Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 14
föstudagur 17. október 200814 Helgarblað „Ég get ekki borgað húsaleiguna og verð því á götunni um næstu mán- aðamót. Ég er öryrki og fæ bæturnar mínar frá Íslandi. Dönsku bankarn- ir vilja hins vegar ekki sjá íslensku krónuna og því geri ég ekki ráð fyr- ir að fá neinar bætur,“ segir Kristín Gunnarsdóttir sem býr í Vejle í Dan- mörku. „Mér þykir vænt um landið mitt: Mér þykir því rosalegt að svona sé komið fyrir Íslandi því þetta þurfti ekki að fara svona. Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Ég skamm- ast mín virkilega,“ segir hún. Kristín flutti til Danmerkur fyrir tuttugu árum ásamt þáverandi eig- inmanni sínum og þremur börn- um. „Á sínum tíma langaði okkur að prófa eitthvað annað. Við héldum aldrei að við yrðum hér til eilífðar en nú er ljóst að ég flyt aldrei aftur til Ís- lands. Það er ekki fræðilegur mögu- leiki á að ég geti lifað þar. Húsaleig- an er há og matvaran dýr. Þetta er bara glæpur. Við flúðum ástandið á Íslandi. Aumingja fólkið sem býr á þessu blessaða skeri núna. Ég vildi ekki vera í þeirra sporum í dag.“ Hún hefur örsjaldan heimsótt Ís- land á liðnum árum. „Ég hef ekki efni á að koma í heimsókn. Ég kom síðast fyrir þremur árum þegar pabbi minn varð áttræður en ég hef ekki haft efni á því síðan. Ég sé heldur ekki fram á að komast aftur á næstu árum.“ Kristín er lærður nuddari en hef- ur verið öryrki síðustu tvo áratugina. „Ég hef ekkert getað nuddað. Ég er með ónýtar axlir og er komin með skemmd í liðina á hægri hendi. Það er því takmarkað hvað ég get gert.“ Hún hefur gaman af því að sauma út og föndra en á núorðið erfitt með það vegna liðskemmda, auk þess sem það kostar sitt að sinna áhuga- málum. Orðspor Íslendinga ónýtt Kristínu svíður efnahagsástand- ið á Íslandi og finnst stjórn landsins hafa horft á aðgerðalaus á meðan allt fór í vaskinn. „Orðspor Íslend- inga er hugsanlega orðið ónýtt. Sem er ekkert skrýtið. Ég held að umfjöll- un fjölmiðla sé álíka neikvæð í öðr- um löndum um Ísland og hún er hér. Ég myndi ekki kynna mig sem Íslending hérna ef ég yrði spurð. Það er alveg á hreinu.“ Hún hefur leitað til danskra fé- lagsmálayfirvalda til að fá aðstoð en kemur að lokuðum dyrum. Kristín er íslenskur ríkisborgari og hefur því ekki réttindi til að fá fullar örorkubæt- ur frá Dönum. „Ég talaði við komm- únuna hérna í vikunni og sýndi þeim útskrift frá bankanum sem sýnir að ég er þar í mínus. Mér var sagt að ég fengi enga aðstoð.“ Kristín á þó von á símtali frá dönskum félagsmálayf- irvöldum á mánudag. „Ég vona auð- vitað að þau finni einhverja leið en ég býst ekki við því að það komi neitt jákvætt út úr þessu. Þegar ég er búin að tala við kommúnuna aftur ætla ég að leita til íslenska sendiráðsins. Þau hljóta að eiga að hjálpa mér. Ég hélt að í dag þyrfti enginn að svelta.“ Henni finnst staða sín gagnvart íslenskum yfirvöldum veik vegna þess að hún er öryrki. „Á Íslandi hef- ur alltaf verið litið niður á öryrkja. Þeir eru bara eitthvert pakk sem á ekki skilið að lifa. Þessar bætur sem við fáum eru til skammar. Ég gæti ekki heldur lifað af þessu á Íslandi og tel ég mig mjög sparsama. Ég eyði engu í vitleysu. Ég kaupi allan mat á tilboði. Allan,“ segir hún. „Þennan mánuðinn hef ég borðað það sem ég átti í frystinum en sá matur er bráð- um búinn.“ Kvíðir jólunum Kristín hefur verið mjög niður- dregin að undanförnu vegna þeirr- ar erfiðu stöðu sem hún er í. „Þetta er gjörsamlega búið að fara með mig. Ég bý ein og hef afskaplega lít- ið annað að gera en að hugsa um þetta hrikalega ástand á Íslandi. Þetta étur mann upp að innan. Jólin koma bráðum. Ég á börn og barna- börn og tengdabörn. Ég sé enga leið út úr þessu.“ Hún er stolt og vill sjá um sig sjálf. „Það var orðið svo slæmt að bróð- ir minn sem býr á Íslandi sendi mér evrur sem hann átti og smá danskan pening. Mér fannst ég vera að þiggja ölmusu og það er það versta sem ég get gert. Mér hefur aldrei liðið eins illa á ævinni,“ segir Kristín en vinir bróður hennar voru á leið til Dan- merkur og sendi hann þá með pen- ingana að henni forspurðri. „Ég bið ekki um hjálp.