Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Qupperneq 43
Helgarblað 12.–15. september 2014 Sport 43
Úrvalslið
Norðurlandanna
Kasper Schmeichel
Land: Danmörk Aldur: 27 ára Félag: (leikir/mörk)
Leicester City (140/0) Landsleikir/mörk: 3/0
n Kasper er, eins og flestir sparkspekingar vita, sonur
hins goðsagnakennda Peters Schmeichel, sem er í hópi
bestu markvarða sögunnar. Þó að Kasper eigi langt í
land með að feta í fótspor föður síns hefur hann staðið
sig vel. Schmeichel er eini Norðurlandabúinn sem á
fast markmannssæti hjá liði í ensku úrvalsdeildinni
og það segir ýmislegt um gæði hans. Þá byrjaði
Schmeichel í markinu hjá Dönum gegn Armenum í
undankeppni EM á dögunum og virðist hann vera búinn
að festa sig almennilega í sessi með landsliðinu.
Daniel Agger
Land: Danmörk Aldur: 29 ára Félag (leikir/
mörk): Bröndby (0/0) Landsleikir/mörk: 65/12
n Daniel Agger er án nokkurs vafa einn allra besti
varnarmaður Norðurlandanna. Agger, sem er 29
ára, ákvað að fara aftur heim til Bröndby í Dan-
mörku í sumar eftir að hafa leikið með Liverpool
undanfarin ár við góðan orðstír. Agger hefði í raun
getað farið í hvaða lið sem er og hafði Barcelona
til að mynda áhuga á að landa honum í sumar.
Ragnar
Sigurðsson
Land: Ísland Aldur: 28 ára
Félag (leikir/mörk): Krasnodar
(9/0) Landsleikir/mörk: 37/0
n Frammistaða Ragnars
Sigurðssonar með íslenska
landsliðinu tryggir honum sæti
í úrvalsliði Norðurlandanna.
Ragnar hefur spilað stórkostlega
í hjarta varnarinnar með íslenska
liðinu, fyrst í undankeppni HM
og svo átti hann frábæran leik
gegn Tyrkjum í vikunni. Ragnar er
ekki bara góður með landsliðinu
því hann var lykilmaður í vörn
FC Kaupmannahafnar, besta
liði Norðurlanda, áður en hann
samdi við rússneska liðið FC
Krasnodar fyrr á árinu.
Jonas Olsson
Land: Svíþjóð Aldur: 31 árs Fé-
lag (leikir/mörk): WBA (207/12)
Landsleikir/mörk: 24/1
n Jonas Olsson hefur verið lykil-
maður í vörn West Brom í ensku
úrvalsdeildinni á undanförnum
árum. Þó að Olsson sé orðinn
31 árs lék hann ekki sinn fyrsta
landsleik fyrr en árið 2010. Áður
en hann gekk í raðir West Brom
árið 2008 lék hann með NEC
Nijmegen í Hollandi. Olsson er
gríðarlega sterkur í loftinu og þá
les hann leikinn einkar vel. Hann
hefur á undanförnum árum
skipað sér sess meðal öflugustu
varnarmanna ensku úrvals-
deildarinnar.
Kolbeinn Sigþórsson
Land: Ísland Aldur: 24 ára Félag (leikir/mörk): Ajax (126/46)
Landsleikir/mörk: 24/16
n Kolbeinn þykir mikið efni en tíð meiðsli hafa að líkindum tafið það að
stórlið hafi keypt hann. Kolbeinn spilar þó með stærsta liðinu í Hollandi
og hefur þar staðið sig vel, þegar hann hefur verið heill. Árangur hans
með landsliðinu er líka eftirtektarverður. Ljóst er að Kolbeinn hefur allt
það til að bera til að verða sóknarmaður í heimsklassa. Þá er aðeins
tímaspursmál hvenær hann slær markamet íslenska landsliðsins, met
sem Eiður Smári Guðjohnsen hefur átt um langt skeið.
Zlatan Ibrahimovic
Land: Svíþjóð Aldur: 32 ára Félag (leikir/mörk): Paris
Saint-Germain (94/83) Landsleikir/mörk: 100/50
n Zlatan hefur undanfarin ár verið einn allra besti knattspyrn-
umaður í heimi. Hann er í algjörum sérflokki, enn sem komið er,
þegar horft er til leikmanna á Norðurlöndunum, enda standast
honum fáir varnarmenn snúning þegar sá gállinn er á honum.
