Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 42
42 Skrýtið Helgarblað 11.–14. júlí 2014
1 Loftbóluhús Staður: Í suðvesturhluta Frakklands.
Verð: 1 milljarðar króna. Þetta hús byggði Antti Lovag í mótþróaskyni við
venjur og siði í arkitektúr. Eins og sjá má vann höfundurinn með óvenjuleg
form í húsasmíði en húsið kallast Palace of Bubbles. 28 svefnherbergi er að
finna í húsunum. Þó að húsið hafi verið reist 1989, og sé því ekki mjög gamalt,
er það komið á minjaskrá hjá menningarmálaráðuneyti Frakklands.
Viltu búa í klósetti?
n Tíu af óvenjulegustu húsum veraldar n Hvað kostar að búa í hundi?
Þ
að að kaupa hús er jafn-
an stærsta fjárfesting sem
venjulegt fólk ræðst í, hvort
sem það byggir sér einbýl-
ishús frá grunni eða kaup-
ir sér blokkaríbúð í úthverfi. Flest
hús eru byggð eftir hefðbundnum
byggingarreglum og venjum á meðan
önnur eru að einhverju leyti óvenju-
leg. Húsin sem hér eru talin upp til-
heyra svo sannarlega síðarnefnda
hópnum, svo vægt sé til orða tekið.
Húsin minna flest á hluti úr hvers-
dagslífinu; svo sem grænmeti, dýr
eða náttúrufyrirbrigði. Financeon-
line birti tíu framúrstefnuleg hús sem
kosta mörg hver sitt. Hér eru þau. n
10 Geimskipið Staður: Tennessee, Bandaríkjunum.
Verð: 13,4 milljónir króna. Aðdáendur vísindaskáldskapar hvers konar ættu að hafa áhuga á þessu húsi. Húsið
er í Tennessee í Bandaríkjunum og kostar skildinginn. Húsið er hannað með það fyrir augum að það líti út eins og
geimskip frá sjöunda eða áttunda áratugnum – eins og menn töldu að geimskip litu út á þeim tíma. Húsið er 186
fermetrar og í því eru þrjú svefnherbergi. Í þessu óvenjulega húsi eru tvö baðherbergi. Stiginn upp í húsið lítur út eins
og rampur úr geimskipinu. Húsið stendur á bökkum Tennessee-árinnar og úr því er afar gott og mikið útsýni yfir ána.
Það er auk þess á mjög hagstæðu verði.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
9 Skóhús Staður: Pennsylvanía, Bandaríkjunum.
Verð: 14,3 milljónir króna. Þetta hús lítur út eins og úr ævintýri, eins og sum þeirra hér. Húsið var byggt árið 1948 af
skósalanum Mahlon Haines, sem hannaði það í auglýsingaskyni. Hann fór til arkitekts með skó í höndunum og bað
hann að hanna hús sem liti alveg eins út – eða svo segir sagan. Útkomuna má sjá hér. Upphaflegir eigendur bjuggu
lengst af í húsinu en það er nú í eigu fólks sem rekur það eins og safn – hefur opið hús. Fólkið heitir Carleen og
Ronald Farabaugh en húsið keyptu þau árið 2004 og eru að sögn alsæl með athyglina sem það fær.
8 Kuðungshús Staður: Mexíkóborg
Verð: 24,6 milljónir króna. Húsið er hugsmíð arkitektsins Javier Senosiain, sem einbeitir sér
að einhverju sem kalla mætti líf-arkitektúr (e. Bio-Architecture). Markmið hans er að fólk
upplifi sig sem hluta af náttúrunni. Í húsinu eru marglitir gluggar, eins og glöggt má sjá,
þannig að upplifunin verður óvenjuleg.
7 Sveppahús Staður: Ohio, Bandaríkjunum. Verð: 39,4 milljónir króna. Sumar þjóðsögur halda því fram
að sveppir geti verið heimili álfa. Terry Brown, prófessor í arkitektúr við Cincinnati-háskólann, er
höfundur þeirrar hönnunar sem hér gefur að líta. Hann byggði húsið árið 1992 og bjó þar með annan
fótinn til ársins 2006. Húsið var afar flókin smíð og það er búið til úr ýmsum tegundum byggingar-
efnis; gleri, viði, skel og leir. Þess má geta að húsið er til sölu og fæst fyrir tæplega 40 milljónir.
6 Hundahús Staður: Idaho, Bandaríkjunum.
Verð: 113 milljónir króna. Í þessu fáránlega húsi eru tvö svefnherbergi, merki-
legt nokk. Hjónin Dennis Sullivan og Frances Conklin byggðu húsið en þau
notuðu keðjusög til verksins. Þau hafa lífsviðurværi af því að skera út hunda
úr viði og selja.
5 Klósetthús Staður: Suður-Kórea
Verð: 124 milljónir króna. Það er erfitt að hugsa sér einhvern sem myndi vilja skrá
sig til heimilis í klósetti. Það er einmitt það sem Sim Jae-Duck, fyrrverandi borg-
arstjóri Suwon í Suður-Kóreu, hefur gert. Sim heldur því fram að hann hafi fæðst
inni á baðherbergi sem skýrir ef til vill blæti hans. Húsið, sem er tveggja hæða,
byggði hann árið 2007, til heiðurs stofnfundi World Toilet Association. Húsið er
420 fermetrar að stærð.
4 Volkswagen-bjöllu-hús Staður: Austurríki
Verð: 158 milljónir króna. Byggingameistarinn Markus Volgreiter, frá Gigi í Aust-
urríki, er eigandi þessa stórundarlega húss, sem lítur út eins og Volkswagen-
bjalla. Hann lauk við byggingu hússins 2003. Húsið er ekki aðeins framúrstefnu-
legt í útliti heldur er það einnig umhverfisvænt, ef svo má segja, og er búið
orkusparandi rafkerfi. Ekki fylgir sögunni hvers vegna hann byggði sér svona
hús, en leiða má líkur að því að hann sé aðdáandi bjöllunnar frá Volkswagen.
3 Húsið á fossinum Staður: Pennsylvanía, Bandaríkjunum.
Verð: 305 milljónir króna. Þetta óvenjulega en fallega hús var hannað af
þekktasta arkitektinum í Ameríku, Frank Lloyd Wright. Húsið teiknaði hann
fyrir Kaufmann-fjölskylduna en það er byggt yfir fossi. Húsið var hugsað
sem sumarhús fyrir fjölskylduna en það var reist á árunum 1936 til 1939 og er
viðurkennt kennileiti (National Historic Landmark) af Bandaríkjastjórn.
2 Stálhús Staður: Texas, Bandaríkjunum.
Verð: 339 milljónir króna. Þetta óvenjulega hús í Ransom Canyon í Texas-ríki
er samansett úr um 110 tonnum af stáli og tók heil 23 ár í byggingu. Maður
tekur svo glatt niður vegg. Arkitektinn og listamaðurinn Robert Bruno
byggði húsið. Í fyrra birtist umfjöllun um húsið í Vogue-tímaritinu en þess má
geta að Bruno lést árið 2008.