Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 41
föstudagur 17. október 2008 41Sport
Logi í beinni besti vinur aðal, Logi geirsson, og félagi
hans Vignir svavarsson verða í eldlínunni um helgina
þegar þeir mæta stórliði Hamburg í þýsku úrvalsdeild-
inni. Logi gerði allt vitlaust í deildarleik um daginn
þegar hann stríddi áhorfendum í útileik. Hann gerði
svo gott betur og skoraði sigurmarkið á lokamínútunni.
Lemgo hefur farið vel af stað og sama gildir um Loga.
Íslendingum gefst færi á að sjá einn af silfurstrákunum
okkar þar sem leikurinn er í beinni á stöð 2 sport klukk-
an 12.50 á laugardaginn.
Jói KaLLi mætir toppLiðinu okkar menn fara aftur af
stað í ensku deildarkeppninni um helgina. Jóhannes karl
guðjónsson og félagar í burnley fá ærið verkefni þegar
þeir taka á móti toppliði birmingham á heimavelli. Hin Ís-
lendingaliðin, reading og Coventry, eiga bæði útileiki. Ívar
Ingimarsson verður örugglega í byrjunarliði reading sem
heimsækir Preston um helgina en spurning er með brynjar
björn eftir að hann haltraði af leikvelli með landsliðinu í
vikunni. Þá heimsækir aron einar gunnarsson Úlfana með
sínu liði, Coventry.
Þrátt fyrir hálfvitaskap Gordons
Brown og co í Englandi bíða margir
spenntir eftir að þarlend úrvalsdeild
hefjist aftur á morgun eftir tveggja
vikna hlé. Áttunda umferð hefst á
laugardaginn með sjö leikjum.
Ástand liðanna misjafnt
Það hefur sýnt sig undanfar-
in ár að liðin koma mjög mismun-
andi stemmd eftir þessi hlé og oft-
ar en ekki eru það sterkari liðin sem
hiksta mest enda nánast allir leik-
manna þeirra búnir að leika einn
eða tvo landsleiki með landslið-
um sínum á meðan önnur lið hafa
haldið meira af mannskap sínum,
æft og safnað orku.
Fjörleg byrjun
Deildin hefur farið vel af stað,
fjörugir leikir, dramatík og óvænt
úrslit. Spútnikliðið er á sínum stað
og hörmungargengi Lundúna-
stórveldis vekur mikla athygli. Eitt
liðið datt í billjónapott og meist-
ararnir hafa hikstað með skoska
landsliðasfyrirliðann sem sinn
besta mann framan af móti.
toppliðin taplaus
Eftir sjö umferðir tróna vina-
klúbbarnir Chelsea og Liverpool
efst í deildinni með 17 stig. Þeir
bláu hafa virkað mjög þéttir und-
ir stjórn Felipes Scolari og unnið
sína leiki sannfærandi. Chelsea á
reyndar eftir að leika við hin stóru
liðin og það styttist óðum í upp-
gjör toppliðanna tveggja á Stan-
ford Bridge. Rauði herinn brúkaði
slatta af lukkudísum í byrjun en
kláraði tvo stórleiki gegn Everton
og Man.Utd. Liðið sýndi svo sinn
fræga „come back-karakter“ með
því að sigra Man. City í mögnuðum
leik en það vantar enn nokkuð upp
á stöðugleikann hjá sveinum Ben-
itez.
engin búlla í Hull
Nýliðarnir í Hull City hafa kom-
ið öllum í opna skjöldu með vaskri
framgöngu sinni. Hver átti von á
því að þeir yrðu fyrir ofan Arsenal
og Man.Utd um miðjan október?
Krakkarnir hans Wengers spila sem
fyrr prýðisbolta og þrátt fyrir tvö
slæm töp hafa þeir sýnt klærnar og
náð góðum markasigrum á útivelli.
Aston Villa og West Ham hafa einn-
ig byrjað bærilega og ef svo heldur
sem horfir verða liðin í baráttunni
um Evrópusæti. En mótið er jú
varla byrjað og allt getur gerst.
