum hjá lögreglunni
og því leitað á náðir S.C. Mishra, fyrr-
verandi forseta velferðarráðs íbúa
í Nithari. Mishra og feðurnir tveir
höfðu rannsakað tankinn og fundið
rotnandi hönd.
Að minnsta kosti 19 fórnarlömb
Þegar upp var staðið taldi lögreglan
að fórnarlömb tvímenninganna
væru að minnsta kosti 19, hvort
tveggja konur og börn. Surinder, sem
hafði hrökklast úr námi og að lok-
um orðið heimilishjálp hjá Monind-
er, hafði lokkað börnin með sælgæti.
Innan veggja heimilis Moninders
nauðgaði Moninder fórnarlömbun-
um og Surinder fékk „leifarnar“.
Þegar Surinder hafði lokið sér af
myrti hann fórnarlömbin og sundur-
limaði. Líkamsleifar sumra fórnar-
lambanna fundust í pokum sem
höfðu verið faldir.
Að sögn íbúa í hverfinu hafði lög-
reglan, þrátt fyrir þrýsting af hálfu
foreldra, látið undir höfuð leggjast að
rannsaka mannshvörfin vegna þess
að um var að ræða börn úr fátæk-
um fjölskyldum. „Af hverju ert þú að
ónáða okkur með svona smámáli?“
var svarið sem eitt foreldri fékk frá
lögreglunni sem fullyrti að umrætt
barn hefði bara hlaupist að heiman.
Indælis náungi
Hvað þátt Moninders Singh Pand-
er varðaði var fólk slegið, hvort
tveggja ættingjar og vinir. Hann var
hæglætisnáungi og hvers manns
hugljúfi. Þeir sem hann þekktu
kölluðu hann „Goldy“ en hann
hafði fengið fjölskyldufyrirtæki í
arf.
En ekki er allt sem sýnist því við
rannsókn kom í ljós að bernska
Moninders hafði verið lituð erfið-
leikum. Hjónaband hans var einnig
í molum og eiginkona hans og son-
ur bjuggu ekki hjá honum og lítið
samband á milli hans og þeirra.
Moninder lifði lúxuslífi; drakk
eðalvín, spilaði golf og hafði gam-
an af hryllingssögum. Hlutir sem
lögreglan fann á heimili hans stað-
festu þetta, en einnig dökka hlið til-
veru hans; myndir af honum með
nöktum börnum.
Moninder hefur verið sýknað-
ur af einhverjum morðanna, en
bíður dóms hvað önnur varðar. En
sem fyrr segir mun skósveinn hans,
Surinder Koli, safnast til feðra
sinna í dag. n
HRYLLINGSHÚS Í NITHARI
„Af hverju
ert þú að
ónáða okkur
með svona
smámáli?
n Myrkraverk auðkýfings og skósveins hans n Skósveinninn mætir skapara sínum í dag
Húsbóndinn Moninder hefur verið sýkn-
aður af sumum morðanna, sýkn eða sekt í
öðrum liggur ekki fyrir.
Hjúið Surinder verður,
samkvæmt indverskum
miðlum, sendur yfir
móðuna miklu í dag.
Þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn
Svívirðilegur sorphirðumaður sveik út bætur fyrir tugi milljóna í tuttugu ár
T
homas Murphy, sorphirðu-
maður frá Queens í New
York, á yfir höfði sér allt að 19
ára fangelsi eftir að hann var
ákærður fyrir umfangsmikil bótasvik
og persónuþjófnað. Það væri vart
í frásögur færandi nema fyrir þær
sakir að hann þóttist vera látinn tví-
burabróðir sinn til að svíkja út nærri
600 þúsund dali, rúmar 70 milljón-
ir króna, í örorkubótum. Murphy-
tvíburarnir fæddust árið 1962 en
daginn eftir lést annar þeirra, sem
hafði fengið nafnið Robert. En ára-
tugum síðar átti Thomas eftir að
vekja hann aftur til lífsins, í það
minnsta á pappír. Svikamyllan var
flókin og umfangsmikil en Thomas
þóttist vera bróðir sinn með því að
falsa meðal annars ökuskírteini og
bankareikning í nafni bróður síns.
Hann leigði sér meira að segja auka-
íbúð í nafni bróður síns og kynnti sig
fyrir nágrönnum sem Robert. Og í
nærri tuttugu ár hafði Thomas inn-
heimt örorkubætur í nafni bróð-
ur síns á grundvelli þunglyndis sem
hann sagðist þjást af. Á grundvelli
örorkubótanna innheimti Thomas
meðal annars niðurgreiðslu á hús-
næði og matarmiða á tímabilinu.
Eitt af því sem kann að hafa hjálp-
að Thomas í svikamyllunni er sú
staðreynd að faðir hans hafði sótt
um persónuskilríki (social security
cards) fyrir syni sína árið 1973, rúm-
um ellefu árum eftir fæðingu þeirra
og andlát Roberts. Ekki er vitað hvers
vegna hann gerði það né hvernig
en það varð til þess að Thomas gat
stundað bótasvik sín. „Þetta hljóm-
ar eins og skáldsaga, ekki satt?“ sagði
talsmaður saksóknaraembættisins
í Queens vegna málsins sem fjallað
er um í New York Post. Yfirvöld segja
að engin takmörk séu fyrir því hversu
lágt Thomas Murphy sé reiðubúinn
að leggjast fyrir peninga. En svika-
myllan komst ekki upp fyrr en and-
litsauðkennistækni bandaríska bif-
reiðaeftirlitsins (e. DMV) greindi að
myndirnar á ökuskírteinum Thom-
asar og Roberts væru í raun af sama
manninum. n
mikael@dv.is
Engin takmörk sett Yfirvöld
segja að engin takmörk séu fyrir
því hversu lágt Thomas Murphy
sé reiðubúinn að leggjast fyrir
peninga. Hann notaði látinn
tvíburabróður sinn til að svíkja
út tugmilljónir í bætur.
Mynd SHuttErStock