Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Page 46
Helgarblað 11.–14. júlí 201446 Lífsstíll
Aðeins ein hvít fyrirsæta
Balmain eykur fjölbreytileikann
F
ranska tískuhúsið Balmain hef-
ur fengið mikið lof fyrir sína
nýjustu auglýsingaherferð, en
í herferðinni, sem skartar sex
fyrirsætum, er aðeins ein fyrirsæta
hvít á hörund. Helstu tískuhús heims
hafa sætt mikilli gagnrýni undanfar-
in ár fyrir skort á fjölbreytileika í fyr-
irsætuvali – bæði í auglýsingum og
á tískupöllunum – en til að mynda
voru 78,69 prósent þeirra fyrirsætna
sem gengu tískupallana á tískuvik-
unni í New York í byrjun árs hvít-
ar á hörund samkvæmt vefmiðlin-
um Jezebel. Það er aðeins lækkun
um 1,29 prósent síðan á sama tíma í
fyrra, þegar hlutfall hvítra fyrirsætna
var 79,98 prósent. Segja má því að
nýjasta auglýsing Balmain sé nokk-
uð tímabær viðbót í auglýsingaflór-
una og binda margir vonir við að
herferðin sé til marks um breytingar
innan tískuheimsins hvað varðar val
á fyrirsætum.
Auglýsingar herferðarinnar voru
ljósmyndaðar af Mario Sorrenti og
skarta fyrirsætunum Jourdan Dunn,
Cara Delevingne, Ysaunny Brito, Issa
Lish, Binx Walton og Kayla Scott,
íklæddum dýramynstruðum fatnaði.
Hinn franski Olivier Rousteing, yfir-
hönnuður Balmain, sagðist í viðtali
við Women's Wear Daily á dögunum
hafa viljað senda skýr skilaboð með
herferðinni. Með henni hafi hann
viljað sýna að „fegurðin í ólíkum kyn-
þáttum endurspegli raunveruleika
nútímaborga á borð við París“ auk
þess að tengja herferðina við sína
persónulegu reynslu af því að vera
„svartur strákur í mjög mikilvægu
frönsku tískuhúsi“. n horn@dv.is
Aðeins ein hvít Auglýsingar
herferðarinnar hafa vakið mikla
athygli innan tískuheimsins.
Einföld leið til
að laga brotinn
varalit
Flestir sem nota
varalit hafa lent í
því óláni að bút-
ur úr varalitnum
brotnar af. Þetta má
auðveldlega laga með nokkrum
skrefum, en það eina sem þarf
eru eldspýtur eða kveikjari.
Berið logandi eldspýtu eða
kveikjara upp að varalitn-
um og bræðið efsta lagið varlega.
Leggið brotna hlutann ofan
á hið brædda lag.
Berið einnig eld að sam-
skeytunum til að bútur-
inn festist betur og áferðin verði
sléttari.
Kælið varalitinn með því að
setja hann í ísskáp í 15 til 30
mínútur.
Takið varalitinn úr ísskápn-
um og sléttið misfellur með
fingrunum. Hann ætti að vera
orðinn eins og nýr!
1
2
3
4
5
Náðu silki-
mjúku hári
eftir þvott
Þeir sem vilja hugsa vel um hár-
ið ættu aldrei að bursta það eða
greiða strax eftir
þvott. Að greiða
blautt hár get-
ur valdið því
að það slitnar
auðveldlega
og það ættu
flestir að reyna
að forðast. Hins
vegar eru margir sem
kjósa að greiða hárið að lokn-
um þvotti því það á gjarnan til að
verða flókið í sturtunni. Hér eru
þrjú góð ráð til að ná sem mýkstu
hári eftir þvott.
Ekki þurrka hárið með
handklæði, heldur
bómullarbol. Bolurinn hef-
ur mun sléttari áferð og veldur
því síður að hárið verði úfið eftir
þurrkun.
Notaðu „leave in“-hárnær-
ingu eða góða hárolíu eftir
sturtu til að gera það sem mýkst.
Þegar hárið hefur fengið nægan
raka með slíkri vöru er hægðar-
leikur að greiða í gegnum það án
þess að valda skaða.
Byrjaðu neðst og færðu
þig upp að hársverði með
stuttum burstastrokum. Þannig
myndast síður flókar og hárið
skemmist síður.
1
2
3
Ragna finnur inn-
blástur á Google
n Hrifin af stílhreinni hönnun n Tekur þátt í keppni á vegum Vogue
É
g heillast mjög af skandinav-
ískri hönnun, hún er svo ein-
föld, falleg og praktísk. Það
er líka svo mikill uppgangur í
henni í dag og gaman að fylgj-
ast með því sem er að gerast,“ seg-
ir Ragna Sigríður Bjarnadóttir fata-
hönnuður, í samtali við DV. Ragna
hefur alla tíð haft áhuga á hönnun
og tísku og segist eyða heilu dögun-
um á Google í leit að innblæstri,
en hún útskrifaðist nýverið úr fata-
hönnunardeild Listaháskóla Íslands
og tók í sumar þátt í hönnunar-
keppni á vegum Vogue og Muuse.dk.
Heiður að taka þátt
Í sumar hefur Ragna tekið þátt í
hönnunarkeppni á vegum Vogue og
dönsku vefsíðunnar Muuse.
