Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Síða 44
Helgarblað 11.–14. júlí 201444 Lífsstíll
Bættu útlitið með
8 fæðutegundum
Náttúrulegar leiðir til þess að líta betur út
L
angar þig að bæta útlitið án
þess að fjárfesta í ógrynni
af dýrum kremum? Matar-
æðið hefur ekki einungis
áhrif á heilsuna, heldur útlitið
sömuleiðis. Þessar átta fæðutegund-
ir hafa yngjandi og hreinsandi áhrif
á húðina, góð áhrif á augnsvæði og
verka á heilnæma upplyftingu lík-
amans almennt. Lífgaðu upp á út-
litið með því að bæta þessari ofur-
fæðu við daglegt mataræði.
1 Spínat Allt er vænt sem vel er grænt. Spínat er mjög heilsu-
samlegt og hefur áhrif á líkamlegt
yfirbragð. Það inniheldur karotín
andoxunarefni líkt og lúteín og
zeaxantín sem verndar og hefur góð
áhrif á augu og sjón. Spínat getur
þannig verið upplyftandi fyrir augun
með því að koma í veg fyrir bólgin
augu og þreytulega ásýnd. Spínat
inniheldur einnig mikið af járni sem
er nauðsynlegt líkamanum.
2 Rauðkál Rauðkál inniheld-ur mörg mikilvæg steinefni.
Þar má nefna súlfur og joð sem
hefur hreinsandi áhrif á líkamann
með því að losa hann við eiturefni.
Einnig gefa þessi steinefni húðinni
ákveðinn ljóma. Hægt er að sjóða
rauðkál eða borða það ferskt. Einnig
er tilvalið að setja það á hamborgara
í stað káls.
3 Grænkál Grænkál inniheldur mikið magn af K-vítamíni sem
getur hjálpað til við að koma í veg
fyrir hjartasjúkdóma og beinþynn-
ingu. Einnig hefur það góð upp-
lyftandi áhrif á húðina sem gefur þér
náttúrulegan ljóma.
4 Rauðrófa Rauðrófur geta minnkað roða í húð og
viðhaldið raka í húðinni. Sömuleiðis
inniheldur rauðrófa betínefni sem
hefur áhrif á efnaskipti fitu og hefur
þannig grennandi áhrif. Rauðrófa
hefur því bæði góð áhrif á húðina
sem og líkamsþyngd. Ef rauðrófa
fellur ekki auðveldlega inn í þitt
hefðbundna mataræði er tilvalið
að kaupa rauðrófusafa og drekka á
hverjum degi.
5 Eggaldin Eggaldin mýk-ir húðina og gefur henni
geislandi áferð. Það inniheldur
einnig andoxunarefnið nasúnin sem
hægir á öldrun húðarinnar. Efnið
hefur einnig verndandi áhrif gegn
krabbameini á þann veg að það
kemur í veg fyrir að krabbameins-
frumur geti dreift sér. Sömuleiðis
hefur nasúnin góð áhrif á heilastarf-
semina og hefur fyrirbyggjandi áhrif
varðandi Alzheimer-sjúkdóminn.
6 Basilika Basilikukrydd inni-heldur mikið af andoxunarefn-
um, þá sérstaklega efninu eugenól.
Þetta meginefni basiliku kemur í veg
fyrir að leghálskrabbameinsfrumur
fjölgi sér og hjálpar í raun til við
niðurbrot þeirra. Einnig hefur efnið
græðandi áhrif og er afar heilsusam-
legt. Það hefur þannig góð áhrif á
húðina og lætur hana líta betur út.
7 Rósakál Rósakál inniheldur mikið af súlfurblöndu sem
kemur í veg fyrir vöxt æxla með
því að stöðva ákveðin ensím sem
geta örvað vöxt þeirra. Að borða
rósakál daglega gefur þér viðeig-
andi dagskammt af súlfur en það
efni minnkar enn fremur líkurnar á
myndun sýkinga, bólgu og liðagigt.
8 Rauð paprika Rauð paprika er ein besta uppspretta C-
vítamíns. Það vítamín er mikilvægt
fyrir vöxt hvítra blóðkorna sem
dregur úr fjölda baktería og sýkla í
líkamanum. Með hæfilegu magni af
C-vítamíni er einnig hægt að bæta
ónæmiskerfið umtalsvert. Enn frem-
ur hefur rauð paprika verið sögð
koma í veg fyrir hrukkumyndun
vegna mikils magns af C-vítamíni.
Grænkál
Hefur góð
upplyftandi
áhrif á húðina
og gefur þér
náttúrulegan
ljóma.
