Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 41
Helgarblað 12.–15. september 2014 Lífsstíll 41
Auka líkur á
elliglöpum
Langtímanotkun á pillum við
kvíða og svefnvandamálum gæti
orsakað Alzheimer, samkvæmt
nýrri rannsókn. Rannsókn á eldri
borgurum í Kanada leiddi í ljós að
þriggja mánaða eða lengri notkun
á benzódíazepín-lyfjum gæti auk-
ið líkur á elliglöpum um 51%.
Vísindamaðurinn Sophie
Billioti de Gage við háskólann í
Bordeaux-leiddi rannsóknina.
Hún segir að þótt að rannsókn-
in hafi sýnt fram á tengsl milli
lyfjanna og Alzheimer þá sé ekki
vitað hvernig þessi tengsl séu til
komin.
Fjallað var um rannsóknina í
læknaritinu BMJ.
Minni líkur
á astma
Nýburar sem sofa á ull af dýrum
fyrstu mánuði lífs síns eru ólík-
legri til að þróa með sér astma og
ofnæmi seinna á ævinni. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn sem
fjallað er um í Time.
Rannsóknin var framkvæmd
í Þýskalandi en þar í landi voru
ullarteppi í vöggum ungbarna al-
geng í kringum 1990.
Í ljós kom að börn sem sváfu
á ull voru 79% ólíklegri til að hafa
þróað með sér astma þegar þau
náðu sex ára aldri og 41% ólík-
legri þegar þau náðu tíu ára aldri.
Hreinsandi „after sex“-drykkur
Skiptu reyknum út fyrir vatn
L
angar þig í eitthvað alveg sér-
stakt eftir sjóðheitan ástarleik
með ástinni þinni? Gleymdu
sígarettunni og fagnaðu með
þessu hreinsandi vatni.
Best er að fjárfesta í hjartalög-
uðum klakaboxum og nota endur-
nærandi piparmintuolíu til að kæla
sig niður eftir átökin. Og, ef ást-
arleikurinn var ekki upp á marga
fiska, þá er þessi drykkur tilvalinn
fyrir þig líka. n
ritstjorn@dv.is
n 1 bolli af jarðarberjum, pilluð
og skorin í tvennt
n 2 bollar af hjartalöguðum
ísmolum
n 3 bollar vatn
n 3–5 dropar af ætri
piparmintu-ilmkjarnaolíu
Allt sett saman í tvær krukkur og
geymt í frysti þar til rétti tíminn er
kominn. Svo þegar vatnið klárast
úr krukkunni gefurðu ástinni þinni
jarðarberin að borða. Og töfrarnir
hefjast að nýju.
Hreinsandi drykkur
Ískaldur og hreinsandi drykkur
sem kemur ykkur í stuðið aftur.
Hreinsandi drykkur fyrir tvo
Afbrigðilegir
eru heilbrigðari
Þeir sem stunda það sem oft er
kallað „afbrigðilegt“ kynlíf gætu
verið sálfræðilega heilbrigðari en
aðrir. Þetta kom fram í rannsókn
sem birtist í fagritinu Journal of
Sexual Medicine.
Sálfræðingurinn Andreas Wis-
meijer við Nyenrode-viðskipta-
háskólann í Hollandi og félagar
unnu að rannsókninni. Þeir
komust að því að einstaklingar
sem eru fyrir BDSM, bindileiki,
kvalalosta og masókisma skor-
uðu hærra á prófi sem mældi
andlega heilsu en þeir sem höfðu
ekki áhuga á neinu „afbrigðilegu“
í svefnherberginu. Til að mynda
mældust þeir sem stunda BDSM
minna kvíðnir, opnari, meðvit-
aðri, viðkvæmari fyrir höfnun og
öruggari í samböndum sínum
auk þess að vera yfirhöfuð í meira
andlegu jafnvægi en aðrir.
