Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Síða 24
Helgarblað 11.–14. júlí 201424 Fréttir Erlent
Afhjúpaði níðinginn
í ritgerð í skólanum
n Sagðist hafa orðið fyrir grófu ofbeldi 8 ára gömul n Dæmdur í 18 ára fangelsi
B
andarískur karlmaður, Albert
Tarrats, var í vikunni dæmd-
ur í átján ára fangelsi fyrir
að nauðga stjúpdóttur sinni.
Málið vakti talsverða athygli
þegar það kom upp árið 2012 því ekki
komst upp um gjörðir mannsins fyrr
en fórnarlamb hans, stjúpdóttirin,
skrifaði um þær í ritgerð í skólanum.
Þá fóru hjólin að snúast og lauk mál-
inu á mánudag þegar níðingurinn var
dæmdur.
Ítrekað nauðgað
Albert, sem er 62 ára, verður að lík-
indum áttræður þegar hann losn-
ar úr grjótinu. Hann neitaði staðfast-
lega sök fyrir dómi í New York þar
sem málið var til meðferðar. „Það var
aldrei nein misnotkun. Hann særði
aldrei stjúpdóttur sína,“ sagði verj-
andi mannsins í yfirlýsingu áður en
dómur var kveðinn upp. Sem fyrr seg-
ir komst málið upp árið 2012 þegar
stjúpdóttir hans, sem nú er 18 ára,
og samnemendur hennar fengu það
verkefni í skólanum að skrifa ritgerð
um einhverja erfiðleika á lífsleiðinni.
Stúlkan, sem ekki er nafngreind í um-
fjöllun Reuters til að vernda hags-
muni hennar, skrifaði um það í rit-
gerðinni að sér hefði ítrekað verið
nauðgað árið 2003, þegar hún var átta
ára gömul. Tarrats var sem fyrr segir
stjúpfaðir stúlkunnar og lýsti hún því
í ritgerðinni að allt hafi leikið í lyndi
framan af í sambandi hans og móð-
ur hans. Þegar brestir komu í sam-
bandið hafi hann snúið sér að henni
og beitt hana ofbeldi.
Ákveðin lokun
Ritgerðin komst aldrei í hendur
kennara stúlkunnar því áður en hún
skilaði ritgerðinni las móðir henn-
ar hana yfir. Strax í kjölfarið hringdi
hún í hjálparlínu fyrir fórnarlömb
kynferðisbrota og leitaði ráða. Þaðan
fór málið til lögreglu sem hóf rann-
sókn málsins. Sjálf var stúlkan ekki
viðstödd réttarhöldin en sagði í yfir-
lýsingu til dómsins að hún færi fram
á að Albert fengi hámarksrefsingu
fyrir brot sín. Hámarksrefsing í mál-
um sem þessum í New York er 25
ára fangelsi. Þá sagði hún í yfirlýs-
ingunni að það að stíga fram, bæði í
ritgerðinni og í yfirlýsingunni, hefði
veitt henni ákveðna lokun á málinu.
„Það er þungu fargi af mér létt, ég er
hamingjusamari en áður. Ég mun
aldrei gleyma hvað hann gerði mér
en ég mun halda áfram með líf mitt,“
sagði hún og bætti við að Tarrats ætti
það skilið að vera refsað fyrir brot sín.
Beittur ofbeldi í fangelsi
Verjandi Alberts sagði fyrir dómi að
þær lýsingar sem komu fram í rit-
gerðinni hafi verið skáldaðar og þær
til þess fallnar að valda skjólstæðingi
sínum miklum skaða. Síðan mál-
ið kom upp hefur Albert setið í varð-
haldi í fangelsinu á Rikers Island og
sagði verjandi hans að þar hefði hann
mátt þola miklar líkamlegar og and-
legar misþyrmingar af hálfu samfanga
sinna. Málið hefði haft mikil áhrif á
hann og hann væri nú undir sérstakri
vernd fangavarða í fangelsinu. n
„Ég mun aldrei
gleyma hvað hann
gerði mér en ég mun
halda áfram með líf mitt
Dæmdur Albert Tarrats
var dæmdur í 18 ára fangelsi.
Stjúpdóttir hans afhjúpaði
hann í skólaritgerð.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
60 milljónum króna ríkari
Keypti vinningsmiðann 81 sekúndu áður en sölustöðum var lokað
T
uttugu og þriggja ára Norð-
maður frá Tromsö datt í
lukkupottinn í norska lottóinu
á dögunum þegar hann hirti
fyrsta vinning, 3,2 milljónir norskra
króna, sem jafngildir tæpum sextíu
milljónum íslenskum. Það mátti ekki
tæpara standa að fyrsti vinningur
rynni honum úr greipum því 81 sek-
úndu áður en sölustöðum var lokað
keypti hann miðann.
