Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Síða 34
34 Fólk Nærmynd Helgarblað 11.–14. júlí 2014
keyptu nær allt hlutafé í Samherja
sem og togarann Guðstein sem þeir
breyttu í frystitogarann Akureyrina.
Þorsteinn Vilhelmsson var upphaf
lega skipstjóri á togaranum, Kristján
yfirvélstjóri en Þorsteinn Már sá um
útgerðina á landi. Hlutirnir gerðust
hratt – Samherji lagði undir sig önn
ur minni útgerðarfyrirtæki og hóf
útgerð í fleiri löndum – og árið 1989
voru þessir þrír ungu menn frá Ak
ureyri kosnir menn ársins í íslensku
atvinnulífi. Þrátt fyrir velgengni
kraumuðu deilur undir niðri sem
varð til þess að upp úr samstarfinu
slitnaði árið 1999 þegar Þorsteinn
Vilhelmsson seldi sinn hlut.
Samkvæmt heimildum DV
höfðu nafnarnir deilt og Krist
ján lengi reynt að sætta báða aðila.
Þegar allt sprakk að lokum ákvað
hann að halda sig við Samherja –
ákvörðun sem hafði mikil áhrif á
samband bræðranna og eins hafði
stjórfjölskyldan verið afar hrygg yfir
ósættinu.
Þrjóskur KA-maður
Þótt allir þeir álitsgjafar sem blaðið
ræddi við beri Kristjáni góða söguna
er enginn fullkominn. Varðandi
gallana segir Valgerður að Kristján
geti verið afar þrjóskur. „Svo vinnur
hann alveg brjálæðislega mikið. Og
er svo bóngóður – hann vill í raun
og veru gera allt fyrir alla. Stundum
óttast ég að hann ætli sér um of. Svo
gæti ég trúað því að vinnan gangi oft
á fjölskyldulífið. Kolla er samt með
honum í þessu 100 prósent og ég hef
oft dáðst að henni, hvað hún er þol
inmóð gagnvart vinnu hans. Þau eru
svo samstiga. Þetta hefði líka aldrei
gengið nema af því að hún stendur
algjörlega á bak við hann og styður
hann áfram,” segir systir hans.
„Ég hef aldrei heyrt neinn segja
eitthvað neikvætt um Kristján,“ seg
ir Egill. „Hann er svo mikill friðar
sinni og vill að öllum líði vel. Hann
er ofsalega vel liðinn.“ Samkvæmt
Agli er Kristján annálaður íþrótta
áhugamaður. „Hann horfir á allt
sem hægt er að horfa á, þegar hann
hefur tíma. Enda alinn upp við slíkt.
Það versta er að hann er KAmað
ur. Það er eini gallinn sem ég finn á
honum.“ Þorsteinn Már hefur verið
einn nánasti samstarfsmaður Kristj
áns um árabil. Þorsteinn segir sam
starf þeirra hafa gengið afskaplega
vel enda hafi þeir unnið náið saman
í þrjátíu ár. „Samstarf okkar byggist
á trausti. Þegar við höfum sett stefn
una þá er henni fylgt þótt á móti
blási á köflum. Það er ekkert verið
að hringla í hlutunum. Maður veit
alltaf hvert maður er að fara með
honum.“
Auðæfin opna dyr
Þrátt fyrir geysileg auðæfi hefur
Kristján aldrei haft þörf fyrir að ber
ast á. Hann kemur eins fram við alla
og gerir ekki mannamun eftir stöðu
eða efnahag. „Velgengnin hefur ekk
ert breytt honum. Þetta er alveg sami
strákurinn. Mér finnst hann alltaf
eins,“ segir álitsgjafi blaðsins. Egill
tekur í sama streng. „Ég hef aldrei
séð hann berast á. Við höfum ferðast
mikið vegna skíðanna og hann hefur
alltaf bara verið samferða okkur hin
um, venjulega fólkinu. Bara á þriggja
eða fjögurra stjörnu hótelum og ver
ið ánægður með það.“
Guðmundur skipstjóri er sam
mála: „Peningarnir hafa ekkert
breytt honum. Þú getur ekki séð það
að Kristján Vilhelmsson eigi pen
inga. Þetta er bara svo indæll maður,
jarðbundinn í alla staði. Þeir eru það
báðir, frændurnir, en það á sérstak
lega viðum hann.“
Jóhann, æskuvinur Kristjáns,
segir ekki rétt að auðævin hafi ekkert
breytt honum. „Menn eru misjafn
lega nægjusamir og Kristján er mjög
nægjusamur. Hann er bara eins og í
gamla daga og keyrir ekkert endilega
um á glænýjum bílum. Hann er van
ur að eiga peninga síðan hann fór að
vera á sjó en hefur alltaf farið mjög
vel með þá. Margur hefði örugglega
hlaupið meira út undan sér með
allan þennan pening. En í gegnum
auðæfin umgengst hann annað og
öðruvísi fólk og getur leyft sér eitt og
annað sem hann gerði ekki áður. Og
hann ferðast mikið og veiðir lax – en
það geta venjulegir menn ekki. Þótt
ég segi að hann hafi breyst þá meina
ég það alls ekki neikvætt. Auðæfin
hafa einungis opnað dyr sem öðrum
eru lokaðar.“
Varðandi nægjusemina kem
ur einn samferðamaður Kristjáns
með dæmi: „Sagan segir að þegar
Landcruiser 100 bíllinn hans hafi
náð 200 þúsund km í akstri þá hafi
hann ekki skipt honum út fyrir nýj
an heldur einungis látið sprauta
hann upp á nýtt og haldið svo áfram
að keyra hann. Ég veit ekki hvort
þetta er satt en sagan er góð.“
Þýðir ekkert að grenja
Viðmælendur DV eru sammála um
að þótt Kristján sé ekki að trana sér
fram sé hann hvorki feiminn né
til baka. „Hann er ekki týpan sem
kemur stökkvandi fram; hér er ég!
