Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 21
Helgarblað 11.–14. júlí 2014 Fréttir 21
Vildi fjarlægja
myndbandið
Sindri Þór hraunaði yfir framkvæmdaráð í beinni
Á
dögunum fjallaði DV um
skyndilega uppsögn fram-
kvæmdastjóra Pírata, Sindra
Þórs Hilmarssonar. Þá var
sagt að samskipti milli
hans og framkvæmdaráðs hafi ver-
ið stirð, en nú hefur komið í ljós að
þar var heldur vægt til orða tek-
ið. Í tölvupósti til framkvæmdaráðs
krafðist Sindri þess að átakafundur
hinn 25. júní síðastliðinn væri rit-
skoðaður og myndband af fundin-
um „fjarlægt af internetinu“. Jason
Scott Katz, stjórnarmaður í fram-
kvæmdaráði, spyr Sindra í svari við
tölvupósti hans hvort honum finn-
ist viðeigandi að segja einhverjum,
vitandi það að upptaka sé í gangi, að
„sleikja á sér rassgatið“ svo lengi sem
hann hafi réttlætingu fyrir því. Björn
Leví Gunnarsson, formaður fram-
kvæmdaráðs, segir í samtali við DV
að úrslitakostir Sindra hafa verið til
þess að honum hafi verið sagt upp.
Úrslitakostur til
framkvæmdaráðs
Björn Leví segir að ein helsta ástæð-
an fyrir því að Sindri hafi ver-
ið rekinn séu kröfur hans gagn-
vart framkvæmdaráði. Í tölvupósti
til framkvæmdaráðs vísar Sindri
til laga um persónuvernd og krefst
þess að myndbandið af fundin-
um verði fjarlægt samdægurs. „Ég
fer hér með fram á að upptaka frá
fundi framkvæmdaráðs í gærkvöldi,
25/06/2014, verði tafarlaust fjarlægð
af internetinu og henni varanlega
eytt, eigi síðar en á miðnætti í
kvöld 26/06/2014,“ skrifaði Sindri.
Björn Leví segir að þetta sé ekki eini
úrslitakostur sem Sindri hefur krafist
af framkvæmdaráði.
Ekki í jafnvægi
Sindri skýrir í tölvupóstinum til fram-
kvæmdaráðs að hann hafi ekki verið
í tilfinningalegu jafnvægi á fundin-
um. Hann segist hafa verið sakað-
ur um ýmislegt misjafnt sem gæti
kastað rýrð á sig og orðið til miska.
„Á fundinum var rætt um persónu-
legar ásakanir á hendur mér, starfs-
manns félagsins, um brot í starfi;
ásakanir á borð við lygar og að upp-
fylla ekki starfsskyldur. Þetta er mér
gert að svara fyrir á myndbandsupp-
töku sem streymt var á internetið og
er nú öllum aðgengileg, mögulega
um ókomna tíð,“ skrifar Sindri. Hann
telur að þessum hluta fundarins hafi
ekki átt að streyma.
„Píratar í Reykjavík lýstu
allsherjarstríði á hendur mér“
Í tölvupóstsamskiptum milli Sindra
og framkvæmdaráðs eru úrslitakost-
ir hans harðlega gagnrýndir. Sindri
svarar þar ákveðið fyrir sig og sína
afstöðu og neitar hann að afsaka
sína hegðun nema framkvæmda-
ráð biðji hann afsökunar. „Það að ég
hafi misst stjórn á skapi mínu í gær
varð að hápunkti í atburðarás sem
er að miklu leyti framkvæmdaráði
að kenna. Ef framkvæmdaráð hefði
sýnt ákveðna viðleitni til að standa
með mér þegar Píratar í Reykjavík
lýstu allsherjarstríði á hendur mér
þá hefði mér, mögulega, ekki þótt
ástæða fyrir því að svara fyrir mig,“
skrifar Sindri á ensku. DV ræddi við
tvo háttsetta meðlimi Pírata í Reykja-
vík vegna þessarar orða Sindra.
Hvorugur þeirra vildi tjá sig um mál-
ið umfram það að umrædd orð vís-
uðu ekki í ákveðinn atburð heldur
almenna samstarfserfiðleika fram-
boðsins í Reykjavík við fráfarandi
framkvæmdastjóra.
Brást ekki vel við gagnrýni
„Já, hann segir okkur eiginlega að
hoppa upp í rassgatið á okkur. Það
voru einhverjir sem voru ekki alveg
sáttir við ýmsa stjórnun varðandi
styrki til aðildarfélaga fyrir kosningar.
Einn úr framkvæmdaráði var að bera
það ósætti áfram, með kannski að-
eins hærri rödd en þurfti, og Sindri
brást ekki vel við þeirri gagnrýni,“
segir Björn Leví í samtali við DV.
Líkt og fram hefur komið áður voru
það þó samskipti Sindra eftir fund-
inn, fremur en fúkyrðin á fundin-
um, sem urðu til þess að honum var
sagt upp störfum. „Í framhaldi af því
komu upp fleiri samskipti sem gerðu
það að verkum að við treystum okk-
ur ekki til að halda áfram í því sam-
starfi og sannfærðumst um það að
framkvæmdastjórastaða hentaði
ekki Pírötum.“
Vilja forðast skaðabótaskyldu
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, jafnt
á samskiptamiðlum sem og í síma,
náðist ekki í Sindra við vinnslu frétt-
ar. Bæði Björn Leví sem og Björn
Þór Jóhannesson, stjórnarmaður
í framkvæmdaráði og sá sem sér
um streymi af fundum, voru reiðu-
búnir að afhenda DV myndbandið.
