Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 64
Helgarblað 11.–14. júlí 2014
53. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Þetta er bara
bissness!
„Selfie“ með hval
n Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokks og
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
er nú í sumarfrí líkt og allir al-
þingismenn. Af Facebook-síðu
hennar að dæma virðist hún vera
stödd á nyrsta hlut Norður-Þing-
eyjarsýslu, í nágrenni Kópaskers.
Á fimmtudag deildi hún „selfie“
eða sjálfsmynd af sér í hvala-
skoðun og mátti glögglega sjá
hval í bakgrunn. Í kjölfar þess að
griðasvæði hvala á Faxaflóa var
minnkað sagð-
ist hún vilja
sætta sjónar-
mið hvala-
skoðunar-
fyrirtækja og
hvalveiði-
manna. Hún
hefur lagt
áherslu á að
meirihluti Ís-
lendinga
styddu
veiðar.
Gefðu fallegan
lífsförunaut
í brúðkaupsgjöf
Notknot púðar - hönnun: Ragnheiður Ösp
BRÚÐKAUPS-
GJAFALISTAR
OG GJAFAKORT
Harpa / Skeifan 6 /Keflavíkurflugvöllur / 5687733 / epal@epal.is / epal.is
Flutti inn tímaflakkara
Arðvís-sakborningur segir hagkerfið þrífast á tilfinningum
B
jarni Þór Júlíusson, sakborn-
ingur í Arðvís-málinu, á sér
skrautlega sögu. Honum,
ásamt Úlfari Guðmundssyni,
er gefið að sök að hafa dregið sér fé úr
sjóðum fyrirtækjanna Costa og Arð-
vís til einkaneyslu. Í heildina er hann
sakaður um að hafa tekið fjörutíu
milljónir króna úr sjóðum fyrirtæk-
isins. Hann neitaði sök er málið var
þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á
miðvikudag.
Árið 2008 hélt hann úti vefsetr-
inu human.is en markmið þess var
sagt vera að veita ráðgjöf og fræðslu
á sviði óhefðbundinna læknismeð-
ferða. Stærsta verk-
efni human.is hefur
sennilega verið í mars
árið 2008 þegar Bjarni
Þór flutti til lands-
ins Stewart Swerdlow;
tímaflakkara, höfr-
ungahvíslara og geim-
veru, að eigin sögn.
Í grein í 24 stundum
um fyrirlesturinn segir
Bjarni Þór: „Þú hefur aldrei komist í
tæri við neitt svipað. Þú munt hvítna
og svitna og blána.“ Swerdlow hefur í
gegnum tíðina meðal annars haldið
því fram að einhverfa stafi af því að
viðkomandi sé andtek-
inn af höfrungi.
Á vefsíðu human.is
varpar Bjarni Þór fram
ýmsum kenningum sín-
um um efnahagskerfið.
„Ef grannt er skoðað þá er
þetta umtal um ofurhagn-
að yfirleitt ekki allur sann-
leikurinn, heldur útblás-
inn hálfur sannleikur til
að selja betur auglýsingar, sem eru
einnig af sama meiði. Við erum tilf-
inningaverur. Á því þrífst hagkerfið.
Oft er talað um að menn séu að tapa
milljörðum eins og ekkert sé og menn
grínast með að það skipti varla máli,“
skrifaði Bjarni Þór þá. Hann heldur
áfram og segir að núverandi hagkerfi
muni leiða mannkynið til glötunar.
„En vandinn við þetta allt er falinn í
egóinu, ranghugmyndum sem fjölda-
framleiða spjátrunga sem tala um
skilgreiningu orðsins „samkeppni“.“ n
hjalmar@dv.is
Ákærður fyrir fjárdrátt Bjarni Þór
hefur komið víða við en hann flutti Steward
Swerdlow til landsins árið 2008.
Listaskáld með
„Hannesarfóbíu“
n Gagnrýni á rannsóknarver-
kefni Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar tröllreið umræðu
vikunnar. Rithöfundurinn Andri
Snær Magnússon spurði Hann-
es í einni stöðuuppfærslu hans
á Facebook á miðvikudag vegna
málsins um hvort eðlilegt væri
að stjórnmálamenn fjármögn-
uðu rannsóknir innan háskól-
ans. Gústaf Níelsson, bróð-
ir Brynjars Níelssonar, var þá
nýbúinn að gera athugasemd
þar sem hann sagði að „Hann-
esarfóbía“ hefði „gripið um sig
á vinstri væng stjórnmálanna,
einkum meðal „listaskálda“.“
Brást Gústaf hinn
versti við spurn-
ingu Andra Snæs
og sagði honum
að beina þessari
spurningu frekar
til Stefáns Ólafs-
sonar félagsfræði-
prófessors.
Í leit að glötuðu
brauði
n Guðmundur Andri Thorsson og
Egill Helgason, sem Hannes Hólm-
steinn Gissurarson kallar bloggher-
menn, skeggræddu brauðmenningu
og eldri tegundir brauðs á Facebook
á fimmtudaginn. Umræðan fór af
stað þegar Egill spurði hvort ein-
hver myndi eftir Safabrauði. „Er að
reyna að rifja upp hvernig umbúð-
irnar voru? Mikil nýjung, niður-
sneitt fransbrauð í „neytendaum-
búðum“,“ spurði Egill. Guðmundur
Andri var einn þeirra sem mundi
vissulega eftir Safabrauði. „Man að
mamma vildi ekki kaupa það. Ég
var hálf fúll því að ég var svo hrifinn
af umbúðun-
um,“ skrif-
aði hann.
Egill fór því
næst að
ræða um
hnign-
andi
brauð-
menningu
á Íslandi.