Lofts endurgerður
Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar beitir sér fyrir bætttum aðbúnaði útigangsfólks
Hermannajakki
O
kkur einfaldlega blöskrar
aðbúnaðurinn fyrir þetta
fólk. Maður hefði aldrei
trúað þessu fyrr en mað-
ur sér þetta með eigin aug-
um,“ segir Brandur Gunnarsson,
bróðir Lofts Gunnarssonar, en Loft-
ur hefði orðið 35 ára í vikunni hefði
hann lifað.
Sjúskaður og rifinn
Fjölskylda og vinir Lofts hafa stofnað
minningarsjóð í hans nafni í þeim
tilgangi að bæta aðbúnað útigangs-
fólks. Sjóðurinn ætlar að endurgera
hinn fræga hermannajakka sem
Loftur sást í síðustu árin. Gunnar
Hilmarsson fatahönnuður er mágur
Lofts. „Þetta er afar sérstakur jakki
sem fylgdi Lofti lengi og eins og ger-
ist með flík sem þú notar mikið var
hann sjúskaður, rifinn og bættur.
Nonni í Dead var góður vinur Lofts
og hafði prentað á hann hauskúp-
una, sem reyndar var á öllum jökk-
um Lofts,“ segir Gunnar og bætir við
að peningarnir sem safnist með sölu
jakkans verði notaðir til að kaupa
rúm í karlaskýlið á Njálsgötu.
Safna fyrir rúmum
„Sjóðurinn hefur keypt rúm, sæng-
ur og kodda fyrir Konukot og Gisti-
skýlið í Þingholtsstræti en nú er
komið að körlunum á Njálsgötu. Ég
man þegar ég kom inn á gistiskýlið
við Þingholtsstræti og var að heim-
sækja Loft. Sængin og rúmið voru
þannig að enginn okkar hefði lyst á
að leggjast þar. Fólk er samt að gera
sitt besta en með svona lítið af pen-
ingum er lítið hægt að gera. Eina
leiðin er að safna og það ætlum við
að gera; í krafti fólks sem vill leggja
sitt af mörkum.“
Handgerðir jakkar
Hermannajakkinn verður bæði í
karla- og kvenstærðum. Þeir sem
vilja tryggja sér jakka er bent á
Karolina Fund eða vefsíðuna loftur-
gunnarsson.com. „Aðalmálið er að
við erum að safna fyrir framleiðsl-
unni og annaðhvort náum við því
eða ekki. Fólk verður að kaupa jakka
svo það sé hægt. Svo þegar jakkarn-
ir koma og einhverjir verða auka þá
fara þeir í sölu á góðum stað. Jakkinn
mun kosta 25 þúsund sem er ekki
dýrt en samt fær sjóðurinn ágætis
upphæð út úr hverjum jakka. Reynt
verður að nálgast upprunalega jakk-
ann eins vel og hægt er og því verður
allt á jakkanum handgert.“
„Effortless“ kúl
Loftur lést í janúar 2012 og hef-
ur síðan verið einhvers konar and-
lit baráttunnar fyrir bættum kjörum
útigangsfólks. „Andlát hans hefur
vakið athygli á slæmum aðbúnaði
þessa hóps sem er súrsætt fyrir þá
sem stóðu honum næst. Nafn hans
hefur verið notað í þessari baráttu,
sem er frábært þótt það rífi nátt-
úrlega stanslaust upp erfiða tíma.
Loftur var bara þessi góði gaur og
sannaði að útigangsfólk er bara eins
og allir aðrir. Það er sjaldnast þörf
á að taka stóran sveig. Þess vegna
minnast hans svona margir. Hann
var spes týpa og mikill töffari, svo
„effortless“ kúl. Þrátt fyrir þennan
lífsstíl þýddi ekkert að gefa honum
föt. Ef hann fílaði þau ekki fór hann
aldrei í þau, þrátt fyrir að eiga ekk-
ert.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Hermannajakkinn frægi Þeir sem vilja styrkja málstaðinn og eignast jakkann er bent á Karolina Fund.
Loftur Gunnarsson
Loftur hefði orðið 35
ára í vikunni ef hann
hefði lifað en hann lést
fyrir tveimur árum.
Mynd MattHíaS KrIStInSSon