Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Blaðsíða 42
Helgarblað 12.–15. september 201442 Sport
Býst við sigri City á Emirates
Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður
tippar á leiki helgarinnar. Ingólfur, sem
er stuðningsmaður Liverpool, býst við
öruggum sigri sinna manna og að Gylfi Þór
Sigurðsson skori gegn Chelsea.
Arsenal – Manchester City 1–3
City-menn rífa sig upp eftir óvæntan
tapleik gegn Stoke og ganga á lagið á Em-
irates. Þeir eru einfaldlega of sterkir til þess
að tapa tveimur leikjum í röð. Jovetic verð-
ur líflegur í sóknarleik þeirra bláklæddu,
skorar eitt og leggur upp annað. Ég vona
síðan Arsenal vegna að Wenger fari að átta
sig á því að þú spilar ekki Mesut Özil, besta
sóknartengilið heims, út úr stöðu.
Chelsea – Swansea 2–1
Sjálfstraust Gylfa eykst með hverri
sekúndu spilaðri sem veit á gott. Hann
mun koma Swansea yfir snemma leiks en
lærisveinar Mourinhos líta út fyrir að vera
of sterkir til þess að tapa fótboltaleik og
munu þeir innbyrða sigurinn að lokum, þó
að það verði tæpt. Swansea tapar þar með
fyrstu stigunum sínum í ár.
Crystal Palace – Burnley 3–1
Tvö neðstu lið deildarinnar eigast við og
vonast bæði til að ná fyrsta sigrinum.
Heimamenn verða ívið sterkari og munu
þeir skilja Burnley eftir í botnsæti deildar-
innar.
Southampton – Newcastle 3–0
Liðið sem missti nánast heilt byrjunarlið
hefur farið ágætlega af stað, mörgum til
mikillar furðu. Vængmaðurinn Dusan Tadic
heldur áfram að kæta stuðningsmenn
Southampton með flottum töktum og
mun verða arkitektinn að mörkum liðsins í
öruggum heimasigri.
Stoke City – Leicester City 1–2
Þrátt fyrir að vera eitt leiðinlegasta lið
síðari ára í ensku úrvalsdeildinni er Stoke
alls ekki svo slæmt í ár. Þeir eru með marga
fína leikmenn en þrátt fyrir það mun
Leicester City koma öllum að óvörum og
hirða stigin þrjú á útivelli.
Sunderland – Tottenham 0–1
Lykilmenn Tottenham verða seinir í gang
enda nýkomnir úr landsleikjatörn og þess
utan var liðið niðurlægt af Liverpool í
síðustu umferð. Leikurinn verður lítið fyrir
augað en Tottenham mun, á seiglunni einni
saman, taka stigin þrjú með sér til London.
West Bromwich Albion –
Everton 2–2
Maður bjóst við betri byrjun hjá lærisvein-
um eins athyglisverðasta stjóra deildarinn-
ar, Roberto Martinez. Everton á enn eftir að
vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu og hann
mun ekki koma um þessa helgi. Sanngjarnt
jafntefli í bráðfjörugum leik.
Liverpool – Aston Villa 4–1
Stuðningsmenn Liverpool bíða í ofvæni
eftir fyrsta heimaleik Marios Balotelli.
Hann verður í aðalhlutverki í einum af
þessum ótrúlegu heimaleikjum hjá Liver-
pool, þar sem liðið kjöldregur andstæðinga
sína í upphafi leiks. Áfram verður sett
spurningarmerki við varnarleik Liverpool
því í síðari hálfleik mun liðið fá á sig mark,
þvert gegn gangi leiksins.
Manchester United –
Queens Park Rangers 3–0
Fyrsti sigur Rauðu djöflanna verður aldrei
í hættu. Þeir eru komnir með ansi myndar-
legan hóp fram á við og nýju mennirnir
koma með ferskan andblæ í leik liðsins. Di
María, sem gerði grín að heimsmeisturum
Þjóðverja á dögunum, mun skora sitt fyrsta
mark fyrir félagið á meðan Harry Red-
knapp klórar sér í hausnum á hliðarlínunni,
ráðalaus yfir slakri spilamennsku QPR.
Hull City – West Ham 1–2
West Ham heldur áfram að tapa og vinna
til skiptis. Sam Allardyce veit hvað þarf til
að klára lið Hull City sem reynir að koma
nýju mönnunum inn í hlutina.
Toppslagurinn á
Stamford Bridge
n Liðin í 1. og 2. sæti mætast á laugardag n Arsenal tekur á móti Manchester City
A
ðdáendur enska boltans
geta tekið gleði sína á ný
því um helgina fer fram heil
umferð í úrvalsdeildinni.
