Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 62
62 Fólk Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Þ
að þarf ekkert að vera leiðin-
legt í kirkju. Það er alveg
óþarfi að fólk gangi að því
sem vísu, það er bara vitleysa.
Það er sjálfsagt að brjóta upp
helgihaldið bæði með tónlist og ýms-
um máta,“ segir Oddur Bjarni Þorkels-
son, meðlimur í hljómsveitinni Ljótu
hálfvitarnir. Oddur var í vikunni ráð-
inn prestur í Möðruvallakirkju en
hann útskrifaðist úr guðfræði fyrir ári
síðan.
Oddur segir að margt hafi spil-
að inn í þann áhuga að vilja verða
prestur. „Þetta hefur alltaf blundað í
mér. Ég er trúaður og ég hef verulega
sterka köllun til þess að vinna með
fólki. Ég er búin að vera leikstjóri í tæp
tuttugu ár, hef því verið að leikstýra og
vera hálfviti og guð má vita hvað. Ég
held að allt sem ég hef gert, að skrifa,
geta komið fram, talað við fólk og
miðlað sé ákaflega notadrjúgt í prests-
starfinu,“ segir Oddur.
Mikil músík í kirkjunni
Oddur vonar að hann geti fært kirkju-
starfseminni ferskan blæ en tekur
starfinu á sama tíma alvarlega. „Ég
held að lífið sé of stutt til að hafa ekki
gaman af því. Svo er það bara spurn-
ing um hvenær hlutir eiga við og
hvenær ekki. Maður verður líka að
vanda sig. Það verður að vera þannig,
í hverju sem þú gerir. Stundum á við
að vera í stuði en stundum á það bara
ekki við,“ segir Oddur sem telur kirkju-
starfið þó bjóða upp á mikla tónlistar-
menningu, sem er einmitt eitt af hans
sérsviðum.
„Það er mikil músík í kirkjunni,
eins og messum, þar má brjóta upp
á ýmsan hátt. Þegar þú ert kominn í
barnastarfið er líka mjög mikil tón-
list,“ segir Oddur sem segir sóknar-
menn hafa gaman af því þegar kirkju-
starfið er brotið upp með tónlist. „Til
dæmis flutti ég míní-söngleik í fjöl-
skyldumessu í Langholtskirkju í vetur.
Það var ævintýralega gaman að horfa
framan í fólkið þegar upphafstónarnir
í laginu Don't Stop Believing með Jo-
urney byrjuðu. Það var mjög gaman.“
Kirkjan sykki við
Ljótu hálfvitana
Aðspurður hvort hann ætli að reyna
að fá Ljótu hálfvitana til að flytja tón-
list í kirkjunni segir hann kíminn að
ólíkar lífsskoðanir gætu komið í veg
fyrir það. „Þá hugsa ég að hún sykki,“
segir Oddur um hugsanlega heim-
sókn hljómsveitarinnar. „Ég er ekki
viss um að það færi vel,“ segir hann og
hlær. „Þeir eru ekki sérstaklega kirkju-
ræknir menn svona í það heila, myndi
ég segja. En við skulum aldrei segja
aldrei. Það er alveg markmið út af fyr-
ir sig að koma hálfvitunum saman
í kirkju og láta þá spila,“ segir Oddur
vonglaður.
Fjölskyldan með
„Já, við förum öll, setjumst að á
Möðruvöllum, það verður gaman,“
segir Oddur en eiginkona hans, Mar-
grét, flytur með honum norður þegar
hann tekur við ásamt Sunnevu, átta
vikna gamalli dóttur þeirra. Raunar
var Oddur fyrir norðan þegar blaða-
maður náði tali á honum, enda er fjöl-
skyldan þaðan og þau hjónin vinna
þar á sumrin.
„Ég vinn alltaf fyrir norðan á sumr-
in. Ég er grjóthleðslumaður. Er núna
að hlaða kirkjugarð í Aðaldal. Venju-
legast væri Margrét mín með mér að
hlaða, en hún er að sinna átta vikna
gamalli dóttur okkar og er því lög-
lega afsökuð. Hún hefur mikilvægari
hnöppum að hneppa,“ segir Oddur
en þau Margrét eru alsæl með frum-
burð sinn.
Vill gera gagn
„Ég lít á þetta sem ákaflega skemmti-
legt verkefni. Ég hef ekki verið prestur
áður þannig ég hlakka gríðarlega til að
takast á við þetta. En auðvitað er þetta
rosalega erfitt starf. Mjög margir þætt-
ir þarna sem eru gríðarlega krefjandi
og slítandi. Ég hugsa ekki með mér
að ég hlakki til að þurfa að færa ein-
hverjum slæm tíðindi, en auðvitað er
það partur af starfinu. Ég held að þetta
snúist fyrst og fremst um það að ég
geti komið guði og góðu fólki að gagni,
vonandi get ég orðið að gagni á þenn-
an hátt,“ segir Oddur að lokum. n
Hálfviti og svo
sóknarprestur
n Hljómsveitin myndi sökkva kirkjunni n „Vonandi get ég orðið að gagni …“
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is „Stundum á við
að vera í stuði en
stundum á það bara ekki
við.
