Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Qupperneq 33
Fólk Nærmynd 33Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Nægjusami auðmaðuriNN
tryggð við fjölskylduna sem hef-
ur getað treyst á hjálp hans í göng-
um á haustin. Þótt sjómennskan
eigi í honum öll bein er hann einnig
sveitamaður sem líður sjaldan jafn-
vel og úti í náttúrunni á hestbaki
að reka féð. Hann og Kolbrún hafa
komið sér upp sælureit í sveitinni
hjá Dagnýju Lindu. Um fallegt heils-
árshús er að ræða en aðalheimili
þeirra er þó inni á Akureyri. Kolbrún
ræktar hænur og hannar úr gleri og
saman njóta þau lífsins í sveitinni
fjarri skarkala vinnu hans.
Vinamargur fjölskyldumaður
Valgerður segir Kristján mikinn
fjölskyldumann. „Honum líður
best þegar hann hefur sem flesta
af fólkinu sínu í kringum sig – og
svo er ekkert tiltökumál að bæta
við fleirum. Hann er svo barngóð-
ur og finnst gaman að hafa mikið
af börnum í kringum sig. Ég bý ekki
í sama landshluta í dag en hann
kemur gjarnan við þegar hann á hér
leið um og kíkir þá á okkur og fær-
ir gjarnan dætrum mínum eitthvað
til að gleðja þær. Hann er líka flottur
afi. Það er svo mikill leikur í honum,
hann er alltaf tilbúinn til að leika við
krakkana og gera eitthvað með þeim
sem þeim finnst skemmtilegt.” Val-
gerður segir alltaf hafa verið líf og
fjör í kringum Kristján og að hann
hafi ávallt verið vinamargur. Að-
spurð segir hún velgengni hans ekki
hafa komið henni á óvart. „Fram-
an af hafði hann ekkert sérstaklega
mikinn áhuga á námi en seinna
varð hann mjög góður námsmaður.
Raungreinar lágu vel fyrir honum.
Hann hafði alltaf áhuga á að vinna.
Þeir bræður voru ekki gamlir þegar
þeir voru ekki heima um jól þar sem
þeir voru á sjónum. Þetta var á þeim
árum þegar sjómenn fengu ekki frí
um jólin.”
Duglegur fyrir skíðahreyfinguna
Kristján var mikill íþróttamaður á
yngri árum, synti mikið og skíðaði
á svigskíðum og keppti á göngu-
skíðum. Hann hætti keppni eftir að
hnén gáfu sig en hefur síðan fylgst
með af hliðarlínunni af miklum
krafti og þá sérstaklega skíðunum
og handboltanum. Enda gallgarður
KA-maður fram í fingurgóma. Egill
Jóhannsson er fyrrverandi formað-
ur Skíðasambands Íslands og hef-
ur þekkt Kristján frá því að þeir voru
litlir strákar. „Kristján hefur alltaf
verið afskaplega léttur í lund. Það
er alltaf jafn notalegt að vera nálægt
honum,“ segir Egill sem tekur und-
ir orð Valgerðar um stríðnina. „Já,
hann á það til að vera stríðinn en
það gerir hann bara enn skemmti-
legri. Hann er léttur í stríðninni og
tekur sem betur fer stríðni sjálfur.
Það er allt látið vaða á hann til baka,“
segir Egill sem minnist þess þegar
þeir voru staddir á heimsmeistara-
móti í skíðaíþróttum: „Dóttir hans
var að renna sér niður en fór úr
brautinni og í netið. Eftir að sjokk-
ið var yfirstaðið og ljóst var að hún
var ómeidd sagði Kristján henni að
hún yrði að hafa með sér vasahníf.
Það væri ómögulegt að hún væri
að festa sig svona í netinu. Þarna
var hún að skíða á 130 km hraða.
Þetta er svona góðlátlegt grín eins
og Kristján notar.“ Egill segir Krist-
ján hafa staðið þétt við íþróttafer-
il barna sinna. „Og ekki bara barna
sinna. Hann er afskaplega drjúgur
með að hjálpa skíðamönnum al-
mennt. Hans vinna við skíðamál-
in á Íslandi er ótrúlega mikil og góð
– bæði fjárhagslega og annað. Við
vorum saman í Skíðasambandinu
á sínum tíma og ef eitthvað vantaði
var alltaf hægt að hringja í Stjána
– hann bjargaði málunum. Ekkert
endilega með því að leggja sjálfur
út fyrir því heldur með því að hr-
ingja í fólk sem hann þekkti og gat
aðstoðað. Þau hjónin eru bæði al-
veg einstök og hafa gert mikið fyr-
ir skíðahreyfinguna og sérstaklega á
Akureyri.“
„Stattu upp, Bubbi“
Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ,
hefur þekkt til Kristjáns í 30 ár og
unnið með honum í tólf ár. „Krist-
ján er húmoristi og á auðvelt með
að sjá kómísku hliðarnar á málun-
um. Hann er skapstór sem er kostur.