Zlatan býr yfri einstökum hæfileikum og getur búið til mörk upp úr
engu. Hann hefur orðið meistari með öllum þeim liðum sem hann
hefur leikið með og er jafnan í hópi markahæstu leikmanna.
Christian Eriksen
Land: Danmörk Aldur: 22 ára Félag (leikir/mörk): Tottenham (36/10)
Landsleikir/mörk: 46/5
n Eriksen er líklega besti knattspyrnumaðurinn sem Danir eiga um þessar
mundir. Hann komst á kortið hjá Ajax þar sem hann spilaði í um fjögur ár. Erik-
sen er afar skapandi sóknarþenkjandi miðjumaður og líður best í sömu stöðu
og Gylfi, fyrir aftan framherja. Hann var valinn bestur leikmanna Tottenham
á síðustu leiktíð – og segir það nokkuð um þá hæfileika sem hann býr yfir.
Sebastian
Larsson
Land: Svíþjóð Aldur: 29 ára Fé-
lag (leikir/mörk): Sunderland
(125/12) Landsleikir/mörk: 67/6
n Larsson hefur undanfarin
ár verið lykilmaður í ágætu liði
Sunderland. Hann hefur skorað
eitt mark og lagt upp annað í
fyrstu þremur leikjum úrvarls-
deildarinnar í haust. Larsson er
góður alhliða miðjumaður; getur
haldið boltanum, varist vel og er
stórhættulegur í föstum leikatrið-
um. Hann á að baki 210 leiki í
ensku úrvalsdeildinni og hefur
skorað í þeim 24 mörk. Larsson
er óumdeilanlega í hópi bestu
leikmanna Norðurlandanna
undanfarinn áratug eða svo.
Gylfi Þór Sigurðsson
Land: Ísland Aldur: 25 ára Félag (leikir/mörk):
Swansea (22/8) Landsleikir/mörk: 25/6
n Gylfi Þór hefur verið einn besti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar það sem af er tímabilinu. Hann hefur
farið á kostum með Swansea og var frábær í landsleikn-
um við Tyrki í vikunni. Hafi einhver efast, eftir veruna hjá
Tottenham, hefur Gylfi sýnt það á tímabilinu að hann er
stórkostlegur leikmaður – skapandi og síógnandi.
Lasse Schöne
Land: Svíþjóð Aldur: 28 ára Fé-
lag (leikir/mörk): Ajax (88/25)
Landsleikir/mörk: 20/3
n Lasse Schöne var lykil-
maður í liði Ajax sem varð
Hollandsmeistari á síðustu leik-
tíð. Þessi öflugi leikmaður, sem
getur spilað bæði á miðjunni og
á hægri vængnum, hefur farið
frábærlega af stað með Ajax á
tímabilinu, skorað þrjú mörk og
lagt upp eitt í fyrstu fjórum leikj-
unum. Á síðustu leiktíð skoraði
hann 9 mörk og lagði upp 8 í 25
leikjum í hollensku deildinni.
Schöne hefur ekki alltaf átt fast
sæti í danska landsliðinu og til
marks um það hefur hann aðeins
leikið 20 landsleiki. Frammi-
staða hans undanfarin misseri
hefur þó tryggt honum sæti í
byrjunarliði danska liðsins.
Kim Kallström
Land: Svíþjóð Aldur: 32 áraFélag (leikir/mörk): Spartak Moskva (39/3)
Landsleikir/mörk: 112/16
n Kim Kallström hefur um árabil verið lykilmaður í sænska landsliðinu og farið
með liðinu á fjölmörg stórmót. Þessi öflugi miðjumaður hefur komið víða við
á ferli sínum en lengst af lék hann með Lyon í Frakklandi. Þó að Kallström sé
orðinn 32 ára er hann hvergi nærri hættur og hann var á sínum stað í byrjun-
arliði Svíþjóðar gegn Austurríki í undankeppni EM á dögunum. Margir komu
til greina í þessa stöðu, meðal annars William Kvist, leikmaður Dana, og Aron
Einar Gunnarsson. Reynsla og gæði Kallström koma honum þó í liðið.