Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Qupperneq 29
Umræða 29Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Ég kannaðist við
þessa brunalykt
Þá feng um við öll hálf gert
sjokk
Hér er bara
neyðarástand
– Júlíus Bjarnason hefur tvisvar horft upp á fjölskyldufyrirtækið brenna í Skeifunni. – DV. – Guðmund ur Ómars son var í skemmtigarðinum Terra Mitica þegar banaslysið átti sér stað. – Mbl.is
Þegar Facebook stal framtíðinni
V
ið og við berast fréttir af
tilburðum Facebook til
að njósna um kúnna sína
í þeim erindum að selja
þeim vörur eða jafnvel að
mæla geðslund þeirra. Mörgum er
nóg boðið, en það er ekki endilega
þetta sem er mest ógnvekjandi við
Facebook. Eða við hitt fyrirtækið sem
hefur náð að sölsa undir sig þann
nýja heim sem netið hefur skapað:
Google.
Internetið hefur að mörgu leyti
virkað eins og anarkísk tilraun. Nýtt
hagkerfi var til, að mörgu leyti ótengt
hinu gamla. Hér gátu allir verið með
og búið til sitt eigið lén og ekkert sem
sagði endilega að stóru fyrirtækin
hefðu forskot á þau litlu, enda urðu
nýir risar fljótlega til sem gátu skákað
þeim sem þangað til höfðu takmark-
að sig við raunheima. En brátt fór
þessi tilraun á sama hátt og í skáld-
sögu þar sem nýtt samfélag er búið
til að eyðieyju, ef einhver man enn
eftir Lord of the Flies.
Flestir hefðbundnir fjölmiðlar
berjast nú í bökkum og hvert dag-
blaðið á fætur öðru dregur saman
seglin eða er lagt niður og er sama
sagan um allan heim. Þetta er í
sjálfu sér svosem ekki óeðlilegt, þar
sem fólk sækir fréttir og upplýsingar
æ meira á netið og síður til prent-
miðla. Ef til vill eru þetta einungis
fæðingarhríðir nýrrar fjölmiðlunar,
því eftir því sem fréttaflutningur flyst
yfir á netið hljóta auglýsingarnar að
gera það líka og allir þeir blaðamenn
sem hafa misst vinnuna verða brátt
endurráðnir. Eða hvað?
Ef þú skoðar heimasíður flestra
fjölmiðla, eða ef til vill íslenskar
túristasíður, svo dæmi sé nefnt, þá
virðist ekki beint skortur á auglýs-
ingum, eða hvað? Eins og búast
mátti við færa auglýsendur sig yfir
á netið, í takt við lesefni og lesend-
ur. Gamla hagkerfið endurmótar sig
í hinu nýja. En rétt eins og í gamla
hagkerfinu eru það sumir sem hafa
meiri tögl og hagldir heldur en aðr-
ir. Gallinn er bara sá að hér eru þeir
enn færri.
Rétt í þessu fór ég inn á orðabók-
arsíðuna dictionary.com og furðaði
mig á því að ekki aðeins getur hún
útskýrt fyrir mér flókin orð á ensku,
heldur sýnir hún mér líka auglýs-
ingar frá íslenskum veitingastöð-
um. Hér er þó ekki fullkomnun þýð-
ingarvélar að þakka, heldur það að
auglýsendur leita í æ meira mæli
til Google með auglýsingar sínar.
Google sér síðan um að koma þeim
til skila til þeirra neytenda sem sóst
er eftir á mismunandi síðum. Síð-
an sem auglýsingin birtist á fær á
endanum aðeins brotabrot af aug-
lýsingatekjum þessum, langstærsti
hlutinn fer til Google. Enda er þetta
mun þægilegra fyrir auglýsandann
heldur en að leita til hverrar vefsíðu
fyrir sig.
Næst þegar þú ferð inn á íslenska
vefsíðu eru það því ekki endilega
starfsmenn hennar sem fá greitt fyrir
störf sín, heldur er það Google, sem
ásamt Facebook er farið að stjórna
æ stærri skerf af auglýsingamark-
aði heimsins. Erfitt er að sjá að þetta
muni breytast, nema hugsanlega
með tilkomu strangra (og alþjóð-
legra) samkeppnislaga. Þangað til er
framtíð fjölmiðlunar varla björt. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kjallari „ Internetið hefur að
mörgu leyti virkað
eins og anarkísk tilraun
Mest lesið
á DV.is
1 Nýrri myndbönd: Eldur-inn stjórnlaus! Skeifan
11 brann nærri til grunna í eldsvoða
síðastliðinn sunnudag.
