Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 43
Helgarblað 11.–14. júlí 2014 Skrýtið Sakamál 43
E
kki er loku fyrir það skotið
að K. D. Kempamma, sem
einnig gekk undir nöfn-
unum Mallika, Jayamma,
Lakshmi og Savitramma,
hafi verið fyrsta konan sem varð
þess vafasama heiðurs aðnjótandi
að verða raðmorðingi á Indlandi.
Mallika, eins og hún verður nefnd
hér, var handtekin skammt frá
Bangalore, höfuðborg Karnataka-
fylkis, í desember 2007 í kjölfar
rannsóknar lögreglunnar á morði
á barnlausri konu, Nagaveni, sem
glímdi við ófrjósemi. Mallika hafði
blekkt Nagaveni með loforðum um
bót á ófrjóseminni og síðan drep-
ið hana með blásýru og hirt allt fé-
mætt af líkinu.
Rannsókn leiddi enn fremur
í ljós að Nagaveni var ekki fyrsta
fórnarlamb Malliku. Mallika hafði
gefið sig út fyrir að vera guðhrædd
kona og vel kunnug hinum ýmsu
trúarlegu athöfnum sem gætu
komið vel konum sem glímdu við
kvilla af öllum toga.
Hirti skartið
Mallika vingaðist við auðugar kon-
ur sem oft og tíðum sóttu í bæna-
hús. Með tíð og tíma öðlaðist hún
traust þeirra, ekki síst með því að
mæla með trúarlegum athöfn-
um sem áttu að fleyta þeim yfir
erfiða tíma og leysa vandamál
þeirra. En Mallika sagði þeim að
sumar athafnir væru þess eðlis að
einungis hún gæti framkvæmt þær
í ákveðnu musteri.
Síðan hafði Mallika farið með
fórnarlamb sitt á fyrirfram, vel val-
ið bænahús á afskekktum stað,
fjarri heimili þess. Þegar þangað
var komið neyddi hún fórnarlamb-
ið til að drekka blásýrubland-
að vatn og þurfti ekki að spyrja að
leikslokum.
Að morði loknu hirti Mallika
allt skart og öll verðmæti af fórn-
arlambi sínu og skildi líkið eftir
fyrir utan bænahúsið þar sem það
síðar hlyti að finnast af vegfaranda.
Fyrsta morðið
Þessa ábatasömu iðju hafði Mallika
hafið árið 1999, en fyrir þann tíma
hafði hún stjórnað miðlunarsjóði (e.
chit fund) af ónefndum toga, sem ku
víst hafa verið lítið annað en svika-
mylla. Árið 1998 steytti sjóðurinn á
skeri og Mallika tapaði háum upphæð-
um. Eiginmanni hennar og börnum
hugnaðist lítt athæfi hennar og vísuðu
henni á dyr.
Þá sneri Mallika sér að morðum og
fyrsta konan sem féll fyrir hendi henn-
ar var Mamatha Rajan, 19. október
1999 í Hoskote. Síðasta fórnarlambið
var Nagaveni, 18. desember 2007, og
sem fyrr segir var hún handtekin í kjöl-
farið, þegar hún reyndi að koma skart-
gripum Nagaveni í verð.
Reyndar virðist sem Mallika hafi
haldið að sér höndum lengi vel því hún
myrti allt í allt sjö konur og sex þeirra
féllu í valinn í Bangalore á þriggja
mánaða tímabili, frá október fram í
desember 2007.
Borgarbúar slegnir
Eðli málsins voru íbúar í Bangalore
slegnir enda deginum ljósara að Mall-
ika hafði með köldu blóði og yfirvegun
fyrirkomið grunlausum fórnarlömb-
um sínum. Lögreglustjórinn N. Achuta
Rao var ómyrkur í máli: „Ein og óstudd
myrti hún [Mallika] sex konur með
blásýru og rændi þær skarti og verð-
mætum.“
Reyndar hafði Mallika komið við
sögu lögreglunnar áður því hún hafði
verið handtekin árið 2001 þegar hún fór
ránshendi um hús þar sem hún fram-
kvæmdi eina af sínum trúarathöfnum.
Þá hafði hún fengið sex mánaða dóm,
en það er önnur saga.
Í aprílbyrjun 2012 var Mallika
dæmd til dauða fyrir morðið á Naga-
veni. n
Morðkvendið
Mallika „Ein og óstudd myrti hún sex konur með blásýru og rændi þær skarti og verðmætum.
n Grunnt var á guðhræðslunni hjá Malliku n Trúarlegum athöfnum hennar fylgdi andlát
Kaldlynt kvendi
Mallika gekk skipulega til
verks í ódæðum sínum.
Lögfræðingur
rændi banka
Warren Gladders, 64 ára lög-
fræðingur í Missouri í Bandaríkj-
unum, hefur játað að hafa rænt
fjóra banka og skotið lögregluþjón.
Hann játaði þrjú bankarán í sept-
ember síðastliðnum en í vikunni
játaði hann það fjórða á sig og að
hafa skotið lögregluþjón í brjóstið.
