Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Blaðsíða 44
föstudagur 17. október 200844 Helgarblað DV
umsjón: kolbrún pálína helgadóttir kobrun@dv.is
Gómsætar
muffins
muffins hafa lengi vel verið vinsæll
kostur þegar kemur að því að baka
fyrir barnaafmæli og fleiri
skemmtileg tilefni. dV tók saman
nokkrar ólíkar en einfaldar
muffinsuppskriftir.
bananamuffins
n 2 egg
n 1 ½ dl sykur
n 1 dl síróp
n 1 dl sýrður rjómi
n 5 dl hveiti
n 1 msk. lyftiduft
n 75 g smjör
n 2 stórir bananar
n 75 g suðusúkkulaði
Aðferð:
Þeytið egg, sykur og síróp saman í
létta blöndu. bætið sýrðum rjóma
út í, hrærið og sigtið hveiti og
lyftidufti í. hrærið smjöri,
bananabitum og súkkulaðibitum í
deigið. setjið í u.þ.b. 12 form og
bakið í 20 mínútur við 200 gráður.
súkkulaðimuffins
n 150 g sykur
n 150 g smjör
n 3 meðalstór egg
n 160 g hveiti
n 1 tsk. kanil
n 2 tsk. lyftiduft
n 1 hnífsoddur salt
n 100 g dökkur súkkulaðispænir
Aðferð:
Þeytið smjör og sykur saman.
bætið eggjunum í einu í einu og
hrærið í u.þ.b. ½ mínútu. hrærið
hveiti, kanil, lyftidufti, salti og
súkkulaðispæni í. setjið í
muffinsform og bakið í u.þ.b. 15
mínútur við 200 gráður, þær eiga
að vera gullinbrúnar og bakaðar í
gegn.
jógúrtmuffins
n 2 bollar sykur
n 3 egg
n 220 g brætt smjörlíki
n 2 ½ bolli hveiti
n ½ tsk. salt
n ½ tsk. matarsódi
n 1 dós jógúrt
n 100-150 g súkkulaði (má sleppa)
Aðferð:
sykurinn og eggin eru hrærð
saman. öllu hinu er síðan bætt
varlega saman við. bakað við 170°-
180° í 15-20 mínútur. úr uppskrift-
inni fást u.þ.b. 50 muffins.
& ínMatur
Kindakæfa
Hér áður fyrr voru lambaslög mikið notuð í kæfu
og smávegis af kjöti með en í dag viljum við hafa
áleggið fituminna. Í þessa kæfu eru notaðar kjöt-
sneiðar af lambaframparti. Sannir kæfuunnend-
ur nota lambalæri í kæfuna sína og þá er hún
orðin algjör sparimatur. Þessi ljúffenga kæfuupp-
skrift er úr klúbbablaði Gestgjafans sem nú fæst
í verslunum og er kjörin á þessum síðustu og
verstu tímum þar sem kostnaðurinn við gerð
hennar er ekki mikill.
n 2-3 msk. salt
n 2 kg lambakjötsneiðar með beini
n 3 stórir laukar, smátt saxaðir
n 2 tsk. pipar
n salt, eftir smekk
n ýmis krydd, t.d. grillblanda, lambakjötsblanda,
tímían, marjoram eða hvað það sem ykkur lystir
setjið 1 ½-2 l af vatni ásamt 2-3 msk. af salti í
rúmgóðan pott og hitið að suðu. setjið kjötsneiðar
út í þegar suðan er komin upp og látið kjötið sjóða
við hægan hita í 2-2 ½ klst. eða þar til kjötið er orðið
vel laust frá beinunum. fleytið froðuna sem
myndast við byrjun suðunnar ofan af. takið kjötið
upp úr soðinu og setjið á fat eða bakka. sjóðið lauk
svolitla stund í kjötsoðinu eða þar til hann er orðinn
mjúkur. sigtið laukinn frá soðinu. ekki er gott að
sjóða laukinn of lengi, þá er hætt við því að hann
missi bragð. losið kjötið af beinunum og fjarlægið
sinar. setjið kjötið ásamt lauk og pipar í hrærivél og
hrærið vel saman með hnoðaranum eða hræraran-
um. smakkið til með salti og kryddi eftir smekk.
setjið hræruna í form. kælið vel og skerið í hæfilega
bita. pakkið bitunum inn í álpappír og frystið.
Kjötsúpa að hætti Kalla
„Við Íslendingar eigum
svo gott hráefni hvort sem er
til sjávar eða sveita, við eig-
um besta vatn í heimi og svo
eigum við fullar skúffur af
ljúffengum uppskriftum að
hollum, góðum og jafnframt
ódýrum mat,“ segir Karl V.
Matthíasson alþingismaður,
matgæðingur vikunnar.
n 1,8 l vatn
n 1 kg lambasúpukjöt
n 500 g kartöflur
n 500 g gulrófur
n 250 g gulrætur
n 1½ dl hrísgrjón (má einnig setja ½ dl
haframjöl með)
n 100 g hvítkál
n 1½ msk. súpujurtir
n ½ stk. laukur
n salt og pipar eftir smekk.
aðferð:
fyrir þá sem það vilja er gott að fituhreinsa
kjötið að einhverju leyti. kjötið er síðan sett í
pott með vatninu og hitað að suðu. froðan
sem kemur er tekin af. saltið súpuna, setjið
súpujurtirnar, laukinn og hrísgrjónin saman
við og sjóðið í um 40 mín. á meðan eru
gulrófurnar, kartöflurnar og gulrætur
skornar í bita. sett út í og soðið í 15 mín. til
viðbótar. kálið er skorið í mjóar ræmur og
sett út í og soðið í 5 mín. til viðbótar eða þar
til allt grænmetið er meyrt. um leið er
haframjölið sett ef á að nota það. smakkað
og bragðbætt með salti og pipar ef þurfa
þykir. kjötið er ýmist borið fram í súpunni
eða með henni á sérstöku fati.
Það er svo gaman með svona súpu að þú
getur notað ýmislegt annað grænmeti, t.d.
blómkál, sellerí eða grænkál. Þetta er alveg
ekta súpa fyrir haustafurðir, súpukjöt af
nýslátruðu, nýuppteknar kartöflur og rófur.
gerist ekki betra. svo er svo merkilegt með
kjötsúpuna að hún verður betri með hverri
upphituninni, þ.e.a.s. þangað hún verður
mikið verri og þá hættir maður.
í árferði eins og þessu ætti fólk einmitt að
huga að því að setja niður grænmeti í vor,
vera sjálfu sér nægt. í kjötsúpuna er notað
ódýrt og gott hráefni.
Ég skora á Grétar Mar Jónsson alþingismann.
M
atg
æð
ing
ur
inn
uppskrift: sigríður björk bragadóttir
mynd: kristinn magnússon
AllrAhAndA nafn þessa
krydds er að öllum líkindum til kom-
ið vegna bragðsins sem ber keim
margra kryddtegunda án þess þó
að vera blanda úr þeim, samanber
neguls, múskats og kanils. allra-
handa er helst notað í alls kyns kjöt-
rétti, helst karrírétti og kryddlegi, auk
þess sem það er notað í bakstur. Þetta
krydd er ómissandi í rúllupylsu og kæfu.