Hörkuleikir
Þótt ekki sé hægt að tala um
neina dæmigerða stórleiki þessa
helgina er fullt af áhugaverðum við-
ureignum í umferðinni. Í fyrsta leik
laugardagsins tekur Middlesbrough
á móti Chelsea. Boro hefur undan-
farin ár náð að stríða stóru liðunum
en miðað við ganginn á Chelsea í
síðustu leikjum eiga heimamenn
von á erfiðum leik. Gareth South-
gate, stjóri Boro, segist aftur á móti
bjartsýnn fyrir leikinn eftir góðan
sigur á Wigan í síðasta leik.
bláir til London
Arsenal fær Everton í heimsókn
sem þarf sárlega á sigri að halda eft-
ir dapurt gengi í mótsbyrjun. Moy-
es stefnir að því að halda upp á nýj-
an samning sinn með því að sækja
stig á Emirates. Hætt er þó við því
að þeir bláu verði ennþá „blue“ á
leiðinni heim norður í land þar sem
allir landsliðsmenn Arsenal komu
heilir heim eftir góða leiki með lið-
um sínum.
torres meiddur?
Emil Heskey fer með sínum fé-
lögum í Wigan á sinn gamla heima-
völl, Anfield Road í Liverpool. Enski
landsliðsmaðurinn, sem er nýbúinn
að lýsa því yfir að enginn fari ógrát-
andi frá Liverpool, fær eflaust góðar
móttökur á Anfield en þar á bæ hafa
menn áhyggjur af því að Fernando
Torres verði ekki klár í slaginn eft-
ir að hafa verið skipt út af eftir að-
eins 16 mínútur vegna meiðsla í leik
með spænska landsliðinu. Rafa-
el Benitez, sem varla getur hatað
landleikjahléin meira, varð ekkert
sérlega kátur yfir tíðindunum.
rooney rjúkandi
Meistararnir í Manchester fá ný-
liða WBA í heimsókn sem eru sýnd
veiði en ekki alveg gefin. Heims-
klassamunur er á þessum liðum og
mikið þarf að ganga á til að United
vinni ekki öruggan sigur, sér í lagi
þar sem Waine Rooney er heldur
betur vaknaður til lífsins. Það mun-
ar um minna. Tony Mowbray, stjóri
West Brom, segir aftur á móti að
hann ætli að halda upp á tveggja ára
veru sína hjá félaginu með því að ná
óvæntum sigri á Old Trafford.
botnslagurinn
Loks ber að nefna að botnliðin
tvö, Stoke City og Tottenham, mæt-
ast í Stoke á sunnudaginn og munu
bæði lið leggja allt í sölurnar til að
vinna þann leik. Bæði lið þurfa sár-
lega á stigum að halda og þá sér í
lagi botnliðið Tottenham sem hef-
ur sjaldan séð það svartara. Dav-
id Bentley, leikmaður Tottenham,
hefur sagt reiði stuðningsmanna
Spurs fyllilega réttmæta en ætla má
að hlutirnir versni og stemningin
verði álíka og hjá viðskiptavinum
Icesave ef Tottenham fær ekki 3 stig
úr leiknum.
sveinn waage
blaðamaður skrifar: sveinn@dv.is
Landsleikjahlé eru ekki í uppáhaldi hjá aðdáendum enska boltans frekar en stjóru liðanna sem bíða á milli
vonar og ótta eftir meiðslafréttum af leikmönnum sínum. Síðustu tvær vikur hefðu verið bærilegri fyrir
marga ef við hefðum haft meira af enskum fótbolta og minna af enskum ráðamönnum. Stóru liðin fjögur
leika öll á laugardaginn.
Boltinn það Besta
frá englandi
tveir turnar Johnterry hjá toppliði
Chelsea og Jonathan Woodgate hjá
botnliði tottenham kljást um boltann
í leik liðanna í ágúst.
rísandi stjarna theo
Walcott, framherji
arsenal, flýgur framhjá
geovanni hjá Hull.
Leikir heLgarinnar
Laugardagur 18. október
11.45 Middlesbrough - Chelsea
14.00 arsenal - everton
14.00 aston Villa - Portsmouth
14.00 bolton - blackburn
14.00 fulham - sunderland
14.00 Liverpool - Wigan
16.30 Man.utd - West brom
sunnudagur 19. október
14.00 Hull City - West Ham
15.00 stoke City - tottenham
mánudagur 20. október
19.00 Newcastle - Manchester City
Hörð barátta Wes
brown og alberto riera
í loftköstum á anfield.