Maður sér það á mannamótum. Þá
byrjar hann á því að skanna svæð
ið. Hann er ekki sá sem mætir með
látum. Hins vegar er hann með gott
sjálfstraust – annars væri hann ekki
kominn þar sem hann er í dag,“ seg
ir einn viðmælenda blaðsins. Syst
ir hans tekur í svipaðan streng.
„Hann getur alveg verið stuðbolti
en hann kemur aldrei inn í partíið
með galsagangi. Hann getur sung
ið, dansað og sagt sögur en þarf alls
ekki að vera aðalnúmerið í sam
kvæminu.“
Egill segir Kristján ekki ein
an af þeim sem hleypur í fangið á
þeim sem hann ekki þekkir. „En
hann er eldhress og fljótur að átta
sig á hlutunum og umhverfinu og
hvernig hægt er að tækla hlutina.“
Hann segir Kristján mikinn keppn
ismann en þó hafi ekki örlað á tap
særi þegar hann var að keppa á
skíðunum. „Þeir bræður voru báð
ir mjög grimmir en kepptu hvor í
sínum flokknum. Ef Kristján tap
aði var hann fljótur að hugsa: það
þýðir ekkert að grenja. Menn verða
bara að hysja upp um sig og gera
betur næst,“ segir Egill og bætir við
að Kristján sé góður félagi. „Það er
aldrei lognmolla þar sem hann er og
það er gaman að vera með honum
úti í fríi. Hann hefur mikið jafnað
argeð og í rauninni hef ég aldrei séð
hann reiðan. Ég hef aldrei séð hann
æsa sig einu sinni og þó hef ég ver
ið með honum mörgum stundum.“
Guðmundur Jónsson skipstjóri
hefur þekkt Kristján í yfir 25 ár og
ber honum einnig góða söguna.
„Kristján er frábær maður í alla
staði. Hann er umburðarlyndur og
með mikið jafnaðargerð. Þú kem
ur aldrei að Kristjáni í fýlu. Það
er gott að leita til hans því hann
er ráðagóður og leysir úr vanda
málum. Hann er fyrsti maðurinn
sem maður leitar til ef það er eitt
hvað,“ segir Guðmundur sem vill
ekki taka svo djúpt í árinni að segja
hann kröfuharðan yfirmann. „En
hann vill hafa hlutina í lagi. Hann er
meira hvetjandi en kröfuharður. Og
hann er þrjóskur þótt hann hlusti á
mótrök.“
Þarf að passa heilsuna
Eins og fyrr segir mun Kristján
fagna sextugsafmæli sínu í næsta
mánuði. Vinir hans sem blaðið
ræddi við vonast til þess að hann
fari að hægja á sér og huga meira
að heilsunni enda hafi hann feng
ið gula spjaldið fyrir stuttu. „Hann
slapp með skrekkinn en vitandi það
að faðir hans og tvíburabróðir hans
létust báðir úr hjartasjúkdómi setur
hann sjálfan sig vonandi í forgang
héðan í frá,“ segir heimildarmað
ur blaðsins. „Ég er bara alls ekkert
viss um að hann kunni að slaka á.
En hann hefði rosalega gott af því.
Hann er að eldast eins og við hin og
er örugglega búinn að vinna meira
en sinn skammt yfir ævina,“ segir
einn viðmælandi blaðsins sem seg
ir ólíklegt að Kristján fari að njóta
auðævanna í meira mæli í ellinni.
„Ég hugsa að hann verði bara eins
og hann er vanur að vera. Ég sé
hann allavega ekki fyrir mér byrja
að spreða peningum. Hann mun
seint tryllast með peninga.“
Slappar af úti í sveit
Varðandi framtíðina segist Valgerð
ur vonast til þess að Kristján fari að
slappa meira af og njóta. „Og huga
að eigin heilsu og velferð en hann
vinnur alveg gífurlega mikið, fer í
mörg ferðalög og atið er mikið. Þau
Kolla eiga sælureit inni í Eyjafirði
og þar held ég að honum líði best,
þar hefur hann nóg við að vera og ef
hann er ekki að smíða eitthvað þar
þá setur hann niður trjáplöntur.“
Valgerður segir Kristján ekki týpuna
sem slappi af uppi í sófa fyrir fram
an sjónvarpið. „Ef eitthvað þarf að
gera heima við þá gerir hann það
gjarnan sjálfur. Sama hvort það er
að slá upp fyrir steypu, smíða eða
flísaleggja. Hann er handlaginn og
er ekkert að kaupa iðnaðarmenn í
verkin. Ég spurði hann einu sinni
af hverju hann væri að þessu sjálf
ur. Þá sagði hann mér að þetta væri
hans besta afslöppun. Svona slapp
ar hann mest af – þegar hann er að
brasa eitthvað.” n
„Ég sé hann alla-
vega ekki fyrir
mér byrja að spreða
peningum.
Einn ríkasti Íslendingurinn
Þeir sem þekkja til Kristjáns segja
að ekki sé hægt að sjá á honum að
hann eigi mikla peninga.
Mynd BjArni EirÍKSSon