Maðurinn sem um ræðir heit-
ir Ronny Andersen og segir hann í
samtali við dagblaðið iTromsö að
hann hafi verið í grillveislu með fé-
lögum sínum þegar dregið var í
lottóinu. „Ég fór í stórmarkaðinn til
að kaupa mat. Þegar ég kom að af-
greiðslukassanum fékk ég þá hug-
dettu að kaupa miða. Þetta var rétt
fyrir klukkan 18,“ segir hann. Eftir
að hafa borðað grillmatinn hringdi
síminn. Starfsmaður Norsk Tipping
kynnti sig og tjáði Ronny að hann
hefði unnið fyrsta vinning, 3.221.550
krónur norskar. „Ég byrjaði bara að
skjálfa. Þetta var símtal sem ég átti
alls ekki von á,“ segir hann.
Óhætt er að segja að vinningur-
inn komi að góðum notum því
Ronny er í hagfræðinámi í háskólan-
um. Þá veiktist hann alvarlega fyrir
nokkrum árum þegar hann greindist
með krabbamein í öðrum fótleggn-
um. Þrátt fyrir að hafa unnið þann
stóra mætti Ronny til vinnu daginn
eftir, en hann starfar í matvöruversl-
un í hlutastarfi. Þegar hann er spurð-
ur hvað hann ætli að gera við vinn-
ingsféð, segir hann: „Norsk Tipping
hefur ráðlagt mér að íhuga það vand-
lega og ég held ég geri það. Ég er ekki
með ökuréttindi þannig að líklega
byrja ég á að ná mér í þau.“ Þá úti-
lokar hann ekki að bjóða kærustunni
í sumarfrí til útlanda. n einar@dv.is
Milljónamæringur
Ronny Andersen er 60 millj-
ónum íslenskum krónum
ríkari eftir lottóútdráttinn.
Norður-Kórea
kvartar vegna
bíómyndar
Ja Song Nam, sendiherra
Norður-Kóreu hjá Sameinuðu
þjóðunum, sendi í lok júní
kvörtun til Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, vegna kvikmynd-
ar sem bandarísku leikararn-
ir Seth Rogen og James Franco
leika í. Fjallar myndin, sem
heitir the Interview, eða Við-
talið, um bandarískan sjón-
varpsþáttastjórnanda og fram-
leiðanda þáttarins sem fá að
taka viðtal við Kim Jong Un,
leiðtoga Norður-Kóreu. Þeir
eru síðan fengnir til liðs við
bandaríska leyniþjónustu til
þess að myrða Jong Un. „Að
leyfa framleiðslu og dreifingu
á slíkri mynd um morð á ein-
valdi í embætti ætti að líta á
sem hvatningu til hryðjuverka,“
sagði sendiherrann meðal
annars í bréfinu, sem var gert
opinbert í vikunni.
Hátt í 80
drepnir á
Gaza
Hátt í 80 Palestínumenn hafa
verið drepnir í árásum Ísraels-
manna á Gazasvæðið í vikunni
og voru flestir af þeim almenn-
ir borgarar. Átta palestínsk-
ir fjölskyldumeðlimir, þar á
meðal fimm börn, voru drepn-
ir í flugskeytaárás sem lagði í
það minnsta tvö heimili í rúst í
Khan Younis í suðurhluta Gaza,
að sögn palestínska heilbrigð-
isráðuneytisins. Fréttastofa
Reuters greinir frá.
Mikil átök hafa brotist út
á milli Palestínu- og Ísraels-
manna, sem hafa farið stigvax-
andi, síðan þremur ísraelskum
ungmennum var rænt og þau
myrt á hrottafenginn hátt í júní
og palestínskum pilti var rænt
og hann einnig pyntaður og
myrtur.
Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, hefur fordæmt loftárásir
og hvatt Ísraelsmenn til þess að
hafa hemil á sér.
Haft er eftir Yolande Knell,
blaðamanni fréttastofunn-
ar BBC á Gaza, að á venjuleg-
um degi séu göturnar fullar af
fólki og bílum. Núna sé óvenju-
lega mikil þögn á götunum. Hún
segir flest fólk halda sig heima
við til þess að reyna að tryggja
öryggi sitt. Einhverjir séu að
reyna að leggja sig yfir daginn til
þess að bæta upp fyrir tapað-
an svefn eftir hávaðasama nótt
eftir að ísraelsk sjóherskip vörp-
uðu sprengjum á landræmu við
ströndina. Þá nái sjónvarpsfrétt-
ir á staðnum varla að halda í við
fréttir af þéttsetnum sjúkrahús-
um og húsarústum.