Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Blaðsíða 18
16*
BúnaðarBkýrsIur 1958—60
Köfnunarefni Fosfór Kalí
1958 ........................ 7 060 3 715 2 180
1959 ....................... 7 685 3 980 2 270
1960 ....................... 7 116 3 919 2 132
í Búnaðarskýrslum 1952—54 er einnig skýrt rækilega frá þvi, sem
vitað er um stærð tuna (bls. 18*—19*): Síðan hafa flest tún landsins
verið mæld, en þó er mælingunum ekki að fullu lokið, og hefur stærð
túnanna því ekki verið ákveðin, svo að nákvæmt sé samkvæmt þeim.
Við þessar nýju mælingar er ekki annað talið tún en það, sem véltækt
er, og verða af því túnin minni en áður hefur verið talið. En einnig
af öðrum ástæðum hefur orðið nokkur breyting á stærð túnanna, sem
ekki hefur verið gerð nein mæling á. Allmörg tún á býlum, sem fallið
liafa úr byggð, eru komin í órækt, en annars staðar hafa tún færzt út,
án þess að túnaukinn hafi verið mældur, aðallega á þann hátt að til-
búinn áburður hafi verið borinn á vélfært land. Tölur um stærð túna
eru því áætlunartölur aðeins, og líkur eru til, að þær séu heldur of
háar, ef miðað er við véltæk tún aðeins. í Búnaðarskýrslum 1955—57
voru túnin áætluð í árslok 1957 66.900 ha. Síðan hafa við þau bætzt
3.960 ha 1958, 4.500 ha 1959 og 3.675 ha 1960 eða alls 12.136 ha. Sam-
kvæmt því hefðu túnin átt að vera rúmlega 79.000 ha í árslok 1960.
Túnstærð að vori er hin sama og haustið áður, og ekki er rétt að ætla,
að verulegur hluti nýræktar nýlist sama ár og nýræktin er gerð, nema til
beitar. Samkvæmt þessu hefði stærð túna, er nýttist til slægna ár hvert,
og töðufengur af ha, átt að vera:
Túnstærð
að vori, Töðufengur af ha,
ha hcstar
1954 ............................... 54 836 43,8
1957 .............................. 63 324 46,6
1958 .............................. 66 900 41,1
1959 .............................. 70 860 45,1
1960 .............................. 75 360 45,0
1961 .............................. 79 000
Votheysverkun fór vaxandi frarn til 1951, en hefur eigi síðan aukizt
í hlutfalli við töðufenginn í heild. Hér fer á eftir votheysmagnið um-
reiknað í þurrkaða töðu og hlutdeild þess í allri töðunni síðan 1948:
Vothey, f % af Vothey, f % af
1000 hestar allri töðunni 1000 hestar allri töðunni
1948 131 8,4 1958 289 10,5
1951 209 14,1 1959 349 10,9
1954 280 11,7 1960 327 9,6
1957 343 11,8
Útheysfengur fór mjög þverrandi í siðari heimsstyrjöldinni, og þvarr
þó jafnvel enn örar fyrstu árin eftir þá styrjöld. Fyrst eftir 1950 leit
út fyrir, að þessi þróun ætlaði að stöðvast, þar sem þá var komið, en