Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 15
15
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
svo sem að vori og hausti, eða um
lengri eða skemmri tíma. Töluvert er
um skemmdir á gróðri og jarðmynd-
unum á Lakasvæðinu, sérstaklega
á og við göngustíga og vegi (7., 8.
og 9. mynd). Hluti skemmdanna
virðist vera vegna aksturs utan vega
að vetrar- og/eða vorlagi. Gróður,
jarðvegur og berggrunnur svæðisins
er það viðkvæmur að ástæða er til
að banna alla umferð um það utan
sumartíma. Einföld aðgerð eins og að
koma á einstefnu á hringleiðinni við
Laka kæmi í veg fyrir að fólk þyrfti
að aka upp á vegkanta er það mætir
umferð úr gagnstæðri átt. Slíkur
hringakstur gæti jafnframt stuðlað
að betri dreifingu gesta um svæðið.
Hringakstur myndi einnig auka
umferðaröryggi með því að minnka
líkur á árekstrum á blindhæðum og í
blindbeygjum. Hringakstur gæti enn
fremur sparað kostnað við breikkun
eða endurbætur á vegslóðanum
þegar og ef umferð vex á svæðinu.
Þá væru hraðatakmarkanir einföld
leið til að auka öryggi ferðamanna
sem ganga eftir vegslóðanum. Með
uppbyggingu innviða er auðvelt að
hækka þolmörk umhverfis, eins og
framkvæmdirnar sem ráðist var í
sumarið 2007 sýna. Með tilkomu sal-
ernishússins heyrir það nú sögunni
til að salernispappír sjáist á víð og
dreif við Tjarnargíg. Trépallarnir við
Tjarnargíg munu í framtíðinni hlífa
mosanum og hann með tímanum
vaxa að nýju. Þá gera áningarborðin
við bílastæðið það einnig að verkum
að fólk fer síður upp í hlíðar gíg-
anna til að snæða nestið sitt. Við
slíkar framkvæmdir er hins vegar
mikilvægt að gæta þess að ásýnd
svæðisins breytist sem minnst.
Íslendingar eru um fjórðungur
þeirra ferðamanna sem heimsækja
Lakasvæðið og Þjóðverjar og Frakk-
ar eru fjölmennastir erlendra gesta.
Aðrir gestir eru langflestir frá Mið-
og Vestur-Evrópu. Ferðamenn á
Lakasvæðinu eru langflestir á eigin
vegum, ýmist á eigin bíl eða bíla-
leigubíl. Yfir sumarmánuðina eru
daglegar áætlunarferðir á svæðið
6. mynd. Útsýnispallur við Tjarnargíg og gömul sár í mosanum
umhverfis hann. – The viewing platform at Tjarnargígur and old
damage to the moss. Ljósm./Photo: Rögnvaldur Ólafsson.
8. mynd. Skemmdir á lítilli en sérstakri hrauntröð. – Damage to a
small but unusual lava channel. Ljósm./Photo: Rögnvaldur Ólafsson.
9. mynd. Landvörður sýnir hversu mikil skemmd hefur orðið í gíg-
barmi vegna álags af ferðamönnum. – The park ranger indicates how
much has been broken off the edge of a crater by tourist trampling.
Ljósm./Photo: Rögnvaldur Ólafsson.
7. mynd. Ummerki um utanvegaakstur. – Signs of off-road driving.
Ljósm./Photo: Rögnvaldur Ólafsson.