Það strandaði þó á því að Pírat-
ar vildu ekki skapa sér skaðabóta-
skyldu þar sem Sindri hafði sent
formlega beiðni um að upptakan
yrði tekin úr umferð. „Vandamálið
er að þar sem ekki var leitast við að
fá sérstakt samþykki fyrir strauminn
þótt öllum hafi þó verið ljóst að ver-
ið var að streyma fundinum er dá-
lítið óljóst hver heimild okkar er til
þess,“ skrifaði Björn Þór vegna fyr-
irspurnar DV. Píratar segjast ætla
að skoða verklagsreglur í kringum
upptökurnar svo þessi staða komi
ekki aftur upp. n hjalmar@dv.is
Formaður framkvæmdaráðs Björn
Leví segir að fúkyrði Sindra hafi ekki orðið
honum að falli. Kröfur hans um að mynd-
band yrði tekið úr umferð vógu þar þyngra.
Var ekki í jafnvægi
Sindri skrifar í tölvupósti
að hann hafi ekki verið í
jafnvægi á átakafundinum
þar sem hann segist hafa
verið að verjast röngum
ásökunum.
„Það að ég
hafi misst
stjórn á skapi
mínu í gær varð
að hápunkti í at-
burðarás
„Hann segir
okkur eigin-
lega að hoppa upp
í rassgatið á okkur
„Hann var einn af
þeim flottustu“
n Fjölskylda og vinir syrgja Andra Frey sem lést í slysi á Spáni n Lýsa honum sem góðum og metnaðarfullum dreng
tæki fyrir sætið og hann fellur úr
tækinu,“ segir í yfirlýsingunni.
Norskur læknir veitti fyrstu hjálp
Það var norskur læknir sem var
einnig farþegi í tækinu sem veitti
Andra Frey fyrstu hjálp og naut
aðstoðar starfsfólksins í garðin-
um. Sjúkrabíll var ekki á svæðinu
og því þurfti Andri að bíða í um 25
mínútur eftir því að hann kæmi í
garðinn. „Þegar sjúkrabíllinn kom
loks lést sonur okkar inni í honum,
á meðan hann var enn inni á svæð-
inu og var Andri Freyr því aldrei
fluttur á sjúkrahús,“ segir í sameig-
inlegri yfirlýsingu foreldra Andra
Freys. Slys sem þessi eru ekki al-
geng og hefur málið því vakið mikla
athygli.
Terra Mítica-skemmtigarðurinn
er enn opinn þó ekki sé heimilt
að fara í Inferno-rússíbanann sem
hefur verið eitt vinsælasta tækið í
garðinum. Sambærilegum rússí-
bönum hefur verið lokað, til dæmis
í Stokkhólmi og Helsinki. Inferno-
rússíbaninn er 25 metra hár og nær
60 kílómetra hraða á klukkustund.
Hann er framleiddur af þýska fyrir-
tækinu Stengel Engineering. Rann-
sókn er nú í gangi þar sem leitast er
við að finna orsök slyssins.
„Viljum bara fá hann heim“
Systkini Andra Freys hafa nú komið
aftur til Íslands en eftir á Spáni urðu
faðir Andra Freys og stjúpmóð-
ir hans auk frænku Andra Freys.
Þau hafa séð um allt sem viðkemur
málinu á Spáni og bíða þess að geta
komið til Íslands. „Það er erfitt fyrir
þau að vera svona langt í burtu og
sjá um þetta. Þetta er mjög mikið
álag,“ segir hún. Fjölskyldan reynir
að þjappa sér saman og hugsa vel
um hvert annað. Systkini Andra eru
mörg og það þarf að hlúa að þeim,
segir Harpa.
„Við viljum bara fá hann heim.
Það eina sem við erum að hugsa
um núna er að koma barninu okk-
ar heim. Það er í forgangi núna,“
endurtekur Harpa sem bendir á
að það sé erfitt að ganga í gegnum
sorgarferli þegar það er svo margt
sem þarf að huga að bæði hér á
landi og á Spáni. Óvissan er enn
mikil og erfitt er fyrir fjölskylduna
að eiga við stjórnkerfi í öðru ríki
þar sem þau þekkja ekki aðstæður,
venjur og reglur. „Vonandi fer þessu
að ljúka. Þau vilja fara að komast
heim, þetta er mikið álag,“ segir
Harpa en á fimmtudag ætluðu þau
að taka daginn til þess að reyna að
ná áttum eftir annasama daga. n
Inferno Inferno-rússíbaninn er 25 metra hár og nær 60 km hraða á klukkustund. Hann
er framleiddur af þýska fyrirtækinu Stengel Engineering. Andri sat aftast í tækinu þegar
hann féll úr því.
Voru á Spáni Andri Freyr Sveinsson var á Spáni með fjölskyldu sinni. Þau höfðu ætlað
að vera á löngu ferðalagi þar.