Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 53
Helgarblað 11.–14. júlí 2014 Slyngir sláttumenn Laugavegi 29 · sími 552 4320 · www.brynja.is Orf úr áli 22.840 kr. Orf úr tré 17.200 kr. Ljár 7.950 kr. Heyhrífa 4.500 kr. Opið vir ka daga frá 9-18 lau frá 1 0-16 Menning 53 Íslenski safnadagurinn haldinn í þrettánda sinn Fjölbreytt dagskrá um allt land Í slenski safnadagurinn er haldin hátíðlegur í 13. sinn sunnu- daginn 13. júlí. Hátíðardagskrá er að finna víða um land en DV tók saman lista yfir nokkra af helstu viðburðunum. Þá verða ís- lensku safnaverðlaunin einnig af- hend en þrjú söfn eru tilnefnd. Hafnarborg – menningar og lista- miðstöð Hafnarfjarðar, Rekstrarfé- lagið Sarpur og Þjóðminjasafn Ís- lands. Ókeypis aðgangur verður að Listasafni Íslands, Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar og Safni Ás- gríms Jónssonar. Boðið verð- ur upp á leiðsögn um söfnin og hefst leikurinn á Listasafni Íslands klukkan 14.00 þar sem Halldór B. Runólfsson safnstjóri leiðir gesti um sýninguna Spor í sandi eftir Sigurjón Ólafsson. Klukkan 14.30 verður Birgitta Spur með leið- sögn um annan hluta sýningar- innar Spor í sandi í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar. Klukkan 15.00 hefst svo leiðsögn Eyrúnar Óskars- dóttur um sýninguna Forynjur og Húsafell Ásgríms í safni Ásgríms Jónssonar. Klukkan 13.00 hefst fjölskyldu- leiðsögn í Hafnarborg – menn- ingar- og listamiðstöð Hafnar- fjarðar, um sýninguna Ummerki sköpunar. Á sýningunni er að finna verk eftir marga af þekktustu listamönnum þjóðarinnar. Þá er einnig opin listasmiðja frá 13–16 sem Sirra, Sigrún Sigurðardóttir, stýrir. Þá er fjölmargt annað á dag- skrá yfir daginn. Aðgangur er ókeypis að Byggðasafni Hafnarfjarðar. Í Pakk- húsinu á Vesturgötu 8 eru uppi þrjár sýningar en safnið á hús víða um bæinn sem einnig er opinn að- gangur að. Hægt er að finna nánari upplýsingar um söfn landsins og dagskrána á safnamenn.is. Ókeyp- is aðgangur er að flestum söfnum og af gríðarlega miklu að taka. n asgeir@dv.is tölvuleikjanördans Vilja efla tölvuleikjamenningu á Íslandi H efja þarf tölvuleikja- menningu á Íslandi til vegs og virðingar. Þetta er mat tveggja ungra tölvuleikjanörda, Odds Ævars Gunnarssonar og Geirs Finnssonar, sem halda úti og rit- stýra vefsíðunni Leikjafrettir.is. Síðan hefur tilheyrt netinu í heilt ár, en hún er fyrst núna að vekja athygli spilara úti um allt land. Sjálfboðavinna Ritstjórarnir tveir njóta liðsinnis vina sinna við skrif á síðuna en all- ir eru þeir í sjálfboðavinnu, drifn- ir áfram af áhuga og ástríðu fyrir tölvuleikjum. En þar eð straum- ur gesta þyngist dag frá degi bú- ast þeir við að geta með tíð og tíma fengið örlítið í aðra hönd með aug- lýsingasölu. „Þetta er nánast orðin full vinna. En við viljum auðvit- að stækka enn þá meira,“ segir Oddur og bætir við að þeir horfi meðal annars til fótboltasíðunn- ar fotbolti.net, sem byrjaði sem áhugamál en varð svo að einni vinsælustu vefsíðu landsins. „Hún var stofnuð 2002 og er núna búin að festa sig rækilega í sessi. Í henni höfum við ákveðna fyrirmynd; þetta er eitthvað sem við viljum gera. En það er auðvitað langtíma- verkefni.“ Heimavöllur tölvuleikjanördans Strákarnir skrifa um tölvuleiki allra vinsælustu leikjatölvanna, Playstation, Xbox og Nintento – auk þess að fjalla um PC-leiki. „Leikjasamfélagið á Íslandi hefur tekið okkur fagnandi. Við erum að skrifa frá þremur fréttum og upp í átta fréttir á dag og fá hátt í tvö þúsund heimsóknir,“ segir Odd- ur og heldur áfram: „Þetta er eina íslenska síðan á netinu sem fjall- ar einungis um tölvuleiki, í því er sérstaða okkar fólgin. Það vantaði klárlega umfjöllun um tölvuleiki á góðri íslensku. Þetta er nýr heima- völlur tölvuleikjanördans.“ n Heimavöllur Oddur Ævar Gunnarsson Oddur vonast til þess að síðan verði jafn vinsæl og fotbolti.net. Halldór B. Runólfsson Safnstjóri leiðir gesti um sýn- inguna Spor í sandi eftir Sigurjón Ólafsson. Mynd SiGtRyGGuR ARi Tilnefningar til íslensku safnaverðlaunanna 2014 Íslenski safnadagurinn er sunnudaginn 13. júlí Íslensku safnaverðlaunin er viðurkenning sem er veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Almenningur, stofnanir og félagasamtök geta sent inn ábendingar um safn eða einstök verkefni á starfssviði. Í ár var söfnum í fyrsta skipti heimilt að senda inn kynningar á eigin verkefnum. Hafnarborg – menningar og listamiðstöð Hafnarfjarðar Fyrir metnaðarfulla sýningardagskrá og samfélagslega virkni þar sem þátttaka almennings er lykilatriði. Rekstrarfélag Sarps Fyrir ytri vef menningarsögulega gagnasafnsins Sarps. Þjóðminjasafn Íslands Fyrir dagskrá í tilefni 150 ára afmælis safnsins. Möller umhverfis Ísland Raftónlistarmenn halda í tónleikaferð í sumar Í slenska raftónlistarforlagið Möll- er Records ætlar að halda í tón- leikaferð um landið í sumar. Þrír til fjórir raftónlistarmenn munu koma fram á hverjum stað. Þeir eru Futuregrapher, Skurken, Bistro Boy, Steve Sampling, Subminimal, Einar- Indra, Tanya Pollock, Snooze Infini- ty, Jafet Melge, Orang Volante og Modesart en verkefnið er styrkt af tónlistarsjóðnum Kraumi. Ferðalagið hefst á tónleikum á Þingvöllum 16. júlí en endar í Höfn- um á Reykjanesi 3. ágúst. Aðrir áfangastaðir eru meðal annars Ísa- fjörður, Akureyri, Egilsstaðir og Höfn í Hornafirði. Möller Records var stofnað árið 2011 af tónlistarmönnunum Árna Grétari sem er þekktur undir lista- mannsnafninu Futuregrapher og Jóhanni Ómarssyni sem er þekktur sem Skurken. Með þeim starfa að út- gáfumálum Frosti Jónsson eða Bi- stro Boy og Stefán Ólafsson, einnig þekktur sem Steve Sampling. Möller Records hefur gefið út 24 plötur, þar af 8 breiðskífur, 3 safnplötur, 2 stutt- skífur og 11 smáskífur. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á moller- records.com. n Futuregrapher Árni Grétar, einn af stofnendum Möller Records.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.