Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 21
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 21Helgarblað
BakkaBróðir Byggir með þyrlu
sumarhús en eitthvað hlýtur það þó
að kosta að nota þyrlu við bygging-
una.
Sumarhúsið verður glæsilegt í alla
staði miðað við teikningu af húsinu
sem DV hefur undir höndum. Ágúst
fær stórt og gott hjónaherbergi auk
þess sem hann getur boðið gestum
sínum að gista í litlu gestahúsi sem
verður við hlið sumarhússins. Á ver-
öndinni verður heitur pottur og að-
staða fyrir grill, töluvert látlausara en
hjá Lýð sem verður með neðanjarð-
arbyrgi undir veröndinni sinni.
Bróðir í neðanjarðarbyrgi
Lýður er ekki langt frá bróður sín-
um en DV birti myndir af glæsivill-
unni hans í Fljótshlíðinni í gær. Mikil
öryggisgæsla er í kringum það bygg-
ingarsvæði enda getur Lýður rekið
fólk af sinni einkalóð á meðan Ágúst
byggir á landi sem allir Íslendingar
eiga.
Lýður vill aðeins það besta við
gerð hússins og því er notast við
byggingarefni á borð við blágrýti og
„zebravið“ en slíkur viður er ekki fá-
anlegur á Íslandi og því verður að
sérpanta hann til landsins.
Undir glæsivillu Lýðs er síðan
fjögur hundruð fermetra neðan-
jarðarbyrgi og má því segja að hann
geti komið fyrir fjórum sumarhús-
um bróður síns í kjallaranum sín-
um. Samkvæmt heimildum DV verð-
ur neðanjarðarbyrgið meðal annars
notað undir bílageymslu og aðstöðu
fyrir starfsfólk.
Ágúst fær ekkert slíkt við sitt sum-
arhús, ekki einu sinni bílskúr vegna
reglna um byggingar í þjóðgarðin-
um.
Auðmenn vilja Þingvelli
Ágúst Guðmundsson er samt sem
áður ekki eini auðmaðurinn sem vill
sumarhús á Þingvöllum. Einar Örn
Jónsson, einn af eigendum Saxhóls
og stór hluthafi í Glitni í gegnum fyr-
irtækið Saxbygg, er með stórglæsi-
lega höll í byggingu við Þingvalla-
vatn. Glæsivillan er í raun falin inni
í stórum grashól og minnir húsið
óneitanlega á eitthvað úr kvikmynd-
um á borð við James Bond.
Einar Örn sparar ekkert við fram-
kvæmdina en eins og má sjá á mynd-
um sem DV birtir verður Einar Örn
með bílskúr og geymslu á frekar
óvenjulegum stað eða undir sjálfu
húsinu. Þar getur Einar Örn geymt
tvo bíla eða jafnvel einn bát og einn
bíl en rýmið er skilgreint sem báta-
og bílageymsla á teikningunum.
Undir húsinu er líka gert ráð fyrir
stóru og miklu frístundarými.
Á jarðhæð hússins verður flott-
ur arinn en strompurinn er hann-
aður eins og stór varða ofan á þaki
þess. Þá getur Einar Örn boðið fullt
af fólki í heimsókn því fyrir utan
bílageymsluna undir húsinu verð-
ur bílskýli fyrir framan húsið sem
rúmar þrjá bíla.
Rangur bróðir
Vegna mistaka við lokafrágang
fimmtudagsblaðs DV birtist mynd
af röngum manni með
frétt um framkvæmdir
Lýðs Guðmundssonar í
Fljótshlíð þar sem ver-
ið er að reisa veglegt
hús með mikilli neð-
anjarðarbyggingu.
Myndin sem birt-
ist var af Ægi,
bróður Lýðs.
Beðist er velvirðingar á þeim
mistökum.
Vilja breyta reglum
Þingvallanefnd vinnur nú að nýj-
um reglum um sumarhúsin í þjóð-
garðinum en samkvæmt heimildum
DV snúast reglurnar um meðal ann-
ars bann við nýbyggingum og girð-
ingum um einkalóðir. Bannið fer
ekki vel í byggingaglaða auðmenn
landsins og því hefur ekki samstaða
náðst um nýju reglurnar.
„Tillögur að nýjum reglum hafa
verið ræddar í nefndinni en ekki af-
greiddar,“ segir Björn Bjarnason, for-
maður Þingvallanefndar, spurður
um stöðu mála.
Í lögum segir meðal annars að
Þingvellir við Öxará skuli vera frið-
lýstur helgistaður allra Íslendinga
og að landið megi aldrei selja eða
veðsetja. Þess vegna hafa umrædd-
ir auðmenn gert lóðarsamninga við
íslenska ríkið en þeir eru gerðir til
tíu ára í senn og renna næst út árið
2010. Það verður þó að teljast ansi
ólíklegt að einhverjir aðrir en þeir
sem standa nú í framkvæmdum fái
lóðirnar eftir tvö ár.
Í byggingu
Höll Einars Arnar er í byggingu en
þó er komin einhver mynd á hana.
DV mynD SigtRygguR ARi
Ágúst guðmundsson
Hlakkar eflaust til að geta
slakað á í þjóðgarðinum.
Höllin í Fljótshlíð
Lýður reisirum þúsund fermetra glæsivillu. Þar
af er mikil neðanjarðarbygging sem tengist
húsinu, gólfflötur hennar er 400 fermetrar.
DV mynD SiGTRyGGUR ARi
Byggt á Þingvöllum
Ágúst byggir öllu minni
bústað en bróðir hans.
DV mynD SiGTRyGGUR ARi