Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 16
föstudagur 17. október 200816 Helgarblað
„Mér finnst að þegar um hægist þurfi
að„Mér finnst að þegar um hægist
þurfi að meta hæfni þeirra manna
sem hafa setið í yfirstjórn Seðla-
bankans. Fara þarf ofan í kjölinn á
því hvernig framvegis verði skipað í
bankaráð Seðlabankans,“ segir Björg
Thorarensen, prófessor í stjórn-
skipunarrétti, aðspurð hvort endur-
skoða þurfi reglur um skipun í stöð-
ur í bankanum. Hún segir þá miklu
gagnrýni, sem erlendir og innlend-
ir hagfræðingar hafi haldið uppi á
Seðlabankann, kalli á endurskoðun.
Skipan í stöður sé frábrugðin því sem
gerist erlendis og því sé nauð-
synlegt að taka út hvort
gera þurfi breyt-
ingar hér á
landi.
Sex sitja í ráðinu
Bankaráð Seðlabanka Íslands
samanstendur allajafna af sjö kjörn-
um fulltrúum stjórnmálaflokkanna.
Þeir eru kosnir með hlutfallskosningu
á Alþingi að þingkosningum loknum.
Eigi má kjósa stjórnendur eða starfs-
menn lánastofnana eða annarra fjár-
málastofnana sem eiga viðskipti við
bankann til setu í bankaráði. Banka-
ráðið kýs formann og varaformann
úr sínum hópi en samkvæmt heima-
síðu Seðlabankans hefur banka-
stjórnin náið samráð
við bankaráð um
stefnumörk-
un og
ákvarðanir í mikilvægum málum.
Nú eru fulltrúarnir hins vegar aðeins
sex.
Vilja afsögn
9. október sagði Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir, annar tveggja full-
trúa Samfylkingarinnar, sig úr ráð-
inu. Hún sagði að undanfarnar vikur
og mánuði hafi verið gerð alvarleg
mistök í hagstjórn Íslands og stjórn
fjármálakerfisins. Seðlabanki Íslands
bæri mikla ábyrgð á þeim mistök-
um og nú væri íslenska hagkerfið að
hruni komið. „Það er mitt álit að til
að svo geti orðið verði að skipta um
bankastjórn í Seðlabanka Íslands. Ég
hvet því bankastjóra Seðlabanka
Íslands, Davíð Odds-
son, Eirík Guðna-
son og Ingimund
Friðriksson, til að
axla sína ábyrgð
á mistökunum
og segja af sér
nú þegar,“ sagði
hún og bað
þjóðina afsök-
unar á því að
hafa ekki axl-
að ábyrgð sína
fyrr. Síðustu
daga og
vik-
ur hafa svo bæði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, utanríkisráðherra og for-
maður Samfylkingarinnar, og Ágúst
Ólafur Ágústsson varaformaður lýst
yfir vantrausti á stjórn Seðlabank-
ans.
Sex fulltrúar eftir
Nú eru því aðeins sex fulltrúar í
bankaráði Seðlabankans. Þrír sitja
þar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Það eru Halldór Blöndal, formaður
ráðsins, Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson og Erna Gísladóttir. Fyrir
hönd vinstri-grænna
situr Ragnar
Arnalds en Jónas Hallgrímsson fyr-
ir hönd Framsóknarflokksins. Full-
trúar Samfylkingarinnar voru í fyrra
skipaðir Jón Sigurðsson, sem er vara-
formaður ráðsins, og Jón Þór Sturlu-
son. Jón Þór lét af störfum þegar
hann varð aðstoðarmaður Björgvins
G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra.
Í hans stað kom Sigríður Ingibjörg.
Hún sagði af sér eins og að ofan
er rakið.
Halldór Blöndal, fyrrverandi land-
búnaðarráðherra, samgönguráðherra og
forseti alþingis, er núverandi formaður
bankaráðs. Hann sat á þingi fyrir
sjálfstæðisflokkinn frá 1979 til 2007, en
hafði frá 1971 verið varaþingmaður.
