Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Qupperneq 6
6 Fréttir Helgarblað 11.–14. júlí 2014
„Aldrei kallað eftir
sérstakri leynd“
n Stórfyrirtækin vilja að TiSA-viðræðum ljúki sem fyrst
F
ulltrúar Sviss, Noregs, Banda-
ríkjanna og Evrópusam-
bandsins buðu Íslandi að
taka þátt í viðræðum um auk-
ið frelsi í þjónustuviðskipt-
um árið 2012 og ræddu málið við
íslenska embættismenn. Þetta kem-
ur fram í minnisblaði utanríkisráðu-
neytisins frá 8. nóvember sama ár.
„Í því skjali er ekki minnst á TISA.
Hins vegar er þar tillaga til mín, sem
ég samþykkti um að Íslendingar
tækju þátt í hópi, óformlegum, inn-
an WTO,“ skrifar Össur Skarphéð-
insson, sem á þessum tíma gegndi
embætti utanríkisráðherra, í tölvu-
pósti til DV. „Það er væntanlega fyrsti
spretturinn að því sem auðkennt er
sem TiSA í skjölunum frá Wikileaks.“
Wikileaks-skjölin sem Össur vís-
ar til fjalla um þá hlið samningsins er
snýr að fjármálaþjónustu á alþjóða-
mörkuðum. Líkt og DV hefur áður
greint frá gefa þau vísbendingar um
að stefnt sé að því að takmarka mjög
möguleika ríkisstjórna og þjóðþinga
til að setja lög og reglur um fjár-
festingar og umhverfis- og öryggis-
mál.
Mjög góðir vinir
Sá óformlegi hópur sem minnis-
blað utanríkisráðuneytisins fjallar
um var kallaður Really Good Friends
of Services og samanstóð í fyrstu af
16 ríkjum. Ferlið var opið öllum að-
ildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar og fljótlega bættust fleiri í
hópinn, þar á meðal Ísland.
Í minnisblaðinu er bent á að
Doha-viðræðurnar um afnám við-
skiptahafta hafi tafist mjög og skilað
litlum árangri. Þess vegna vilji ríkin
láta reyna á viðræður um að ganga
lengra í losun viðskiptahafta en gert
er í almenna þjónustuviðskipta-
samningnum (GATS) frá 1995.
Í ljósi þess að þjónustuviðskipti
gegna æ mikilvægara hlutverki fyrir
Ísland töldu embættismenn heppi-
legt að stökkva á vagninn. Samstarf
á þessu sviði gæti auðveldað íslensk-
um stjórnvöldum að meta og tryggja
framtíðarhagsmuni Íslendinga í
öðrum viðræðum sem fram undan
væru.
Engin þörf á leynd
„Aldrei var talað um neina sérstaka
leynd, hvorki í minnisblaðinu, né af
hálfu embættismanna,“ segir Össur
og bætir við: „Í minni tíð var aldrei
kallað eftir neinni sérstakri leynd af
Íslands hálfu, né gagnvart Íslandi,
enda engin þörf á henni miðað við
þær upplýsingar sem voru um málið
á mínu borði.“
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra hefur fullyrt í viðtöl-
um að engin leynd hvíli yfir TiSA-
viðræðunum og samningsafstöðu
Íslands. Þrátt fyrir þetta hefur ekki
verið fjallað um viðræðurnar í ut-
anríkismálanefnd og skjalið sem
Wikileaks birti átti, samkvæmt texta
á forsíðu þess, ekki að koma fyr-
ir sjónir almennings fyrr en fimm
árum eftir gildistöku samningsins.
DV óskaði eftir aðgangi að minn-
isblaði utanríkisráðuneytisins, en
beiðninni var synjað að öðru leyti
en því að blaðamanni var sent skjá-
skot af fyrstu blaðsíðu skjalsins þar
sem sjá má undirskrift Össurar.
Team TiSA!
Ekki hefur komið fram hvaða ís-
lensku fyrirtæki það eru sem haft
hefur verið samráð við vegna
TiSA-viðræðnanna. Hins vegar er
ljóst að fjöldi alþjóðlegra stórfyr-
irtækja sækir hart að viðræðunum
ljúki sem allra fyrst. Til að mynda
hafa tugir stórfyrirtækja gerst aðil-
ar að bandalaginu Team TiSA sem
styður viðræðurnar og berst fyr-
ir afnámi viðskiptahafta. Þeirra á
meðal eru AIG, Citigroup, Google,
IBM, JPMorgan Case, Mastercard,
Microsoft, Visa og Walmart.
