Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 54
Helgarblað 12.–15. september 201454 Fólk
Butler þeystist um á
hlaupahjóli í Leifsstöð
n Komtil þess að skoða eldgosið n Átti að fara heim á þriðjudag en framlengdi
S
koski leikarinn Gerard
Butlerz þeyttist um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á hlaupa-
hjóli á dögunum þegar hann
brá á leik með Söndru Dögg
Tryggvadóttur sem starfar hjá IGS.
Butler, sem hefur leikið í kvik-
myndum á borð við 300, Law Abi-
ding Citizen og RocknRolla, kom til
landsins á laugardagskvöldið með
áætlunarflugi frá London en með
honum í för er kærasta hans.
„Hann var rosalega vingjarnlegur
en við spjölluðum heilmikið saman,“
segir Sandra Dögg sem hitti Butler
við komuna til landsins á laugar-
daginn.
Meðal þess sem þau ræddu um
var eldgosið í Holuhrauni en leik-
arinn var mjög hrifinn af þessu til-
komumikla gosi. Eldstöðvarnar eru
gríðarlega vinsælar meðal fjáðra
ferðamanna sem ferðast þangað og
eru Hollywood-leikarar þar engin
undantekning.
Eldgosið vinsælt í Hollywood
DV greindi frá því í vikunni að stór-
leikarinn Sir Ian Mckellen, sem flest-
ir þekkja sem Gandalf úr kvikmynd-
unum um Hringadróttinssögu, væri
einnig staddur hér á landi í sömu
erindagjörð-
um; að skoða
eldgosið. Báðir
hafa þeir flog-
ið yfir svæðið á
þyrlu sem telst
vænsti kostur-
inn ef ætlunin
er að vera í ná-
vígi við þessa
kyngimögn-
uðu krafta sem
leysast þarna úr
læðingi.
Butler
kynntist Ís-
landi árið 2005
þegar hann lék
í kvikmyndinni
Beowulf &
Grendel og hef-
ur síðan þá
heimsótt landið
nokkrum sinn-
um. Þá hefur
Butler margoft
talað fallega um Ísland í hinum ýmsu
viðtölum og segir hann Skotland
og Ísland þau lönd sem eru í mestu
uppáhaldi hjá honum.
Samkvæmt heimildum DV átti
Butler að fljúga aftur til London á
þriðjudaginn en ákvað að fram-
lengja dvöl sína hér á landi eftir að
hafa skoðað eldstöðvarnar í Holu-
hrauni. Hann framlengdi dvölina
um tvo daga og flaug aftur heim um
miðjan dag á fimmtudag.
Butler nýtti tíma sinn vel á Íslandi
og flaug til að mynda nokkrum sinn-
um yfir eldstöðvarnar. Þá sást hann
einnig á skemmtistöðum borgarinn-
ar, öðrum gestum og gangandi til
mikillar gleði. n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Vingjarnleg stjarna Butler ræddi heilmikið við Söndru Dögg sem sagði leikarann mjög
vingjarnlegan. Mynd úr EinkAsAfni
Á hlaupahjólinu Butler fannst ekki
leiðinlegt að þeysast um flugstöðina á
þessu hlaupahjóli sem starfsmenn IGS
nota á Keflavíkurflugvelli. Mynd úr EinkAsAfni
Leikari Butler
flaug yfir gosið og
sjást á djamminu. „Hann var rosa-
lega vingjarn-
legur en við spjölluð-
um heilmikið saman
Sestur á
skólabekk
Rithöfundurinn og fyrrverandi
ritstjórinn, Mikael Torfason, er
sestur á skólabekk. Mikael, sem
var á dögunum settur af sem
aðal ritstjóri 365 miðla, er aftur
farinn að lesa enskar bókmennt-
ir við Háskóla Íslands meðfram
bókaskrifum.
Mikael var ráðinn ritstjóri
Fréttablaðsins í mars í fyrra en
þá hafði hann gegnt þeirri stöðu
á Fréttatímanum. Á meðal bóka
hans eru Falskur fugl, Saga af
stúlku og Heimsins heimskasti
pabbi.
