Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 11
Helgarblað 11.–14. júlí 2014 Fréttir 11
Flestir vilja rögnu á Bessastaði
Andri Snær Magnason
rithöfundur
„Þegar hann talar þá hlusta
ég. Hefur látið til sín taka í
umhverfismálum, minnir okkur
stöðugt á það sem skiptir máli,
það er landið sem við byggjum
og framtíð barnanna okkar.
Það sem hann boðar á heima á
Bessastöðum.“
Viðar Eggertsson
útvarpsleikstjóri
„Hann hefur þessa fáguðu
framkomu sem margir kjós-
endur horfa á. Viðar er þrælklár
og ber með sér að vera töluvert
ígrundaðri en margir aðrir sem
tjá sig í opinberri umræðu. Viðar
gæti höfðað til þeirra sem bera enn
virðingu fyrir embætti forseta.“
Hörður Torfason
tónlistarmaður
„Hann hefur tekið þá
marga slagina yfir ævina
og oftar en ekki unnið
að lokum. Hann kom út
sem hómósexúalisti, eins
og það var kallað, í viðtali árið
1975 en þá þegar var hann vinsæll
tónlistarmaður og leikstjóri. Hann tók þann slag af
kurteisi og stóískri ró þrátt fyrir ofsóknir, barsmíðar
og alla þá lágkúru sem samfélagið kastaði í hann.
Sigurinn fólst í viðurkenningu á tilvistarrétti hans og
annars hinsegin fólks. Það er slagur sem Hörður vann
þótt áratugir liðu.“
Ari Trausti Guðmundsson
jarðfræðingur og rithöfundur
„Hann er fjölfróður og afar vandvirkur,
skipulagður og afkastamikill í öllu því sem
hann tekur sér fyrir hendur og lagði þær línur
2012 að feta gullinn meðalveg í því hvernig hann myndi
rækja embættisskyldur sínar af yfirvegun, festu og lagni.“
Þorsteinn Pálsson
fyrrv. forsætisráðherra og
þingmaður
„Þorsteinn býr yfir óvenju
fjölþættri reynslu á mörgum
sviðum sem fjölmiðlamaður og
ritstjóri, forystumaður í stjórn-
málum, ráðherra og sendiherra, er
góður ræðumaður, afar traustvekj-
andi, kurteis, fríður sýnum og kemur vel fyrir.“
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands
„Ekki má afskrifa að það sama gerist
og 2012 að Ólafur Ragnar fari fram.
Ólafur verður 73 ára 2016 og margir
þjóðhöfðingjar og forystumenn þjóða
hafa verið í fullu fjöri á þeim aldri.“
Gerður Kristný
rithöfundur
„Gáfuð, geðþekk, vel lesin,
víðförul og í alla staði frá-
bær fyrirmynd. Prinsessan á
heima á Bessastöðum.“
Kristín Ingólfsdóttir
rektor Háskóla Íslands
„Kristín er ótrúlega klár og
flott kona sem kann svo
sannarlega að koma fram og
ég gæti alveg
ímyndað
mér að
í henni
gætum við
átt gott sameiningartákn. Hún
kemur úr akademíunni, ekki úr
pólitíkinni, og ég held að það
gæti unnið með henni.“
3. Þóra Arnórsdóttir
n „Klár, kröftug og dugleg kona. Hún býr yfir gagnrýnni hugsun, er spreng-
lærð og margtyngd. Hún býr yfir reynslu af forsetaframboði og er þekkt and-
lit. Þóra er án nokkurs vafa sá aðili sem á hvað mest í forsetabankanum ef
hún nennir á annað borð að leggja á sig annað framboð. Það þarf nefnilega
ekkert að vera. Þóru fylgir svo djúsí aukabiti með sem er Svavar Halldórs-
son, eiginmaður hennar. Get hugsað mér margt leiðinlegra en að hafa þann
mann sem maka forsetans.“
n „Hún stóð sig mjög vel í síðustu baráttu og myndi vafalaust gera það
áfram.“
n „Það væri gaman að sjá Þóru Arnórs fara aftur í framboð. Það var auðvitað
erfitt fyrir hana að fara gegn sitjandi forseta, en hún átti góðan séns síðast og
ég held að hún gæti orðið mjög sigurstrangleg.“
4.-5. Katrín Jakobsdóttir
n „Ef það er einhver manneskja sem Íslendingar virðast geta sameinast um
að elska þá er það Katrín Jakobsdóttir. Þrátt fyrir að gegna afar mikilvægu
hlutverki inni á þinginu, væri gaman að sjá hana beita sér fyrir mannréttind-
um á alþjóðavettvangi. Ung, fersk og eldklár myndi Kata Jak sjarmera heim-
inn.“
n „Þrátt fyrir ungan aldur nýtur Katrín meira trausts miðað við stærð flokks
síns en nokkur annar íslenskur stjórnmálamaður. Að baki svo óvenjulega
miklu trausti hljóta að búa kjörþokki og persónutöfrar. Hún er skarpgáfuð,
kemur vel fyrir og er vel sjóuð í íslenskri pólitík sem alþingismaður, ráðherra
og formaður flokks, en það hlýtur að vera stór kostur við að gegna embætti,
sem búið er að slá föstu að feli í sér það talsvert vald þegar mikið liggur við,
að gott sé að forsetinn sé vel að sér og hæfileikaríkur. Hún myndi verða til
mikils sóma og vekja athygli á landi og þjóð á erlendum vettvangi og reynsla
hennar er næg til að hún geti valdið embættinu með glæsibrag, þótt ýmsir
kunni að telja það vera ókost hve ung hún er, 36 ára árið 2016.“
Álitsgjafar
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður
Stígur Helgason
starfsmaður Plain Vanilla
Samúel Karl Ólason
blaðamaður
Atli Þór Fanndal
blaðamaður
Sindri Sindrason
sjónvarpsmaður
Guðrún Dís Emilsdóttir
útvarpskona
Silja Bára Ómarsdóttir
stjórnmálafræðingur
María Lilja Þrastardóttir
blaðamaður
Anna Kristjánsdóttir
vélfræðingur
Ómar Ragnarsson
sjónvarpsmaður
Björk Eiðsdóttir
ritstjóri
María Rut Kristinsdóttir
starfsmaður GOmobile
4.-5. Bogi Ágústsson
n „Öruggur, fróður, skemmtilegur og óumdeildur í alla staði. Væri
flottur forseti.“
n „Bogi Ágústsson er mjög frambærilegur kandídat til embættis for-
seta Íslands og hefur notið vaxandi álits, virðingar, trausts og vinsælda
um langt skeið sem vandaður, hæfileikaríkur og fjölfróður fréttamað-
ur, dagskrárgerðarmaður og fréttaþulur. Fáir hafa jafn góða nærveru
og eru jafn miklir aufúsugestir á heimilum allra landsmanna og hann
þegar hann birtist á skjánum. Starfsferill hans er óvenju fjölbreyttur
innanlands og utan, bæði hjá RÚV og annars staðar. Erlend og inn-
lend samskipti leika í höndum hans og sem fréttastjóri og fréttamaður
er hann gagnkunnugur íslensku þjóðlífi, stjórnmálum og menningu.
Menntun hans sem sagnfræðingur og þekking hans og áhugi á því
sviði auk góðrar tungumálakunnáttu er gagnleg fyrir forseta.“