Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Page 53
Búnaðarskýrslur 1958—60
51*
Eitthvað af þessum áburði mun hafa farið til framleiðenda garð-
ávaxta í kaupstöðum, er eigi hafa talið fram til búnaðarskýrslu. Einnig
mun nokkuð af áburðinum hafa farið til jarðabóta. Tilbúni áburðurinn
virðist því hafa verið vel fram talinn í búnaðarskýrslum og jafnvel of-
talinn, þó ekki stórlega.
Keypt útsæði er fræ, bæði sáðhafrar og fræ til matjurtaræktar,
jafnvel af grasfræi til nýræktar, svo og að sjálfsögðu kartöflur til
útsæðis.
Fyrning landbúnaðarvéla 1960 var 21 460 þús. kr. Þetta er mikil
hækkun frá því er var 1957, er þessi kostnaður var eigi fram talinn
nema 13 662 þús. kr. En hækkun á þessum kostnaði er eðlileg, þegar
þess er gætt, hve mikið var keypt af landbúnaðarvélum 1958—60, og
hve verð á þeim vélum hækkaði 1958 og 1960.
Rekstrarkostnaður landbúnaðarvéla, þar með viðgerðir, var fram
talinn 1960 45 893 þús. kr., en var eigi nema 24 278 þús. kr. 1957. Þessa
miklu hækkun má rekja til alls í senn: mikillar aukningar landbún-
aðarvéla, meiri viðhaldsþarfar við aldur, hækkunar á vinnulaunum við
viðgerðir, stöðugt aukinnar notkunar vélanna og loks verðhækkunar
á olíum.
Heildarkostnaður við rekstur bifreiða var fram talinn 1960 5 767
þús. kr., en 4 315 þús. kr. 1957. Þetta framtal er ekki mikið að marka.
Hvort tveggja er, að reikningar yfir rekstur á bifreiðum eru sjaldan
vandlega færðir, og skattanefndir eru oft í vafa um, hvaða bifreiða-
reikninga eigi að taka á búnaðarskýrslur.
Aðkeyptur flutningskostnaður er talinn í tvennu lagi: flutnings-
kostnaður á mjólk og annar flutningskostnaður. Til er það, að mjólkur-
búin sjálf annist mjólkurflutninga, eins og Mjólkurbú Flóamanna gerir
á sínu starfsvæði. Þar sem svo hagar, er flutningslcostnaður eigi alls
staðar fram talinn á búnaðarskýrslum. En Hagstofan hefur þá reiknað
framleiðendum flutningskostnaðinn eftir upplýsingum frá mjólkurbúinu
um flutningskostnað á kg mjólkur. Alls var flutningskostnaður á mjólk
1960 22 740 þús. kr., en 1957 15 613 þús. kr. og 1954 10 031 þús. kr. —
„Annar flutningskostnaður" er aðallega kostnaður við flutning á fram-
leiðsluvörum til landbúnaðarins, svo sem áburði og kjarnfóðri, svo og
á sláturfé og garðávöxtum. Sá kostnaður var alls fram talinn 1960
10 719 þús. kr., 1957 7 146 þús. kr. og 1954 3 953 þús. kr.
Keyptur búpeningur. Þessi liður kemur móti andvirði seldra áa og
lamba, sem reiknað er með tekjum af sauðfé á töflunni um verðmæti
landbúnaðarafurða. Kaup lamba voru 1960 langsamlega mest í Austur-
Barðastrandasýslu vegna fjárskipta i Reykhólahreppi. Þar voru keypt
2 893 lömb af alls 4 481 lömbum, er keypt voru af öllum framteljendum
til búnaðarskýrslu. Kaup á ám voru hins vegar miklu víðar allveruleg.
Mest var keypt af ám í eftirtöldum sýslum: i Norður-Múlasýslu 876,