„Muuse finnur nýútskrifaða
hönnuði og býður þeim að framleiða
útskriftarlínuna sína í samstarfi við
þau. Línan er þá löguð að almennum
markaði og síðan framleidd og seld á
netinu hjá þeim,“ útskýrir Ragna.
„Hönnuðurinn fær að vera með í
öllu og fær prósentu af hverri seldri
flík. Ég mundi eftir þessari keppni
síðan í fyrra svo ég var tilbúin fyrir
frestinn og sendi inn myndir af loka-
línunni minni.“
Rúmlega 400 manns sóttu um að
taka þátt í keppninni
og voru 150 hönnuðir
valdir til að taka þátt í
netkosningunni sem
lýkur í dag.
„Markmiðið er
að vera í topp 50
því úr þeim hópi er
valinn sigurvegari
og þeir vinsælustu
fá líka verðlaun. Það
er auðvitað heið-
ur að fá að taka þátt
í svona keppni og
gaman að vera með
og sjá allt sem aðrir
eru að gera líka.“
Á erfitt með að klæða sig
„Ég hef alltaf haft mjög mikinn
áhuga á fötum og tísku og öllum
pælingunum þar á bak við: Hvað
fær fólk til að klæðast einhverju sér-
stöku, af hverju er eitthvað flott og í
tísku, hvað er það sem ákveður hvað
fer hverjum og einum vel, hvað er
fólk að hugsa þegar það klæðir sig
fyrir daginn eða fyrir ákveðið tilefni?
Ég pæli stundum svo mikið í þessu
sjálf að ég á erfitt með að klæða sjálfa
mig,“ segir Ragna, sem
er enginn nýgræðingur
þegar kemur að sauma-
skap.
„Ég var alltaf að
föndra þegar ég var
yngri, missti mig í
dúkkulísugerð og tók
fjórfaldan saumatíma í
grunnskóla,“ segir hún.
Ragna var á eðlis-
fræðibraut í Menntaskólanum í
Reykjavík en segist hafa fengið útrás
fyrir hönnun og saumaskap með því
að vera í búningadeild Herranætur,
leikfélags skólans, öll sín ár.
„Á þessum tíma byrjaði ég að
sauma meira á sjálfa mig. Mér
finnst að sjálfsögðu allt sem ég bjó
til á þeim tíma vera agalega vand-
ræðalegt í dag,“ segir hún.
Framtíðarleg hönnun
„Ég sæki innblástur aðallega í
myndefni, ég á það til að eyða heilu
dögunum á Google – sem býður
upp á alls konar auka útúrdúra – og
ég skoða mikið af bókum og blöð-
um. Ég heillast mikið af beinum lín-
um, sterkri grafík og óvenjulegum
formum. Ég get ekki nefnt neinn
sérstakan áratug sem heillar mig
meira en annar, nema að ég elska
samfélagslega þáttinn við tískuna
á þriðja og svo sjöunda áratugnum,
þegar konur gáfu skít í lífstykkin og
fóru að dansa uppi á borðum.“
En hvernig myndi Ragna lýsi
sinni eigin hönnun?
„Í takt við innblásturinn verður
hönnunin mín oft grafísk, stílhrein
og framtíðarleg og ég elska að búa
til fallegar litapallettur. Í augna-
blikinu er ég heilluð af bleikum og
elska að nota hann þannig að hann
verði alls ekki kvenlegur,“ segir hún.
Vill prófa allt
Ragna starfar í sumar sem flug-
freyja hjá Icelandair en segist klæja
í puttana að fara að sauma, teikna
og hanna á ný í haust. En hver er
draumurinn?
„Ég stefni á mastersnám eftir
ár, og eftir það hef ég bæði áhuga á
því að vinna fyrir stærri hönnunar-
fyrirtæki, líklega á Norðurlöndun-
um, og líka að vinna við mitt eigið
merki. Svo er ég búin að prófa að-
eins búningahönnun sem er allt
öðruvísi en mjög skemmtileg líka.
Mig langar einfaldlega að prófa
allt!“ n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
„Moodboard“ Ragna segist eyða heilu
dögunum á Google í leit að innblæstri.
Útskriftarlína Rögnu Ragna segist hrifin af beinum línum, sterkri grafík og óvenjulegum formum.
Wurst lokaði
hjá Gaultier
Austurríska söngkonan Conchita
Wurst lokaði tískusýningu franska
fatahönnuðarins Jean Paul Gaulti-
er á dögun-
um, en Wurst
stóð uppi sem
sigurvegari í
Söngkeppni
evrópskra
sjónvarps-
stöðva í maí
síðastliðn-
um. „Ég segi
alltaf að fegurð sé að vera öðruvísi
og Conchita hefur sýnt okkur öll-
um að hún er óstöðvandi,“ sagði
hönnuðurinn í samtali við The
Independent eftir sýninguna. „Og
hún lítur frábærlega út í hátísku,
hún er alvöru hátískukona,“ bætti
Gaultier við. Fyrirsætuval Gaultier
vakti mikla athygli á sýningunni,
en fatnaðurinn einnig. Fyrirsæt-
urnar klæddust dökkum kjólum
úr glansefni og báru rauðan varalit
við fölhvíta húð.