Það er kostur að vera með skap en
hann fer líka vel með það. Það getur
alveg fokið í hann,” segir Adolf sem
segir Kristján eiga afar auðvelt með
mannleg samskipti. „Hann getur
verið stríðinn og tekur stríðni sjálfur
– upp að vissu marki allavega,” segir
hann hlæjandi en bætir svo við: „Er
það ekki oft þannig; þeir sem eru
stríðnir þola illa stríðni sjálfir?”
Sem dæmi um stríðnina nefnir
Adolf sögu af fundi LÍÚ. „Björgúlf-
ur Guðmundsson var í púlti þegar
Kristján grípur fram í fyrir honum
í miðri ræðu og kallar: „Stattu upp,
Bubbi”. Þessu fylgdi mikil kátína en
Björgólfur, sem er frekar lágvaxinn,
tók því sem betur fer vel. Hann er
sjálfur stríðinn en tekur því misjafn-
lega þegar honum er strítt. Þarna
átti hann ekki kost á öðru en að taka
því vel.”
Sex ára á sjónum
Kristján ákvað ungur að feta í fót-
spor föður síns og fara á sjóinn og
var ekki nema sex ára þegar hann fór
í túr með honum á Grænlandsmið.
Eins voru þeir bræður ekki gaml-
ir þegar þeir stunduðu togveiðar á
Eyjafirðinum á trillunni Eddunni
sem faðir þeirra átti, með heimatil-
búna míní-útgáfu af trolli. Valgerður
segist óljóst muna eftir umræðum
við eldhúsborðið þar sem Vilhelm
faðir þeirra hafi reynt að opna augu
þeirra bræðra fyrir einhverju öðru
en sjómennsku. „Það féll ekki í góð-
an farveg. Það varð snemma ljóst
hvert hann ætlaði sér.“
Adolf segir Kristján duglegan og
vinnusaman. „Hann er sívinnandi
og kemur alltaf vel undirbúinn til
allra verka. Hann er traustur og það
er gott að vinna með honum. Hann
er kurteis fundarmaður og það er
aldrei neinn yfirgangur eða frekja
í honum á fundum. Hann fer eft-
ir settum reglum.” Aðspurður seg-
ir hann Kristján geta orðið sérstak-
lega heitt í hamsi þegar breytingar á
kvótakerfinu séu ræddar. „Þá getur
hann orðið æstur en það er aðallega
vegna þess að okkur hefur fundist
margt af því sem hefur verið gert
varðandi breytingar á kvótakerfinu
illa ígrundað og ekki til bóta.”
Adolf segir Kristján hreinskilinn,
fastan fyrir en umfram allt heiðar-
legan í samskiptum. „Hann er
einnig ráðagóður – það er alltaf gott
að leita til hans ef þess þarf,” segir
Adolf sem segir að þótt Kristján sé
ákveðinn og fastur fyrir taki hann
rökum. „Það er aldrei vandamál.
Það er gott að rökræða við hann.”
Deilur og vinaslit
Þeir sem þekkja Kristján best segja
að hann hafi alltaf verið metnað-
arfullur og stórhuga. Kristján var
ekki orðinn þrítugur þegar þeir
Þorsteinn, bróðir hans, og frændi
þeirra, Þorsteinn Már, fóru í Lands-
bankann með ósk um lán. Þar á bæ
var ákveðið að veðja á þessa stór-
huga ungu menn – fjárfesting sem
átti eftir að borga sig. Velgengni
Samherja og þar með Kristjáns hef-
ur farið fram úr öllum vonum en
fyrirtækið hefur verið rekið með
hagnaði frá upphafi. Árið 1986 var
Samherji í 170. sæti yfir stærstu fyr-
irtækin á Íslandi samkvæmt Frjálsri
verslun. Ári seinna var fyrirtækið
komið í 113. sæti en árið 1997 í það
17.
Ævintýrið hófst árið 1983 þegar
Þorsteinn Már og bræðurnir, Krist-
ján og Þorsteinn Vilhelmssynir,
Íþróttamaður Kristján keppti á göngu-
skíðum á sínum yngri árum. MynD Úr einkaSafni
Byrjaði snemma Kristján um borð í Harðbak árið 1960.MynD Úr einkaSafni
Samherjafrændur Kristján Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelmsson.
„Ég man að
stelpurnar lágu
gjarnan á gluggan-
um niðri í sjónvarpsher-
berginu. Hann var rosa-
lega flottur töffari.