Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 20
Þeir Bakkabræður, Ágúst og Lýður
Guðmundssynir, eru miklir smekk-
menn en þeir standa nú báðir í bygg-
ingu sumarhúss, einn í Fljótshlíð en
hinn við Þingvallavatn. Ágúst er þó
heldur hóflegri en bróðir hans þar
sem sumarhúsið hans er 900 fer-
metrum minna en Lýðs. Það er þó
ekki vegna peningaleysis enda notar
Ágúst þyrlu við bygginguna.
Steypir með þyrlu
Fjölmargir gestir og nágrann-
ar í þjóðgarðinum kvörtuðu sáran í
sumar þegar þyrlur fóru að sveima
yfir Þingvöllum með tilheyrandi há-
vaðamengun. Frétt þess efnis birtist í
fjölmiðlum í júlí en þó var ekki
tekið fram að þyrlan væri
á vegum Ágústar.
Þyrlan fékk það
verkefni að sækja
steypu í steypubíl
Mest og fljúga
síðan með hana
að sumarhús-
inu, sem er á
Valhallarstíg
15, þar sem
vaskir verka-
menn dreifðu henni um grunninn.
Þingvallanefnd var þó fljót að taka
í taumana, með Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra í broddi fylking-
ar, og bannaði þyrlur yfir sumartím-
ann eða frá miðjum júlí til 1. október.
Bannið er því ekki lengur í gildi en þó
sjást engar þyrlur.
Vill lítið láta á sér bera
Ekki er hægt að kenna peninga-
leysi auðmanna um það að engar
þyrlur hafa sést á Þingvöllum eft-
ir 1. október heldur vilja sveitungar
og verkamenn á svæðinu, sem DV
ræddi við, meina að Ágúst vilji ekki
flagga auðæfum sínum í kreppunni.
Þess vegna sótti Ágúst um undan-
þágu vegna notkunar á sérstökum
steypufjórhjólum sem núna keyra
um Valhallarstíginn. Undir venju-
legum kringumstæðum má aðeins
ganga um þennan stíg en ekkert er
þó venjulegt í kringum byggingar-
gleði auðmannanna.
Engin gæsla er í kringum bygg-
ingarsvæðið á Þingvöllum enda er
þjóðgarðurinn eign allra Íslendinga.
Smátt út af reglum
DV greindi frá því í gær að bróðir
Ágústar, Lýður Guðmundsson, væri
að byggja þúsund fermetra glæsi-
villu í Fljótshlíðinni. Sumarhús Ág-
ústar er níu sinnum minna eða tæp-
lega hundrað fermetrar. Lýður er þó
ekkert ríkari en Ágúst.
Ástæðan fyrir stærðarmuninum
er einfaldlega sú að reglugerð er snýr
að byggingum í þjóðgarðinum segir
að sumarhús megi ekki vera stærri
en níutíu fermetrar. Einhverjir auð-
menn á svæðinu virðast þó hafa farið
yfir þá stærð því sumir grunnar sem
nú þegar hafa verið steyptir eru tölu-
vert stærri en níutíu fermetrar. En
hvað ætli níutíu fermetra sumarhús
kosti í dag?
250 milljóna sumarhús
Samkvæmt heimildum DV er
áætlaður kostnaður við gerð sumar-
húss Ágústar í kringum 250 milljónir
króna. Það verður að teljast ansi há
fjárhæð fyrir aðeins níutíu fermetra
föstudagur 17. október20 Helgarblað
BakkaBróðir Byggir með þyrlu
Einhverjir auðmenn
á svæðinu virðast þó
hafa farið yfir þá stærð
því sumir grunnar sem
nú þegar hafa verið
steyptir eru töluvert
stærri en níutíu fer-
metrar.
Steypuþyrla Ágústar
Þyrlan fór fjölmargar ferðir í sumar
með steypu að sumarhúsi Ágústar
eða þar til Þingvallanefnd bannaði
allt þyrluflug í þjóðgarðinum til 1.
október síðastliðins.
Atli MÁr GylfASon
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Bakkabróðirinn Ágúst Guðmundsson fer nýjar leiðir við byggingu 250 milljóna króna
sumarhúss við Þingvallavatn. Sumarhúsið er á besta stað inni í sjálfum þjóðgarðinum
en Ágúst hefur meðal annars notað þyrlu til að flytja steypu að grunni hússins. Undan-
farið hefur Ágúst þó látið bera minna á framkvæmdum og í stað þyrlunnar eru komn-
ir verkamenn á sérstökum steypufjórhjólum. Fleiri auðmenn byggja á Þingvöllum en
lóðirnar í þjóðgarðinum eru með dýrustu sumarhúsalóðum á Íslandi.
lýður Guðmundsson
byggir töluvert stærra
sumarhús en bróðir hans
eða samtals 900
fermetrum stærra.