Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 32
32 Fólk Nærmynd Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Þ
ótt hann eigi þessa peninga
lítur hann ekki á sig sem
stóran karl. Hann er bara
eins og við hinir. Það er það
skemmtilega við hann,“ seg-
ir viðmælandi DV um Kristján Vil-
helmsson, annan eiganda útgerðar-
félagsins Samherja og einn ríkasta
mann Íslands.
Auðugastur Íslendinga
Á síðasta ári var Kristján, ásamt
konu sinni, efstur á lista Viðskipta-
blaðsins yfir auðuga Íslendinga. Þar
kom fram að hrein eign þeirra hjóna
nemi samtals ríflega 6,8 milljörð-
um króna. Þrátt fyrir gífurleg auð-
æfi hefur lítið borið á Kristjáni. Þeir
sem þekkja hann best segja hann þó
langt frá því að vera til baka. Frændi
hans og viðskiptafélagi, Þorsteinn
Már Baldvinsson, sé einfaldlega
stórlátari og hafi því verið ásýnd
fyrirtækisins. Einn viðmælenda
blaðsins tók svo til orða að þótt Þor-
steinn Már væri andlitið út á við væri
Kristján andlitið inn á við. Hann sé
afar vel liðinn yfirmaður, sem þekki
flesta starfsmenn fyrirtækisins með
nafni, hlýr og alþýðlegur, blátt áfram
og ákaflega þægilegur í umgengni.
Hann sé mun opnari en Þorsteinn
Már sem erfiðara sé að nálgast.
Sextugur í næsta mánuði
Kristján fæddist árið 1954 og mun
fagna sextugsafmæli sínu í næsta
mánuði. Hann er sonur hjónanna
Önnu Kristjánsdóttur og Vilhelms
Þorsteinssonar, skipstjóra og fram-
kvæmdastjóra, en þau eru bæði
látin. Kristján ólst upp á Ránar-
götu 23 á Akureyri og var því lengst
af svokallaður Eyrarpúki. Foreldr-
ar hans höfðu byggt sér heimili í
Ránargötunni ásamt tengdaforeldr-
um Önnu. Kristján á ættir að rekja til
Flateyjar við Önundarfjörð þar sem
móðir hans var alin upp og til Hrís-
eyjar í Eyjafirði þar sem faðir hans
ólst upp. Vilhelm lést aðeins 65 ára
í desember 1993, tveimur árum og
einum degi á eftir tvíburabróður
sínum en báðir höfðu verið veikir
fyrir hjarta. Anna lést í apríl í fyrra.
Systkinin eru fimm talsins, Þor-
steinn er elstur, fæddur árið 1952,
Kristján kemur næstur, svo Mar-
grét, fædd árið 1956, Sigurlaug 1960
og Valgerður 1964. Það var því nóg
að gera á stóru heimili. „Mamma
rak heimilið með miklum myndar-
brag og oft var margt um manninn
enda alltaf allir velkomnir. Á þess-
um árum léku krakkar sér úti og
þá fengum við gjarnan kaffið nið-
ur í þvottahús þaðan sem var opið
út í garð enda var enginn tími til að
koma inn til að drekka,” segir Val-
gerður, litla systir Kristjáns.
Stríðnir bræður
Aðeins tvö ár skilja Kristján og Þor-
stein bróður hans í aldri en þeir
bræðurnir hófu Samherja-ævintýr-
ið ásamt Þorsteini Má, frænda sín-
um. Þeir bræður voru bestu vinir í
æsku og, samkvæmt viðmælend-
um DV, áttu að mörgu leyti sama
vinahópinn. Þeir hafi þó auðvitað
slegist og rifist eins og gengur og
gerist milli bræðra. Valgerður minn-
ist þess að bræður hennar hafi verið
mjög stríðnir og að þeir hafi staðið
saman í stríðninni.
„Þeir brölluðu ýmislegt á yngri
árum. Margt af því var fyrir mína tíð
en ég hef oft heyrt af þessum sög-
um. Eins og þegar mamma hafði
kallað á alla í kvöldmat. Margrét
systir kom ekki og þeir bræður þótt-
ust ekkert vita. Svo kom í ljós að
þeir höfðu bundið hana í miðstöðv-
arherberginu – hún komst hvorki
lönd né strönd. Ég held að hún hafi
oft fengið að finna fyrir þeim. Þeir
voru miklir prakkarar og ótrúlega
hugmyndaríkir,” segir hún og bætir
við að enn sé stutt í stríðnispúkann
hjá Kristjáni. „En sem betur fer þolir
hann stríðni sjálfur enda tekur hann
sig ekki hátíðlega.” Litla systir hans
ber honum þó góða söguna þrátt
fyrir stríðnina. „Ég horfði alltaf upp
til hans og held að ég hafi alltaf not-
ið þess að vera yngsta systir hans.