Bauð Hildi
Lilliendahl á ball
Svo virðist sem einhver óprútt-
inn aðili hafi komist í tölvu sjón-
varpsmannsins Loga Bergmann
á fimmtudag og valdið usla í hans
nafni á Facebook. Þannig bauð
hann meðal annars Hildi Lilli-
endahl, ásamt fleirum, á ball með
Skítamóral á skemmtistaðnum
SPOT í Kópavogi á laugardag. Þá
spurði hann Facebookvini sína
hvort hann væri meira sexý með
skegg eða án, boðaði sig á fund
hjá samtökum um glúteinfrítt líf
og skaut hörðum skotum á rauð-
hærða.
Samkvæmt frétt Nútímans
var það sjónvarpskonan Sigríð-
ur Elva Vilhjálmsdóttir sem stóð
á bakvið hrekkinn en Logi hefur
hrekkt hana með margvíslegum
hætti síðustu ár. Eins og flestir
vita er Logi Bergmann alræmdur
hrekkjalómur sjálfur og lætur sér
þetta kannski að kenningu verða.
Klukka og syngja með rauð nef
Mikið um dýrðir á degi rauða nefsins
Á
takið dagur rauða nefsins, ver-
kefni UNICEF, nær hámarki í
kvöld í skemmti- og söfnunar-
þætti á RÚV. Útsendingin hefst
strax að loknum kvöldfréttum og
mun fjöldinn allur af listamönnum
koma fram og skemmta landsmönn-
um. UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna) hefur í tæpa sjö áratugi ver-
ið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í
heiminum og treysta á frjáls framlög
fjár til að viðhalda starfi sínu í 190 ríkj-
um heimsins.
Einnig verður sýnt frá ferð Ólafs
Darra Ólafssonar, leikara og heims-
foreldris til Madagaskar en þangað fór
hann til að kynna sér baráttu UNICEF
fyrir velferð barna, baráttu sem heims-
foreldrar UNICEF taka virkan þátt í,
líkt og DV greindi frá á miðvikudag.
„Það eru alltaf forréttindi að fá að
koma í aðra menningu og sjá hvað fólk
í öðrum löndum býr við. Madagaskar
er afskaplega fátækt land en stór-
kostlegt á sinn hátt og það var mjög
forvitnilegt að fá að fara þangað og
fá að kynna sér starf UNICEF,“ sagði
Ólafur Darri, en hann er að störfum í
Bandaríkjunum um þessar mundir.
Allir sem koma að verkefninu á
föstudag gera það í sjálfboðavinnu.
Aðalkynnar kvöldsins eru þau Ein-
ar Þorsteinsson og Guðrún Dís Emils-
dóttir sem halda um taumana í stúdíói
en í símaveri Vodafone munu Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir, Salka Sól
Eyfeld og Benedikt Valsson standa
vaktina. Fannar Sveinsson og Jóhann
Alfreð Kristinsson munu bregða á leik
og klukka mann og annan til að vekja
athygli á fjáröflunarverkefninu.
Páll Óskar Hjálmtýsson mun vera
með tónlistaratriði auk þess sem
þeir Kenneth Máni, Björn Bragi, Þor-
steinn Guðmundsson og Dóri DNA
munu vera með uppistand. Þá hafa
Pollapönksmeðlimir og Reykjavíkur-
dætur samið saman lagið Tabula rasa
sem þau munu flytja í útsendingunni
sem hefst klukkan 19.30 í kvöld. n
klukk Hluti af fjáröflun fyrir dag rauða nefsins er að klukka fólk til að taka þátt. Hér klukkar
Páll Óskar.
Krefst
kjúklinga-
dansins
Flestir þeirra sem tekið hafa að
sér að þeyta plötum í margmenni
kannast við þann hvimleiða og
þreytandi sið sumra að biðja um
óskalag. Plötuspilarinn Marge-
ir Ingólfsson, betur þekktur sem
einfaldlega DJ Margeir, hefur
komið með skothelt ráð til að
fækka beiðnum um „Nínu“ eða
„Bat out of Hell“. „Viltu óskalag?
Þá bið ég í staðinn um óskadans
... t.d. kjúklingadansinn. Allir
sáttir og massa stuð á dansgólf-
inu! með vinsemd og virðingu,“
skrifaði Margeir í stöðuuppfærslu
á Facebook á dögunum.