Umferðin hefst með látum
strax í hádeginu á laugardag þegar
Arsenal tekur á móti Manchester
City í stórleik helgarinnar. Þá munu
augu margra beinast að Manche-
ster United, þá sérstaklega Rada-
mel Falcao, Marcos Rojo og Daley
Blind sem gætu spilað sinn fyrsta
leik. United tekur á móti QPR í eina
leik sunnudagsins. Fleiri athyglis-
verðir leikir eru á dagskránni; Gylfi
Þór Sigurðsson og félagar í Swansea
heimsækja Chelsea. Þá tekur Liver-
pool á móti Aston Villa í síðdeg-
isleiknum á laugardag.
Taplausir í 19 leikjum
Það verður spennandi að sjá hvort
Englandsmeisturum Manchester
City takist að komast á sigurbraut
að nýju eftir óvænt tap á heimavelli
gegn Stoke í síðustu umferð, 1–0.
Að heimsækja Emirates, heima-
völl Arsenal, er ekkert grín enda
eru lærisveinar Arsene Wenger tap-
lausir í síðustu 19 deildarleikjum
á heimavelli. Stuðningsmenn City
geta huggað sig við það að liðinu
hefur gengið vel á Emirates í síðustu
leikjum liðanna. Arsenal hefur að-
eins unnið einn af síðustu sex leikj-
um liðanna á heimavelli, þrír hafa
endað með jafntefli en City hefur
unnið tvo. City er í 4. sæti deildar-
innar sem stendur með 6 stig en
Arsenal í því sjöunda með 5 stig.
Fyrsti toppslagurinn
Swansea hefur átt góðu gengi að
fagna í upphafi móts og deilir topp-
sætinu með Chelsea. Bæði lið eru
með fullt hús stiga, níu stig. Þessi lið
mætast á Stamford Bridge á laugar-
dag í fyrsta toppslag tímabilsins. Þó
að Swansea hafi farið vel af stað bú-
ast flestir við öruggum sigri Chelsea
enda hefur liðið leikið óaðfinnan-
lega í fyrstu leikjunum.
Hvað gerir Falcao?
Manchester United er enn án sig-
urs í deildinni að loknum fyrstu
þremur umferðunum. Félagið fór
hamförum á lokadegi félagaskipta-
gluggans og fékk til sín tvo öfluga
leikmenn, þá Daley Blind frá Ajax
og Radamel Falcao sem kom á láns-
samningi frá Monaco. Liðið tekur á
móti QPR í eina leik sunnudags-
ins og þarf United nauðsynlega að
komast á sigurbraut ætli liðið sér
að halda í við toppliðin. United er
með tvö stig í 14. sæti deildarinnar
en nýliðar QPR eru með 3 stig í 12.
sætinu.
Aston Villa í 3. sæti
Liverpool, sem vann sannfærandi
3–0 sigur á Tottenham í síðustu um-
ferð, tekur á móti Aston Villa á An-
field síðdegis á laugardag. Villa hef-
ur komið nokkuð á óvart í upphafi
leiktíðar, unnið tvo leiki og gert eitt
jafntefli. Á sama tíma hefur Liver-
pool farið ágætlega af stað. Liðið er
með sex stig í 5. sæti deildarinnar. n
Vissir þú …
… að enginn leikmaður Tottenham hefur
fengið gult spjald í fyrstu þremur leikjum
liðsins í deildinni í haust. Einn hefur hins
vegar fengið rautt spjald.
… að Aston Villa er eina lið deildarinnar
sem er með fleiri stig (7) en skot liðsins að
marki andstæðinganna (5).
… að Radamel Falcao
skoraði í fyrstu sjö
deildarleikjum sínum
fyrir Porto og Monaco á
sínum tíma.
… að frá tímabilinu 2009/2010 hefur
Falcao skorað 104 mörk í 139 leikjum fyrir
Porto, Atletico Madrid og Monaco.
… að aðeins Robin van Persie
og Mikael Silvestre hafa
spilað bæði fyrir Arsenal
og Manchester United frá
stofnun úrvalsdeildar-
innar. Nú bætist Danny
Welbeck í hópinn.
… að Arsenal keypti fæsta leikmenn allra
liða í ensku úrvalsdeildinni í sumar, eða
fjóra.
… að aðeins Darren Anderton (67) og
Teddy Sheringham (44) hafa lagt upp fleiri
mörk en Aaron Lennon (43) fyrir Totten-
ham frá stofnun úrvalsdeildarinnar.
… að Mesut Özil hefur
aðeins lagt upp eitt
mark fyrir Arsenal í
úrvalsdeildinni í síðustu
tíu leikjum liðsins.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Sterkir Chelsea-liðið
virkar ógnarsterkt og
hafa Cesc Fabregas og
André Schurrle spilað vel
í upphafi móts.
Spekingur
Ingólfur reiknar
með öruggum
sigri sinna
manna gegn
Aston VIlla.