Hefur stúdentspróf frá Menntaskólanum
á akureyri og nám í lögum og sagnfræði
við HÍ, eins og segir á heimasíðu
alþingis, en lauk ekki námi. Halldór er
sjötugur að aldri.
Jón SigurðSSon er varaformaður
bankaráðs seðlabankans og formaður
stjórnar fjármálaeftirlitsins. Hann situr í
ráðinu fyrir samfylkingu. Jón var forstjóri
Þjóðhagsstofnunar og síðar ráðherra á
árunum 1987 til 1993. Jón var um tíma
seðlabankastjóri. Hann var aðalbanka-
stjóri Norræna seðlabankans frá 1995 til
2004. Hann hefur fil. cand.-próf í
þjóðhagfræði og tölfræði og M.sc. econ.-
prófi í þjóðhagfræði. Hann er 67 ára.
Erna gíSladóttir, formaður
viðskipta- og neytendanefndar
sjálfstæðisflokksins, er hagfræðingur frá
university of Navarra. Hún er fyrrverandi
forstjóri b&L, dóttir gísla guðmundssonar,
fyrrverandi forstjóra b&L, fyrrverandi
formaður bílgreinasambandsins og
stjórnarformaður Leifsstöðvar. Móðir ernu
er bessí Jóhannsdóttir, fyrrverandi
varaborgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins.
erna er fertug að aldri.
ragnar arnaldS situr í bankaráði
fyrir hönd vinstri-grænna. Hann var
þingmaður frá 1963 til 1999. Hann var
ýmist samgöngu-, menntamála- eða
fjármálaráðherra á árunum 1978 til 1983.
Hann var um árabil formaður þingflokks
alþýðuflokksins. ragnar hefur stúdents-
próf frá Mr, nám í bókmenntum og
heimspeki við háskóla í svíþjóð og
lögfræðipróf frá HÍ frá 1968. ragnar er
sjötugur að aldri.
HannES HólmStEinn
giSSurarSon er prófessor í
stjórnmálafræði í félagsvísindadeild
Háskóla Íslands og hefur einnig ba próf í
heimspeki og sögu frá HÍ. Hann hefur
lengi verið einn dyggasti stuðningsmað-
ur davíðs oddssonar seðlabankastjóra
og hefur verið í bankaráði seðlabankans
frá 2001. Hannes er einn þriggja fulltrúa
sjálfstæðisflokksins í ráðinu en hann er
55 ára.
Meðalaldur þeirra fimm karlmanna sem sitja í bankaráði Seðlabanka Íslands verður 67 ár á þarnæsta ári.
Meðalaldur í ráðinu er nú 61 ár, en þar situr ein kona. Aðeins sex fulltrúar eru nú starfandi í ráðinu en Sigríð-
ur ingibjörg ingadóttir sagði sig á dögunum úr ráðinu. Varamaður Sigríðar hefur ekki ákveðið hvort hún
muni taka sætið. ragnar arnalds, fulltrúi vinstri-grænna, treystir bankastjórn Seðlabankans en Steingrímur
J. Sigfússon, formaður flokksins, hefur lýst því yfir að hann vilji skipta um allt settið. Aðeins tveir þeirra sem
í bankaráði sitja hafa háskólamenntun á hagfræði- eða viðskiptasviði.
Baldur guðmundSSon
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Tveir hagfræðingar og einn sTúdenT
„Þessum mönnum er
lögum samkvæmt fal-
ið að taka ákvarðanir
í Seðlabankanum. Þó
að menn séu ósáttir við
þær ákvarðanir sem
þeir taka er ekkert til-
efni til að reka þá.“
meðalaldur bankaráðsmanna er 61 ár
aðeins tveir í bankaráði seðlabankans hafa
menntun á hagfræði- eða viðskiptasviði.
Bankaráð seðlaBanka íslands