66.461 hafa lesið
2 Fjölskyldan „harmi slegin“ Fyrsta banaslys í
sögu skemmtigarðsins Terra Mítica á
Benidorm á Spáni varð þegar 18 ára
íslenskur piltur lést eftir að hafa fallið
meira en fimmtán metra úr rússíban-
anum Inferno um hálf fimm-leytið á
staðartíma á mánudag.
42.871 hafa lesið
3 Ungi maðurinn sem lést á Benidorm var
Íslendingur Spænsku fréttamiðl-
arnir El Mundo og El Pais greindu frá því
á mánudag að 18 ára maður sem hefði
látist eftir að hafa kastast úr rússíbana
var Íslendingur
42.271 hafa lesið
4 „Hárið varð ógeðslegt“ Fjölmargar ungar konur segjast
í samtali við DV vera verulega ósáttar
við afgreiðslu Grand Hair Extension,
hárlengingarsöluaðila á Facebook og
hárlengingarstofu, sem er alfarið á
vegum Bryndísar Báru Eyjólfsdóttur.
38.546 hafa lesið
5 „Sláandi staðreyndir“ komnar fram í dular-
fulla morðmálinu í Ölpunum
Rannsókn lögreglu á morðinu á breskri
fjölskyldu af íröskum uppruna í frönsku
Ölpunum árið 2012 hefur leitt ýmislegt
dularfullt í ljós.
37.325 hafa lesið
6 Kærði vin-
konu sína
Leikkonan Taryn
Manning sem
leikur í þáttunum
Orange is the
New Black hefur
kært fyrrverandi
vinkonu sína fyrir að ofsækja sig.
28.918 hafa lesið
T
itill pistils míns er nánast
sóttur í nafn stórkostlegrar
bókar sem ég las fyrir margt
löngu. En pistillinn hefur þó
ekki neitt sérstakt að sækja í þá
ágætu bók. Hann fjallar um mann
sem ákvað að reyna að bjarga fjalli.
Á fimmtugasta og áttunda
aldursári, eftir að hafa ekið ótal
sinnum fram hjá fjallinu og eftir
að hafa leyft sjötíu ára áletrun að
pirra sig lengur en hann gat mun-
að, ákvað okkar maður að ráð-
ast til atlögu við fjallið. Áletrunin
sem raskað hafði ró okkar manns
um langa hríð var þannig til kom-
in að skátar eða hjálparsveit hafði
einhverju sinni rifið mosa af fjall-
inu með þeim hætti, að farið sem
myndaðist geymdi – skýrum stöf-
um – nafn skátafélags eða hjálp-
arsveitar. Ritsmiðirnir höfðu gert
heiminum þann greiða að láta
ártal fylgja þegar þeir grófu nafn
hópsins í fjallið, svona til þess að
merkja það. Og á sjötíu árum hafði
mosinn ekki náð að hylja farið sem
skrifararnir skildu eftir.
Vopnaður fullum innkaupa-
poka af lúpínufræi fór okkar mað-
ur að fjallinu, lagði bíl sínum og
rölti af stað. Hann gekk á brattann
og leit ekki um öxl. Hann reyndi
í huganum að reikna út hversu
mörg fræ pokinn geymdi og var
sáttur við að þar myndu vera nokk-
ur þúsund fræ.
Á tindinum var kalt, eiginlega
stormur; nokkuð sem okkar maður
hafði ekki gert ráð fyrir þegar hann
stóð í logni við bílinn og hugleiddi
hvar best væri að halda á brattann.
Og vindurinn gekk í lið með okk-
ar manni þegar hann feykti fræ-
inu yfir sárin sem höfðu dælt blóði
heimskunnar yfir alþýðu í árarað-
ir. Núna var það lúpínuplásturinn
sem átti að lækna bágtið.
Hann hugsaði um andstæðinga
lúpínunnar; allt þetta fáfróða fólk
sem leit á lúpínuna sem óvin ís-
lenskrar þjóðar, fólkið sem trúði
því að þessi máttuga og gefandi
jurt eyddi lyngmóa og jafnvel
kjarrlendi. Þetta fólk sem vissi ekki
hvernig lúpínan gefur jarðvegin-
um næringu, hvernig hún vex þar
sem ekkert annað blóm nær rót-
festu, hvernig hún bjargar deyj-
andi lyngmóa og hvernig hún heft-
ir fok og rof, með því einu að vera
til. Þessi einstaka auðlind köfnun-
arefnis, þessi drottning íslenskra
blóma – bjargvætturinn í graslaus-
um gráma hversdagsins. Hann
hugsaði sem svo: -Kannski verður
mér refsað grimmilega fyrir þessa
björgun, þar eð ég nota ekki meðul
fáfræðinnar. Kannski verð ég fyr-
ir barðinu á heimskunni; ég sem
reyni af hófsemi minni og nægju-
semi að bjarga þeirri fegurð sem
forðum var frá fjallinu stolið. n
Í framtíð vonin virðist mest,
ég verð að hlýða kalli,
því lúpínan er blómið best
sem bjargar þessu fjalli.