Hann var alltaf góður við mig og
tilbúinn til að aðstoða. Sama hvort
maður bað hann að búa til skíða-
brekku eða bera á skíðin, gera við
leikföng, sérstaklega ef þau gengu
fyrir batteríum. Hann var alltaf boð-
inn og búinn. Það sem er mjög ein-
kennandi fyrir Kristján er það að
hann hugsar í lausnum og fram-
kvæmir og það gildir bæði um vinnu
og í lífinu almennt. Ég heyri gjarn-
an: „Valgerður, þetta er ekkert vesen,
við finnum út úr þessu“.“
Vinsæll meðal stelpna
Kristján gekk í Oddeyrarskóla og
Gagnfræðaskóla Akureyrar þar
sem hann kynntist konunni í lífi
sínu, Kolbrúnu Ingólfsdóttur, en af
ókunnum ástæðum hafa þau ekki
enn þann dag í dag látið pússa sig
saman. Valgerður man eftir því
þegar Kolbrún fór að venja komur
sínar niður í Ránargötu. Hún seg-
ir Kristján hafa verið vinsælan á
meðal stelpna en að hann hafi fallið
kylliflatur fyrir Kolbrúnu. „Ég man
að stelpurnar lágu gjarnan á glugg-
anum niðri í sjónvarpsherberginu.
Hann var rosalega flottur töffari.“
Fyrsta barnið, Halldór Örn, kom
í heiminn árið 1974 en Halldór býr á
Akureyri ásamt sambýliskonu sinni
og þremur dætrum. Anna fæddist
svo árið 1979. Nokkrum mánuð-
um eftir að hún kom í heiminn varð
læknum ljóst að ekki var allt með
felldu. Anna bjó heima fram á full-
orðinsaldur en er nú flutt á sambýli
fyrir fatlaða. Næst í röðinni er skíða-
konan kunna, Dagný Linda, sem á
glæsilegan skíðaferil að baki. Dag-
ný Linda, sem fæddist árið 1980, er
átjánfaldur Íslandsmeistari á skíð-
um og hefur meðal annars tekið þátt
í þremur Ólympíuleikum og þremur
heimsmeistaramótum. Hún hefur
nú lagt skíðin á hilluna og býr inni
í Eyjafjarðarsveit með sínum manni
og börnum. Yngsta dóttirin, Katrín,
fæddist svo árið 1991 og yngsta
barnið, Kristján Bjarni, árið 1993.
Sveita- og sjómaður
Æskuvinur Kristjáns, Jóhann G. Jó-
hannsson, man vel eftir því þegar
þau Kolbrún fóru að vera saman.
„Það var hinn 9. janúar 1971. Ég
man það svona vel af því að það var
á 17 ára afmælisdaginn minn. Mig
minnir að þau hafi kynnst á balli en
þau byrjuðu saman á þessum degi,“
segir Jóhann sem segir parið strax
hafa orðið afar samstiga. „Kolla fór
út sem aupair til Bandaríkjanna
í eitt ár en þegar hún kom til baka
tóku þau upp sambandið líkt og hún
hefði aldrei farið. Kristján var voða
myndarlegur ungur maður og ör-
ugglega þónokkur kvennamaður en
hann valdi Kollu.“
Sem barn var Kristján í sveit
í Fagrabæ og hefur síðan haldið
Nægjusami auðmaðuriNN
Samherjamaðurinn og Akureyringurinn Kristján
Vilhelmsson er einn allra ríkasti maður lands-
ins. Þrátt fyrir auðæfi berst Kristján ekki á og keyrir
til að mynda um á gömlum bíl. Vinir og kunningjar
Kristjáns bera honum vel söguna og segja að vel-
gengnin í viðskiptum og gríðarlegar eignir hafi ekki
breytt honum. Fólkið í kringum hann lýsir honum
sem þægilegum, hlýjum en afar stríðnum dugnaðar-
forki sem ákvað snemma að fara í útgerð.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Fer ekki í fýlu Viðmælendur
DV eru sammála um að Kristján
hafi mikið jafnaðargeð.
Mynd BjArnI EIrÍkSSon
„Það er kostur
að vera með
skap en hann fer
líka vel með það