Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 23

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 23
23 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags getur orðið til þess að stofnar líf- vera einangrast, og ef stofnarnir eru smáir getur erfðabreytileiki glatast vegna genaflökts.13 Allmörg þeirra svæða sem eftir eru af hinum fornu birkiskógum landsins eru lítil og strjál.9 Því er mögulegt eða jafnvel líklegt að uppbrot birkiskóganna hafi dregið úr erfðabreytileika birk- isins og ef til vill fleiri tegunda sem bundnar eru við þá. Jarðvegseyðing leiðir ekki aðeins til taps á búsvæðum heldur hefur hún einnig áhrif á margvíslega virkni vistkerfa, svo sem vatnsmiðlun, frjósemi, framleiðni og jafnvel lífs- ferla einstakra tegunda. Jarðvegur á auðnum og rofnum melum einkenn- ist af takmarkaðri vatnsheldni og skorti á plöntunæringarefnum, auk þess sem jarðvegsyfirborðið er óstöðugt vegna frosthreyfinga og rofs.14 Landnám flestra plöntuteg- unda er því takmarkað á slíkum svæðum og vöxtur lítill.15–17 Þetta getur valdið því að melar og auðnir haldist gróðursnauð áratugum18 og hugsanlega öldum saman. Mikilvægir jarðvegseiginleikar, svo sem frjósemi, vatnsheldni og bygging jarðvegs, ráðast að miklu leyti af lífrænum efnum í jarðvegi.19 Íslensk mold, bæði á þurrlendi og í mýrum, er yfirleitt kolefnisrík og getur innihaldið á bilinu 20–100 kg C á m2 en jarðvegur auðna og mela er hins vegar kolefnissnauður, með að meðaltali rétt rúmlega 2 kg C á m2.20 Jarðvegseyðing á Íslandi síðustu þúsund árin hefur leitt til gífurlegs taps á lífrænu kolefni, sem hefur verið metið á bilinu 120–500 milljón tonn.20 Um helmingur þess kolefnis hefur líklega oxast og tapast út í andrúmsloftið.20 Þannig leiðir jarð- vegseyðing ekki aðeins til myndunar eyðimarka og dregur úr líffræðilegri fjölbreytni, heldur hefur hún mikil áhrif á kolefnisbúskap og styrk gróð- urhúsalofttegunda og þ.a.l. á loftslag jarðar. Loftslagið hefur síðan áhrif á ástand landsins og líffræðilega fjöl- breytni21,22 (5. mynd). Þetta sýnir að samningar Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál: um verndun líffræði- legrar fjölbreytni (CBD), varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) og loftslagssamningurinn (UNFCCC), tengjast allir jarðvegi og ástandi vistkerfa. Sjálfbær landnýting og aðgerðir til að varna landhnignun hafa því mikilvægu hlutverki að gegna í umhverfisvernd nútímans. Landgræðsla og líffræðileg fjölbreytni Sem fyrr sagði er landgræðsla sam- heiti yfir margvíslega starfsemi sem miðar að verndun gróður- og jarð- vegsauðlinda og vistheimt. Sjálfbær landnýting er í mörgum tilfellum árangursríkasta leiðin til gróður- og jarðvegsverndar. Uppgræðsla (e. revegetation), þ.e. aðgerðir til að auka gróðurhulu á lítt grónu landi, og aðrar sértækar aðgerðir eru þó oft nauðsynlegar til að stöðva land- hnignun og hefta jarðvegseyðingu.5 Kostnaður við vistheimt eykst eftir því sem hnignunin er meiri23,24 og ekki er mögulegt að endurheimta að fullu tapaðan fjölbreytileika.25 Því eru aðgerðir til að snúa hnignun við mikilvægar til að tryggja komandi kynslóðum aðgang að auðlindum jarðvegs og gróðurs. Eftir því sem 4. mynd. Rofabarðasvæði á Norðausturlandi. Jarðvegseyðing hefur leikið þetta svæði grátt. Ljósm.: Ása L. Aradóttir, 2002. 5. mynd. Landhnignun leiðir til eyðimerkurmyndunar, taps á líffræðilegri fjölbreytni og losunar gróðurhúsalofttegunda og hefur þ.a.l. áhrif á loftslagsbreytingar. Þannig tengist landhnignun öllum helstu umhverfissamningum Sameinuðu þjóðanna: samningnum um líffræðilega fjölbreytni (CBD), rammasamningi um loftslagsbreytingar (UNFCCC) og samningi um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) (byggt á Millennium Ecosystem Assessment, Desertification Synthesis).22
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.