Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 36
Helgarblað 11.–14. júlí 201436 Fólk Viðtal
Þ
að er líf og fjör á Víðimeln-
um hjá Bjartmari og eigin-
konu hans, Maríu Helenu
Haraldsdóttur, þegar blaða-
mann og ljósmyndara DV
ber að garði. Hundur þeirra hjóna,
tekur geltandi á móti okkur og inni
í eldhúsi í litlu íbúðinni er dótt-
ir þeirra hjóna, Berglind, með sex
mánaða gamla dóttur sína, Maríu
Björt. Sú litla skríkir og hlær þegar
hún sér okkur og kippir sér lítið upp
við gestagang. „Hún var vanin strax á
hávaða eins og mamma hennar, það
þarf ekkert að tipla á tánum,“ seg-
ir amman og horfir stolt á ömmu-
barnið sem svo sannarlega sver sig í
ættina; með dökkhærðan lubba.
Býr til eigin veröld
Litrík og glaðleg málverk eftir Bjart-
mar sjálfan prýða veggi íbúðarinn-
ar. Tónlistarmenn af öllum toga öðl-
ast líf á strigunum og víða má sjá
málningatúbur, pensla, blöð og allt
það helsta sem fylgir málaralistinni.
Enda er þessi íbúð ein helsta vinnu-
stofa Bjartmars og annað af tveimur
heimilum þeirra hjóna. Annað er fyr-
ir austan, nánar tiltekið á Eiðum. Hér
er hans heimur þar sem hann getur
gleymt sér klukkustundum saman
við sköpun.
„Þú getur ekki trúað því hvað ég er
ofboðslegur lúser. Ég fer aldrei á bar
eða neitt nema bara ég sé tilneydd-
ur til að fara að spila einhvers stað-
ar. Ég bý mér til mína veröld þar sem
ég er og þeir sem vilja koma og hitta
mig koma bara. Ég er samt ekki ein-
rænn, ég er rosalega félagslyndur og
á ofboðslega góða vini þótt þeim sé
reyndar farið að fækka með hækk-
andi aldri,“ segir Bjartmar.
Búa á tveimur stöðum
Íbúðin er lítil en hér er þó allt til alls.
„Þetta er eiginlega meira eins og
sumarhúsið okkar,“ segir María hlæj-
andi. Íbúðina hafa þau leigt í ellefu ár
en hana tóku þau á leigu eftir að þau
fluttust aftur heim frá Danmörku þar
sem þau voru búsett í nokkur ár með-
an Bjartmar nam málaralistina. „Við
höfum alltaf verið á leiðinni að finna
okkur stærri en okkur líður samt
bara vel hér,“ segir hún. Bjartmar er
hér mikið einn þar sem María vinn-
ur hjá Rauða krossinum fyrir austan.
Þau flakka þó milli landshluta og
hann málar, skrifar, tekur upp og
skapar á báðum stöðum. „Hér er ég
með tölvuna og get tekið upp,“ seg-
ir hann og sýnir okkur upptökubún-
að á borðinu. „Hér handskrifa ég svo
textana mína og svo mála ég hér,“
segir Bjartmar og þýtur um íbúð-
ina og svart krullað faxið sveiflast
með. „Þegar ég er hér einn þá er ég
að frá morgni til kvölds. Ég gleymi að
borða, drekk endalaust af kaffi og er
bara á fullu,“ segir Bjartmar. „Þetta er
mín veröld bara, ég þarf lítið annað.“
Sviptur sjálfræði í
peningamálum
Hann segir þau enda vera nokk-
uð nægjusöm. „Okkur líður bara vel
svona, við höfum aldrei verið mikið
fyrir efnislega hluti,“ segir Bjartmar
og heldur áfram. „Gítarinn er rúm-
lega þrítugur, hjónabandið er rúm-
lega þrítugt og ég er búinn að vera
með sömu klippingu frá því um ferm-
ingu,“ segir hann og skellir upp úr.
Hann segir þau aldrei hafa verið
rík og heldur aldrei sérstaklega fá-
tæk. Þau pæli einfaldlega ekki mik-
ið í efnislegum hlutum. „Eitt það
fyrsta sem María gerði þegar hún
kynntist mér var að svipta mig sjálf-
ræði í peningamálum. Ef ég hefði
tekið þátt í hruninu þá hefði það
orðið helmingi verra. Ég kann ekk-
ert á peninga,“ segir hann og skellir
upp úr. „Ég er Þjóðverjinn í þessu,
það væri fyrir löngu búið að senda
mig á Klepp ef hann sæi um fjár-
málin,“ segir María. „Okkur líður
bara vel svona. Dauðir hlutir heilla
okkur ekki, okkur langar bara að
líða vel. Við eigum samt tvö heimili
og tvennt af öllu. Eins og einn vinur
okkar sagði: ef við myndum skilja
þá þyrftum við ekkert að kaupa,“
segir María hlæjandi.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Þrjátíu ára sólóafmæli Nú
eru liðin þrjátíu ár síðan Bjartmar
hóf sólóferil sinn. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan þá og enn er
hann að skapa. Mynd Sigtryggur Ari
„Ég bý mér til
mína veröld
„Gítarinn er rúm
lega þrítugur, hjón
bandið er rúmlega þrítugt
og ég er búinn að vera
með sömu klippingu frá
því um fermingu.
Í ár eru þrjátíu ár síðan að Bjartmar
Guðlaugsson hóf sólóferil sinn sem tónlistar
maður. Hann unir sér best þegar hann hefur sem mest
að gera í sínum eigin heimi og fær að skapa. Fyrir
stuttu greindist hann með flogaveiki sem líklega hefur
fylgt honum alla ævi þrátt fyrir að fyrsta kastið hafi
komið eftir sextugt.
Var hætt kominn