“ Dagarnir eru heldur tilbreyting- arlausir hjá Kristínu. „Ég loka mig bara inni. Ég vil ekki fara út. Ástand- ið er orðið það slæmt að ég á hvorki fyrir bensíni né öðru. Ég get ekki einu sinni keypt mér vetrarjakka. Þetta er orðið það slæmt.“ Vegna líkamlegra veikinda má Kristín ekki bera innkaupapoka úr búðinni og heim til sín, jafnvel þótt aðeins sé um fimm mínútna gang- ur þar á milli. Hún þarf því að fara á bílnum í matvörubúðina. Þarf róandi lyf Dóttir Kristínar hefur dvalið hjá henni undanfarna daga til að sýna henni stuðning. „Það sem heldur mér uppi þessa dagana er að yngsta dóttir mín og tengdasonur komu til mín. Ég er búin að vera með hrika- legan hjartslátt og titra öll og skelf. Þau halda mér uppi með því að vera hérna hjá mér. En það verður ekki nema fram á laugardag. Þá fer ég niður aftur. Þau búa í Kaupmanna- höfn og eru í skóla þar. Þau þurfa því að fara aftur í skólann á mánudag- inn. En vera þeirra hér heldur mér frá því að verða biluð. Þau komu sér- staklega til að vera hjá mér því mér líður svo illa.“ Kristín er reið út í íslensk stjórn- völd og segir þau hafa sofið á verð- inum. „Ég er ofboðslega reið. Ég er reið út í þá sem stjórna þessu bless- aða landi. Það er engum öðrum að kenna hvernig komið er. Eflaust eiga þessir nýríku karlar einhvern þátt í þessu en ég segi að ráðamenn á Ís- landi hefðu átt að taka í taumana fyrir löngu. Það var varað við þessu en það var ekki hlustað. Þeir ættu að skammast sín.“ Hún segist vera búin að fá nóg af íslenskum ráðamönnum. „Þeir hafa örlög fjölda manns á samviskunni. Ég er ansi hrædd um að það eigi eftir að verða aukin sjálfsmorðstíðni á Ís- landi, ef sú hrina er ekki þegar hafin. „ÉG SKAMMAST MÍN FYRIR AÐ VERA ÍSLENDINGUR“ Kristín Gunnarsdóttir er öryrki og býr í Danmörku. Hún er í skuld við bankann og býst ekki við að fá örorku- bæturnar frá Íslandi um næstu mánaðamót því dönsku bankarnir vilja ekki sjá íslensku krónuna. Kristín sér fram á að missa húsnæði sitt um mánaðamótin og enda á götunni. Hún er afar niðurdregin vegna ástandsins og ætlar að leita sér læknishjálpar. Hvað getur þú sjálfur gert? einhverjir kunna að finna fyrir einkennum depurðar eða þunglyndis vegna þeirra hamfara sem orðið hafa í efnahagslífinu á undanförnum vikum. Á vefsíðunni persóna.is er að finna gagnlegar upplýsingar um orsakir, einkenni og úrræði þunglyndis. greinin er eftir sálfræðinginn rúnar Helga andrason og geðlækninn engilbert sigurðsson. Hér fyrir neðan eru nokkur ráð úr greininni sem mikilvægt er að hafa hugföst ef fólki finnst það vera úrvinda, einskis virði, hjálparvana eða vonlaust: n setja þér raunsæ markmið og axla ekki of mikla ábyrgð. n skipta stórum verkefnum í smærri, forgangsraða og gera það sem þú getur þegar þú getur. n Vera innan um fólk og trúa einhverjum fyrir líðan þinni, það er yfirleitt betra en tilfinningaleg einangrun. n taka þátt í öllu sem lætur þér líða betur, og hafa hugfast að þótt þú njótir þess ekki eins og áður sé þetta hluti af því sem þú ert að gera til að ná betri líðan. n Létt líkamsrækt, bíóferð eða þátttaka í hvers konar félagslegum athöfnum gæti hjálpað. n Vera viðbúinn því að betri líðan kemur hægt á nokkrum vikum og að það geti komið slæmir dagar inn á milli. n fresta stórum ákvörðunum þar til þunglyndinu léttir. Áður en þú gerir miklar breytingar - skilur eða skiptir um starf - skaltu ræða það við einhvern sem þekkir þig vel og hefur hlutlausari afstöðu til þinna mála. n reyna ekki að hrista þunglyndið af þér og mundu að með meðferð og sjálfshjálp aukast líkurnar á betri líðan dag frá degi. n Muna að jákvæður hugsunarháttur leysir í vaxandi mæli hinn neikvæða af hólmi þegar meðferð fer að hafa áhrif. n Leyfa vinum og vandamönnum að hjálpa þér. Erla Hlynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Mér fannst ég vera að þiggja ölmusu og það er það versta sem ég get gert. Mér hefur aldrei liðið eins illa á ævinni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.