Sem betur fer var lögregluþjónn-
inn í skotheldu vesti og slapp hann
að mestu ómeiddur. Saksóknarar
hafa farið fram á að Gladders verði
dæmdur í 25 ára fangelsi. Í um-
fjöllun Huffington Post um málið
kemur fram að óvíst sé hvað varð
til þess að Gladders leiddist inn á
brot alvarlegra afbrota, en hann er
menntaður lögfræðingur frá há-
skólanum í Washington.
Fastur í fangelsi
Karlmaður í Chicago upplifði
talsverða skelfingu þegar hann
festist inni í fangelsi í borginni í
31 klukkustund um helgina.
Maðurinn hafði farið í fangels-
ið til að hitta son sinn sem bíður
dóms vegna fíkniefnamisferlis.
Hann skráði sig hjá starfsmanni
fangelsisins og fékk leiðbein-
ingar um hvert hann ætti að fara.
Einhver misskilningur varð til
þess að maðurinn rambaði inn í
rangan klefa á gangi sem ekki var
í notkun vegna viðgerða.
Hurðum, þar á meðal tveim-
ur stálhurðum, var lokað eftir að
maðurinn fór inn á ganginn og
ekki var nokkur leið fyrir hann að
láta vita af sér. Eftir um 30 klukku-
stunda prísund kom maðurinn
auga á brunaviðvörunarkerfi sem
hann setti af stað. Slökkviliðið var
kallað á staðinn og var mannin-
um bjargað í kjölfarið.
Forsvarsmenn fangelsisins
segja að skoðað verði hvað fór úr-
skeiðis.
Fórnarlamb mannráns
Stephan Small var rænt og hann
grafinn lifandi, þar sem hann
kafnaði. Nancy Rish sem dæmd
var vegna málsins segist saklaus.
Grafinn lifandi í Illinois
Gerandi segist saklaus og biðst vægðar
Á
rið 1988 var Nancy Rish
dæmd í lífstíðarfangelsis-
vist í Illinois-ríki í Banda-
ríkjunum fyrir að hafa tek-
ið þátt í mannráni og morði á
athafnamanninum Stephan Small
ásamt þáverandi kærasta sín-
um, Danny Edwards. Samkvæmt
þeim dómi voru málsatvik þau að
Edwards rændi Small og hugð-
ist krefjast milljón dollara í lausn-
argjald. Hann kom Small fyrir í
viðarkassa, jarðsetti og kom fyr-
ir loftpípu. Samkvæmt dómi brást
loftpípan nærri samstundis sem
varð til þess að Small lést, og það
áður en Edwards gat krafist lausn-
argjalds.
Nancy Rish hefur nú setið inni
í nærri tuttugu og sjö ár vegna að-
komu sinnar að glæpnum. Hún
hefur þó haldið því staðfast fram
að hún hafi ekkert vitað um laun-
ráð Edwards. „Ég bið ykkur um
vægð, að þið finnið það í hjarta
ykkar að veita mér annað tæki-
færi. Í dag þekki ég varla þá óör-
uggu og auðtrúa konu sem ég var
árið 1987,“ skrifaði hún nýverið
í bréfi til náðunarnefndar Illino-
is-ríkis. Hún heldur því fram að
hún hafi verið notuð af Edwards í
ráðabruggi hans; að hún hafi keyrt
hann um án þess að hafa nokkra
vitneskju um áform hans. Edwards
sjálfur hefur gefið út eiðsvarna yf-
irlýsingu um að hún hafi ekki tekið
þátt í mannráninu.
Börn Small er þó ekki á þeirri
skoðun að Rish eigi að fá reynslu-
lausn. Sonur hans, Barett, hef-
ur lýst því yfir að hann hafi þjáðst
af alvarlegri innilokunarkennd
allt frá því hann frétti fyrst af því
hvernig faðir hans dó. „Mér hef-
ur aldrei liðið sem ég væri ör-
uggur frá því að föður mínum var
rænt. Ég hef þurft að líta um öxl
allt mitt líf,“ skrifaði hann í bréfi til
náðunarnefndar. Ríkissaksóknari
ríkisins hefur lagt áherslu á að
dómurinn yfir henni hafi staðist
áfrýjun. n hjalmar@dv.is
Gervilögga
handtók
lögregluþjón
Tvítugur karlmaður komst í
bobba á dögunum þegar hann
villti á sér heimildir og þóttist
vera lögregluþjónn. Ekki vildi
betur til en svo að hann handtók
ósvikinn rannsóknarlögregluþjón
að störfum. Maðurinn kveikti á
bláum, blikkandi ljósum þar sem
hann ók grunlaus á eftir ómerkt-
um lögreglubíl í Flórída.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Chance Anderson lagði bílnum
sínum úti í vegkanti en varð hissa
þegar hann sá ókunnugt andlit
við stýrið í hinum bílnum. And-
erson sagðist oft hafa handtekið
gervilöggur á sínum tíu ára ferli,
en aldrei verið handtekinn sjálf-
ur. Maðurinn hefur verið ákærður
fyrir að villa á sér heimildir og fyr-
ir ólöglega notkun lögregluljósa.