Úr öðrum áttum heyrast efa-
semdaraddir. Í fyrra skrifuðu um
350 verkalýðsfélög, frjáls félaga-
samtök og hreyfingar frá meira en
100 löndum undir harðorða yfir-
lýsingu gegn viðræðunum þar sem
fullyrt er að stefnan sé tekin á harða
markaðshyggju á kostnað verka-
fólks, neytenda, bænda og um-
hverfisins. Fyrst og fremst sé samið
í þágu fyrirtækja og fjárfesta.
Í tilkynningu á vef utanríkis-
ráðuneytisins kemur fram að við-
ræðurnar miði að því að vernda
hagsmuni fyrirtækja á þjónustu-
markaði. Þar er hins vegar hvorki
minnst á hagsmuni neytenda né
launafólks. n
Hvað er TiSA?
TiSA-viðræðurnar eru samningaferli
sem miðar að auknu frelsi í þjónustu-
viðskiptum. Um 50 ríki eiga aðild að
viðræðunum, meðal annars aðildarríki
Evrópusambandsins, Bandaríkin, Ástr-
alía, Kanada, Noregur, Sviss og Japan.
Enn sem komið er falla viðræðurnar ekki
undir kerfi Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar og eru þær því leynilegri en venjan
er. Á vef utanríkisráðuneytisins kemur
fram að samningurinn muni þó byggjast
á reglum GATS (General Agreement on
Trade in Services) og fjalla sérstaklega
um sjóflutninga, orkumál, fjármagns-
þjónustu, fjarskipti, aðgang þjónustu-
veitenda og rafræn viðskipti.
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Skjöl í dagsljósið
Wikileaks-samtökin
birtu leyniskjöl úr
TiSA-viðræðunum í
lok júní. Mynd REuTERS
Fyrrverandi og núverandi
Þátttaka í TiSA-viðræðunum
er talin auðvelda stjórnvöldum
að meta og tryggja framtíðar-
hagsmuni Íslands, enda taka öll
helstu viðskiptaríki okkar þátt
í viðræðunum. Ísland stökk á
vagninn í ráðherratíð Össurar
og Gunnar Bragi heldur áfram á
sömu braut. Mynd PRESSPhoToS.biz
Ökklabrotnaði í
leikfimitíma
Íslenska ríkið er skaðabóta-
skylt vegna slyss sem nemandi
Menntaskólans í Reykjavík varð
fyrir í leikfimitíma í mars 2008.
Þetta er niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur sem kvað upp dóm í
málinu á fimmtudag.
Slysið varð í leikfimitíma í
Hljómskálagarðinum í Reykjavík.
Var nemandinn þá ásamt fleiri
nemendum við knattspyrnuiðkan
á vegum skólans. Þegar skammt
var liðið af tímanum rann nem-
andinn sem um ræðir til í hálku
eða misfellu, féll í jörðina og slas-
aðist illa á hægri fæti. Við skoðun
á slysadeild Landspítala kom í
ljós að hægri ökklinn var illa af-
myndaður og sýndi röntgen-
rannsókn brot á sperrilegg og að
nemandinn hefði slitið liðbönd í
hægri ökkla við fallið. Stefnandi
gekkst undir aðgerð og var brotið
fest með tveimur skrúfum.
Fyrir dómi kom fram að nem-
andinn hefði misst átta vikur úr
skóla og orðið af sumarvinnu
árið 2008 vegna slyssins. Þá hefði
hann þjáðst af stöðugum verkjum
í ökkla eftir slysið og verkirnir far-
ið versnandi við álag. Þá var bent
á að íþróttakennarinn hafi sýnt
af sér stófellt gáleysi með því að
láta nemendur iðka knattspyrnu
í Hljómskálagarðinum þenn-
an dag – slysahætta hefði verið
augljós. Héraðsdómur tók und-
ir rök nemandans; slysið mætti
rekja til mistaka íþróttakennar-
ans og gáleysis hans. Var skaða-
bótaskyldan því viðurkennd.
Gjafsóknarkostnaður stefnanda,
1.393 þúsund krónur, greiðir ís-
lenska ríkið.
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5