Flytja með norður Átta vikna gömul
dóttir Odds og Margrét, kona hans, flytja
með honum. Mynd Úr einKaSaFni
Vinsælir
Ljótu hálf-
vitarnir eru
skemmtilegir
á sviði Mynd Úr
einKaSaFni
Leitar að
heitum potti
Siggi Hlö svalar fortíðarþrá Ís-
lendinga á hverjum laugardegi
á Bylgjunni í þættinum sínum
Veistu hver ég var? Þeir sem hafa
hlustað á þáttinn vita að mjög
margir hringja í Sigga úr sumar-
bústöðum og þá gjarnan úr heita
pottinum við bústaðinn. Nú leit-
ar Siggi sjálfur að heitum potti og
biðlaði til Facebook-vina sinna
um hjálp. „Þjóðin hringir í mig úr
heitum pottum allar helgar. Nú
leita ég ráða hjá ykkur. Langar að
kaupa mér heitan pott í garðinn.
Hverju er mælt með og hvert á
ég að leita eftir gæðum og góðri
þjónustu?“ skrifaði hann á Face-
book-síðu sína.
Alþingis-
bóndakona
Yngsti þingmaður Íslands-
sögunnar, Jóhanna María Sig-
mundsdóttir, lætur sér ekki
nægja að setja lög á Alþingi og
búa til betra samfélag fyrir okk-
ur hin. Það er bara vetrarvinnan
hennar. Í sumar tekur hún fullan
þátt í bústörfum á bóndabæ for-
eldra hennar á Látrum. „Byrjaði
daginn í gær á mjöltum,“ skrifar
þingkonan á Facebook, en hún
hefur greinilega sveigjanlegan
vinnutíma á bænum. „Renndi
svo suður og undirbjó mig fyrir
næstu daga.“
Jóhanna ætti að þekkja hand-
tökin á bænum ágætlega enda
með háskólagráðu í búfræði.
Balti á nýjum
Porsche
Baltasar Kormákur er upptek-
inn þessa dagana við það að lepja
smjör af stráum Los Angeles.
Leikstjórinn hefur sem kunn-
ugt er slegið í gegn þar í borg
með myndunum Two Guns og
Contraband, auk þess sem hann
er með ýmis verkefni í pípunum.
Balti virðist hins vegar hafa flutt
inn eina klípu eða tvær því nú
ekur hann um götur Reykjavíkur
á spánnýjum Porsche Panamera.
Slík bifreið kostar skildinginn en
hægt er að fá hana beint úr kass-
anum hjá Bílabúð Benna á tæp-
lega sautján milljónir.
Losnaðu við ofsóknir Sveins Andra
Stjörnulögmaður hleypur fyrir langveika hetju
Þ
essa dagana keppist fólk um að
tilkynna þátttöku sína í Reykja-
víkurmaraþoninu sem fram fer
23. ágúst næstkomandi. DV
sagði frá því fyrir skemmstu að krafta-
karlinn Hafþór Júlíus Björnsson hygð-
ist hlaupa fyrir Duchenne-samtökin,
en duchenne er ólæknandi vöðva-
rýrnunarsjúkdómur. Nú hefur ann-
ar kraftakarl – ívið minni – ákveðið að
hlaupa úr sér lungun, Sveinn Andri
Sveinsson.
Hafþór ætlar að hlaupa þrjá kíló-
metra en Sveinn segir ekkert annað en
heilt maraþon koma til greina. „Er til
hálft maraþon?“ spyr stjörnulögmað-
urinn blaðamann kíminn og heldur
áfram: „Það er „all or nothing“.“
Sveinn er ekki einungis að hlaupa
fyrir eigin línur og hégóma. „Ég hleyp
fyrir lítinn langveikan strák sem heit-
ir Jóhann Seifur,“ segir Sveinn en fjöl-
skyldu Jóhanns kynntist hann í gegn-
um sameiginlegan vin og ákvað í
kjölfarið að hjálpa til. Jóhann
Seifur Marteinsson er eins
árs og þjáist af sjúkdómi af
Dravet-rófi hvers einkenni
eru illvíg flog, svefnleysi
og ójafnvægi á líkamshita.
„Söfnunin byrjaði bara
í gær en síðast þegar ég
kíkti voru 45 þúsund krón-
ur komnar inn.“ Og á hvaða
upphæð er stefnan sett? „Því
meira því betra.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Sveinn tekur þátt í maraþoninu en
hann hljóp einnig maraþon í fyrra.
Spurður um undirbúninginn segist
Sveinn hafa lagst í hlaupadvala í vetur,
enda sé ómögulegt að hlaupa í óveðri,
og aftur í HM-dvala í júní og byrjun
júlí. Núna er hann hins vegar að skríða
úr híðinu. „Ég hleyp bara 11 kílómetra
nokkrum sinnum, og síðan nokkur
lengri hlaup. Þá verð ég góður.“
Á Facebook-síðu sinni er Sveinn
strax farinn að hvetja vini sína til að
leggja sér lið. Þar skrifar hann: „Ég
mun ásækja vini mína á facebook út
yfir mörk alheimsins þar til þeir hafa
látið eitthvað af hendi rakna.“
Hægt er að losna við ofsóknir lög-
mannsins með því að fara inn á vef-
síðuna hlaupastyrkur.is og leggja inn á
styrktarreikning Jóhanns. n
baldure@dv.is
Tveir góðir Sveinn hvet-
ur alla til að leggja Jóhanni
og fjölskyldu hans lið.