H
eimagerðir safar hafa notið
aukinna vinsælda undanfar-
in ár en það virðist sem að
þessir hollu drykkir eigi sín-
ar skuggahliðar samanborið
við heila ávexti og grænmeti. Með því
að pressa og hakka í safapressu eru
þessar matartegundir ekki eins holl-
ar og ella.
Við safagerð flytjast trefjarnar úr
ávöxtunum og grænmetinu ekki með,
en trefjar eru afar góðar fyrir þig. Þær
örva meltinguna og auka tilfinningu
þess að vera saddur. Auk þess halda
trefjar blóðsykursmagni í jafnvægi
sem dregur úr líkum á aukinni mat-
arlyst vegna lágs blóðsykurs. Trefjar
draga einnig úr líkum á hjartasjúk-
dómum, heilablóðfalli, sykursýki,
offitu, háum blóðþrýsting og fleira.
Trefjar eru þannig ein helsta heilsu-
bót ávaxta og grænmetis.
Trefjamissir er ekki eini ókostur
pressaðra ávaxta og grænmet-
is. Rannsóknir sýna að með því að
setja mat í fljótandi form eykur það
magnið sem við borðum um 30 pró-
sent. Helstu sjúkdómavaldar nútím-
ans eru einmitt til komnir vegna of-
áts, en þar má efna offitu, sykursýki
og háan blóðþrýsting. Þótt ávextir og
grænmeti séu hollar fæðutegundir, er
ekki sniðugt að ofneyta þeirra frekar
en annarra fæðutegunda. Enda inni-
halda til dæmis ávextir mikinn sykur.
Náttúrulegar fæðutegundir líkt og
grænmeti og ávextir verða því síður
en svo hollari við umbreytingu líkt og
safagerð. Best er að borða ávexti og
grænmeti heilt og óunnið. n
Safar draga úr hollustu
Safapressan er ekki eins upplögð og þú hélst Ekki er allt sem sýnist
Betra er að borða
óunna ávexti en
pressaða.
Kuldi veldur
ekki kvefi
Fólk tengir oftast kvef við kulda
og vetrartímann, enda er tíðni
slíkra veikinda hærri þegar kalt
er í veðri. Þegar betur er að gáð
er það í raun ekki kuldinn sem
veldur upptökum kvefsins, held-
ur bakteríuveira. Hvers vegna
smitumst við þá frekar yfir vetr-
artímann?
n Á veturna er fólk líklegra til
eyða meiri tíma innandyra, og
þar af leiðandi meiri tíma í nán-
um samvistum við annað fólk.
Slík návist eykur líkurnar á smiti
til muna.
n Þegar kalt er í veðri lækkar
rakastig í loftinu. Það veldur því
að slímhúðin í nösunum þorn-
ar frekar og vernandi hlutverk
hennar þannig minnkar.
n Yfir vetrartímann er erfiðara
fyrir líkamann að nálgast D-
vítamín vegna minni veru sólar.
Skortur á D-vítamíni veldur því
að ónæmiskerfið er veikara sem
gerir líkamann viðkvæmari fyrir
smitum.
Feitir en
heilbrigðir
Einn fjórði þeirra einstaklinga
sem flokkast „of þungir“ eru í
raun heilbrigðir, með tilliti til
efnaskipta og eru því ekki líklegri
en aðrir að þróa með sér sykur-
sýki.
Þetta kemur fram í rannsókn
sem birtist í tímaritinu Cell. Þar
kemur fram að þótt offita sé stór
áhættuþáttur í sykursýki tengist
þetta tvennt ekki alltaf. Hátt
magn HO-1 sameinda tengist lé-
legum efnaskiptum og auknum
líkum á týpu 2 sykursýki.
Með því að hindra sameind-
irnar batnaði efnaskipti tilrauna-
músa. Vísindamenn vonast til
þess að niðurstöðurnar verði til
þess að bæta meðferðir á efna-
skiptasjúkdómum manna.
Hættulegt
að slamma
Aðdáendur þungarokks ættu
að íhuga að skipta um einkenn-
ishreyfingu, vegna
þess að það að
slamma get-
ur reynst
stórhættu-
legt. Lækn-
ar hafa tengt
heilablæðingu
sem þeir fundu í
aðdáanda hljóm-
sveitarinnar Motorhead við það
hversu mikið hann slammaði.
Um er að ræða fimmtugan Þjóð-
verja sem fékk heilablæðingu eftir
að hafa slammað verulega mikið
á tónleikum hljómsveitarinnar.
Oft eru heilablæðingar orsök
höfuðhöggs, en að hrista hausinn
verulega og í langan tíma virðist
geta haft sömu áhrif.
Þetta er fjórða staðfesta tilvikið
þar sem læknar tengja heilablæð-
ingu eða blóðtappa við að hafa
slammað of mikið. Eitt þessara
tilvika endaði í dauðsfalli.