Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Síða 11
Inngangur.
Introduction.
1. Um búnaðarskýrslurnar almennt.
General statement.
Búnaðarskýrslurnar eru að þessu sinni aðallega fyrir árið 1960. Þó
sýna þær einnig jarðargróða, tölu búpenings, búsafurðir, jarðabætur og
fjárfestingu 1958 og 1959.
Skýrslur þessar eru mjög með sama hætti og búnaðarskýrslurnar
fyrir árin 1955—57. Eyðublaðinu undir búnaðarskýrslur skattanefnda
og skattstjóra hefur ekki verið breytt frá því, er var 1957, og af því leiðir,
að skýrslurnar eru nú í sama formi og þá. Eina breytingin, er nokkru
verulegu varðar, er, að töflur um busafurðir eru nú fyrir öll árin, 1958,
1959 og 1960, en í skýrslunum 1955—57 er aðeins tafla um búsafurðir
árið 1957.
Bunaðarskijrslur skattanefnda voru að þessu sinni yfirleitt vel gerðar.
Aðeins fáar skýrslur þótti ástæða til að bera saman við skattaframtöl,
og skýrslum skattanefnda ekki breytt, nema að því leyti, að skipting
bænda og búlausra var á nokkrum þeirra færð til samræinis við aðrar
skýrslur, en þó ekki meira að því gert en vafalaust þótti, að við rök
hefði að styðjast.
Skattanefndir taka þá eina á búnaðarskýrslu, sem telja fram búfé
og jarðargróða. Því koma ekki á skýrslu ýmsir þeir, er vinna við land-
búnað, og eigi heldur margt roskið fólk, sem lifir á eignum eða ellilaun-
um, þó að það sé í skjóli bænda (foreldrar, gömul vinnuhjú o. f 1.).
Koma þvi eigi fram allar launatekjur né bótagreiðslur þeirra, er að land-
búnaði vinna, og eigi heldur allar eignir eða eignatekjur þeirra, er hafa
framfæri sitt eða hafa haft af landbúnaði. Þetta er vitanlega vöntun,
en við því er ekki unnt að gera, nema skýrslugerðinni sé verulega breytt.
Það orkar tvímælis, hvar mörkin ætti að setja milli þeirra, sem vera
ættu á búnaðarskýrslu, og hinna, er þar eiga ekki að vera. En sú regla,
sem fylgt hefur verið um þetta, hefur þann mikla kost, að auðvelt er
að fylgja henni. Ef skattanefndirnar hafa tekið á búnaðarskýrslu sína
einhverja þá, sem ekki telja fram bú eða jarðargróða, hefur Hagstofan
fellt þá af skýrslunum, og eftir það á ekki að geta miklu munað um
það, hverjir eru á þær færðir. Hins vegar er talsvert mikill munur á því,
hversu vandlega til skýrslnanna er safnað búleysingjum þeim, er telja
aðeins fram fátt búfé eða lítinn jarðargróða.
b