Að bjarga fjalli ...
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
T
veggja ára stúlka og sjö aðr-
ir gestir á strandkaffihúsi
á Gaza, sem voru, líkt og
fjöldi Íslendinga, í fyrradag
að fylgjast með fótbolta-
útsendingu frá Brasilíu, urðu fórn-
arlömb loftárása Ísraelshers. Þegar
þetta er skrifað hefur herinn myrt á
níunda tug Gazabúa, þar af á þriðja
tug barna. Meirihluti fallinna eru
óbreyttir borgarar. Á sjötta hund-
rað eru særðir. Á sama tíma hafa
palestínskir vígamenn skotið yfir 200
heimagerðum eldflaugum á Ísrael,
sem margar hverjar hafa verið skotn-
ar niður með háþróuðu loftvarnar-
kerfi Ísraelshers. Hinar hafa valdið
litlum usla, engu mannfalli en sært
tvo.
Hryðjuverk
Réttlæting ísraelskra stjórnvalda á
árásunum og ógnaraðgerðum á Vest-
urbakkanum í aðdraganda þeirra er
morð þriggja táninga úr landtöku-
byggðum Ísraela. Þar var um að ræða
hryðjuverk sem réttilega hefur verið
fordæmt víða um heim, en hefur þó
ekki verið rannsakað opinberlega.
Engu að síður fullyrðir Ísraelsstjórn
að Hamas standi að morðunum og
því sé réttlætanlegt að hefna sín á
samtökunum.
Óréttlætanlegt með öllu
Stjórnvöld í Ísrael hafa ekki lagt fram
neinar sannanir fyrir ásökunum sín-
um á hendur Hamas og samtök-
in segjast enga vitneskju hafa um
morðin á drengjunum þremur, en
voðaverk sem þetta kemur samtök-
unum jafn illa og það kemur stríðsæs-
ingamönnum í Ísrael vel. Jafnvel þó
að Hamas hefði fyrirskipað morðin
eru árásir Ísraelshers óréttlætan-
legar með öllu. Að herja á vígamenn
er eitt en að sprengja skipulega upp
íbúabyggð í einni þéttbýlustu byggð
heimsins og myrða óbreytta borg-
ara, fólk sem getur ekki flúið ósköpin
vegna þess að Ísraelsríki hefur lokað
það inni í stærsta fangelsi heimsins,
er allt annað.
Hræsni
Benjamin Netanyahu notaði tæki-
færið við jarðarför eins ísraelsku
drengjanna til að votta aðstandend-
um palestínska unglingsins sem var
brenndur til bana samúð sína og
heita því að einskis yrði látið ófreist-
að að handsama morðingjana. Á
sama tíma gaf Netanyahu hershöfð-
ingjum sínum fyrirskipun um að
nota háþróuð vopn til að drepa fólk,
þar á meðal börn, sem voru jafn sak-
laus og drengurinn. Með þessum og
öðrum hroðaverkum setur Benjam-
in Netanyahu sig á bekk með verstu
stríðsglæpamönum sögunnar sem á
eftir að sækja til saka.
Þrýstum á ríkisstjórn Íslands
Margendurteknar yfirlýsingar Sam-
einuðu þjóðanna og fjölda ríkja gegn
50 ára hrottalegu hernámi Palest-
ínu duga ekki einar og sér. Beita þarf
róttækari ráðum til að stöðva her-
námið. Verkfæri í þeirri baráttu er
hunsun á Ísrael, viðskiptabann og
bann við samskiptum á sviði íþrótta,
menningar og stjórnmála. Að þessu
geta Íslendingar stuðlað með því að
þrýsta á stjórnvöld og hunsa Ísrael
sjálfir, en verkefnið nú er að þrýsta
á ríkisstjórn Íslands til að beita sér
þegar í stað á alþjóðavettvangi til að
stöðva blóðbaðið á Gaza.
Höfundur er dúklagningameistari
Stöðvum blóðbaðið á Gaza
Þorleifur Gunnlaugsson
borgarfulltrúi í Reykjavík
Aðsent
Mynd ReuteRs
– Valdimar Lúðvík Gíslason keyrði niður friðað hús í Bolungarvík. – DV.