Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 38
föstudagur 17. október 200838 Helgarblað
Ertu Eyðslukló?
taktu prófið:
A. Endar þú á því að kaupa fullt af hlutum sem
þú þarft ekki á að halda.
B. Kaupir aðeins það nauðsynlegasta.
C. Kaupir meira en þú ætlaðir þér og sérð eftir
því þegar þú kemur heim.
Þegar þú kíkir í búðir...1
Það er föstudagur. Ísskápurinn er
tómur og þú neyðist að kaupa í
matinn. Hvað gerir þú?
A. Ákveður að splæsa í ný föt í stað þess að kaupa
í matinn
B. Ferð í Bónus þrátt fyrir föstudagsörtröðina
C. Ferð 10-11 seinna um kvöldið og kaupir það
helsta.
4
Hvað er mikið inni á reikningnum
þínum núna?
A. Kíki reglulega og reyni að eyða í samræmi við
það.
B. Vá, ég veit aldrei hvað ég á mikla peninga fyrr
en ég fæ synjun.
C. Ég veit upp á hár hvað fer inn og út af mínum
reikningi.
7
Það er fimmtándi í mánuðinum.
Þú átt litla sem enga peninga til
að lifa mánuðinn af. Þú sérð skó á
útsölu. Hvað gerir þú?
A. Þú bíður þangað til um mánaðamótin þegar
þú átt peninga.
B. Þú verður að fá þá. Borgar þá með VISA og
málið er dautt.
C. Þú lætur það ekki eftir þér. Skórnir eru ekki
þess virði.
5
Þú vinnur 3 milljónir í lottóinu.
Hvað gerir þú við peningana?
A. Þú kaupir þér flatskjáinn sem þig hefur alltaf
langað í. Afgangurinn fer inn á bankabók.
B. Þú heldur heljarinnar partí fyrir vini og
vandamenn.
C. Þú setur peningana beint inn á ávöxtunar-
bankabók.
8
Þú færð afgang frá kassa-
dömunni og þú...
A. Rétt kíkir á afganginn áður en þú hendir
honum ofan í veskið.
B. Hendir afganginum beint í veskið án þess að
kíkja.
C. Telur afganginn vandlega.
2
Þú ætlar út að borða í kvöld.
Hvað hefur þú í huga með val á
veitingastað?
A. Maturinn verður að vera góður.
B. Verðið skiptir öllu.
C. Að andrúmsloftið sé kósí.
6
Þú vinnur í tappaleik Vífilfells. Þú
færð að velja á milli utanlandsferð-
ar ásamt einum vini eða peninga-
verðlauna. Hvort velur þú?
A. Þú velur peningana og leggur þá beint inn á
bankabók.
B. Þú velur peningana svo að þú getir ráðið
sjálf/ur hvað þú eyðir þeim í.
C. Þú velur ferðina.
9
Þú ert alltaf að skutla vinum
þínum út um allt, enda ertu eina
manneskjan sem á bíl. Hver borg-
ar bensínið?
A. Ef við keyrum mjög mikið bið ég félagana um
peninga.
B. Vinirnir verða að borga.
C. Ég borga. Þetta er bíllinn minn.
3
Stig:
1. a 3 stig b 1 stig C 2 stig
2. a 2 stig b 3 stig C 1 stig
3. a 2 stig b 1 stig C 3 stig
4. a 3 stig b 1 stig C 2 stig
5. a 2 stig b 3 stig C 1 stig
6. a 2 stig b 1 stig C 3 stig
7. a 2 stig b 3 stig C 1 stig
8. a 3 stig b 2 stig C 1 stig
9. a 1 stig b 2 stig C 3 stig
9-15 Stig
Þú ert svo praktísk/ur. Þú lætur ekki glepjast og passar vel upp á
þinn aur, sama hversu mikið eða lítið þú átt af honum. sumir
myndu kalla þig nánös, en í raun ættu eyðsluklærnar að taka sér
þig til fyrirmyndar.
16-21 Stig
Þú hefur ágætt peningaskyn. Þú passar upp á að eiga alltaf
einhverja peninga, en leyfir þér líka stundum að lifa lífinu
áhyggjulaust.
22-27 Stig
undur orðinu eyðslukló í orðabókinni ætti að vera mynd af þér.
Þú kannt ekki að fara með peningana þína. Þeir eru alltaf búnir
fyrstu vikuna í mánuðinum. kannski er tímabært að skrá sig á
námskeið hjá Ingólfi Ingólfssyni og læra að spara, ef þú hefur efni
á því.