Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 40
Helgarblað 12.–15. september 201440 Lífsstíll
Lágvaxnir karlar
þéna meira
Þrátt fyrir að margar konur lýsi
draumaprinsinum sem hávöxn-
um, dökkhærðum og myndar-
legum ættu kannski fleiri konur
að líta niður. Samkvæmt nýlegri
rannsókn þéna karlmenn í lægri
kantinum meira en þeir hávöxnu
auk þess sem þeir eru ólíklegri til
að halda framhjá og reynast oftar
betri kærastar og eiginmenn.
Vísindamenn við New York-
og Michigan-háskóla skoðuðu
gögn þúsunda karlmanna út frá
hæð þeirra. Í ljós kom að lág-
vaxnari karlmenn voru ólíklegri
til að skilja, líklegri til að taka
þátt í heimilisstörfunum og lík-
legri til að þéna meira en þeir
menn sem voru hærri í loftinu.
Samt sem áður voru þeir ólík-
legri til að ganga út.
Efnameiri
börn óþekkari
Sú kenning að skilnaður foreldra
hafi slæm áhrif á hegðun barna
þyrfti ef til vill að uppfærast. Alla-
vega ef marka má nýja rann-
sókn sem birtist í fagritinu Child
Development en samkvæmt
henni hefur skilnaður meiri og
neikvæðari áhrif á börn þeirra
tekjuháu en hinna tekjulágu.
Vísindamenn við Georgetown-
háskólann í Washington skoðuðu
4.000 börn á aldrinum 3–12 ára og
flokkuðu eftir fjárhag fjölskyldna.
Í ljós kom að börn þeirra tekju-
hæstu voru líklegri til að sýna af
sér verri hegðun eftir skilnað for-
eldra en börn annarra, sér í lagi ef
börnin voru fimm ára eða yngri
þegar skilnaðurinn átti sér stað.
Karlmannlegt
útlit tengt
lélegu sæði
Karlmennlegt útlit á borð við
sterka kjálka og áberandi kinn-
bein gætu heillað konur upp úr
skónum en slíkir karlar bjóða
ekkert endilega upp á besta
sæðið. Ekki ef marka má nýja
rannsókn sem fjallað var um í
Medical Daily.
Vísindamenn rannsökuðu
sæði úr 62 körlum og greindu svo
útlit þeirra. Í ljós kom að sæði
karla sem flokkaðir voru sem
myndarlegir en ekki karlmann-
legir reyndist koma best út úr
rannsókninni.
Einhverjir útskýra niðurstöð-
una þannig að dimm rödd og
stæltir upphandleggir sé tilkom-
ið á kostnað kynferðislegrar getu
eða með öðrum orðum að hátt
testósterón komi í veg fyrir há-
gæða sæðisframleiðslu.
„Líkamsstaðan
verður fallegri“
Antigravity Aerial Yoga er nýjasta æðið í líkamsræktinni
Þ
etta er klárlega nýjasta
æðið,“ segir jógakennarinn
Anna Rós Lárusdóttir sem
kennir Antigravtiy Aerial
Yoga í Sporthúsinu. Sam-
kvæmt Önnu Rós er um að ræða
blöndu af hinum hefðbundnu jóga-
æfingum þar sem lögð er áhersla á
að tengja saman líkama, huga og sál
með hugleiðslu og slökun. Einnig
er þetta blanda af öðrum æfingum
eins og leikfimi, pilates og dans.
Jóga, leikfimi og dans
„Við erum þó ekki beint að dansa
heldur notum ákveðnar dansstöð-
ur og hreyfingar. Þetta er því mjög
fjölbreytt,“ segir Anna Rós, sem
segir eiganda Antigravity Yoga,
Christopher Harrison, hafa verið í
um átta ár að þróa tæknina. „Harri-
son er mjög hæfileikaríkur mað-
ur sem hefur meðal annars keppt
á heimsmælikvarða í fimleikum,
dansað á Broadway og leikið í bíó-
myndum. Hann hefur því prófað
ýmislegt. Hann fór svo til Indlands
og þróaði þessa aðferð sem hann í
kjölfarið opinberaði árið 2007. Síð-
an hefur þetta farið um heiminn
eins og eldur í sinu,“ segir Anna Rós
sem fór til New York til að læra af
kennurum Harrisons.
Spurning um traust
Anna Rós segir aerial jóga fyrir alla.
„Það geta allir verið með en að sjálf-
sögðu þurfa allir að hlusta á lík-
ama sinn, við þekkjum okkur best
sjálf,“ segir hún og játar að margir
séu hræddir við að hvolfa sér í
fyrstu. „Margir eru hræddir við að
treysta hengirólunni og fyrstu tím-
arnir snúast um að læra að treysta
og læra undirstöðuatriðin. Þetta er
bara spurning um að treysta og læra
tæknina, um leið og fólk hefur gert
þetta einu sinni verður þetta ekk-
ert mál. Það er ótrúlega gaman að
sjá stoltið í andliti þeirra sem voru
vissir um að geta þetta ekki en gátu
samt.“
Fyrir bæði kynin
Aerial jóga er fyrir bæði kynin en
Anna Rós segir konur í meirihluta
í tímunum hjá henni. „Eins og er
er aðeins einn strákur hjá mér en
hann kemur úr crossfit og vildi
auka liðleika sinn. Þetta er samt
alls ekki bara fyrir konur. Það vill
bara oft verða þannig að strákar
eru lengur að meðtaka og þora að
prófa. Þetta verður eflaust bara eins
og með hot jóga. Þegar það byrjaði
voru nánast bara konur en í dag eru
allir í hot jóga.“
Lengist fyrir vikið
Anna Rós segir ávinninginn af því
að stunda jóga í þyngdarleysi marg-
þættan. „Við komumst í dýpri teygj-
ur en í hefðbundnu jóga ásamt því að
hægt er að halda hverri stöðu leng-
ur án þess að setja aukið álag á lík-
amann þar sem hann nýtur stuðn-
ings frá Harrison-hengirólunni.
Hryggurinn fær tækifæri til að rétta
sig af án þrýstings og þetta opnar
pláss á milli hryggjarliða, það verð-
ur hreinlega eins og þú lengist. Það
réttist úr þér svo líkamsstaðan verð-
ur fallegri. Einnig er mikill ávinning-
ur fyrir blóðrásar- og sogæðakerfið
og heilinn fær aukið súrefnisflæði,
við losum um gleðihormón og
meltingin batnar. Þetta frískar bara
upp á allt kerfið,“ segir hún og bæt-
ir við að það sé sérstaklega gott fyrir
þá sem sitja mikið við vinnu. „Sjálf
er ég í námi og sit því mikið. Það
er yndislegt að geta stundað þetta
á hverjum degi til að opna axlir,
brjóstkassa og mjaðmir en það eru
einmitt þessir staðir sem eiga til að
safna upp spennu. Þetta er því til-
valið fyrir skrifstofufólk, og bara alla
aðra sem vilja styrkja og liðka lík-
amann á skemmtilegan hátt.“ n
Anna Rós
Anna Rós
reynir að gera
jógaæfingar á
hvolfi á hverj-
um degi.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Þegar það
byrjaði voru nán-
ast bara konur en í dag
eru allir í hot jóga.
Óhefðbundin líkamsstaða Anna Rós segir að allir geti verið með en að fólk þurfi að
sjálfsgöðu að hlusta á líkama sinn.