Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 70

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 70
Náttúrufræðingurinn 70 einkum framan af því tímabili. Fyrir árin 1996–2000 eru hins vegar engar upplýsingar um dagsetningar ísalagna, að öðru leyti en þær að vatnið lagði alla þá vetur. Við athugun þessa voru lesnar veður- athugunarbækur á Þingvöllum og síðar Heiðarbæ allt frá 1934. Veður- athugunarmenn lýsa stundum tíð- arfari hvers mánaðar. Stundum er þar minnst á ís á vatninu, en með örfáum undantekningum er ekki getið um dagsetningu eða tímabil ísalagna Þingvallavatns. Ísalögnum seinkar fram eftir vetri af tveimur allólíkum orsökum. Í fyrsta lagi vegna hlýinda og í öðru lagi vegna storma sem brjóta sífellt nýmyndað ísskæni upp. Heimildir eru fyrir því að veturna 1922/23 og 1928/29 hafi Þingvallavatn alls ekki lagt. Árni Snorrason telur að enginn ís hafi verið á vatninu vetur- inn 1956/57.4 Þeir Sigurjón Rist og Guðmann minnast hins vegar ekki einu orði á þann vetur en geta þess sérstaklega að þrjá vetur í röð frá 1958 hafi ísinn staðið við óvenjustutt, eða í einn mánuð. 1. tafla sýnir þekktar dagsetningar ísalagna og ísabrota Þingvallavatns. Nokkrar eyður eru í töflunni, en þrátt fyrir það má segja að reglan hafi verið sú að vatnið leggi oftast í janúar og stundum í febrúar. Yfirleitt er ís á Þingvallavatni í tvo til þrjá mánuði, en stundum aðeins í örfáar vikur. Til undantekninga heyrir að veðrátta sé svo hlý að vetrinum að vatnið nái ekki að leggja. Frá aldamótum hefur orðið greinileg breyting á ísafari Þingvalla- vatns. Veturnir 2002/03 og 2005/06 voru íslausir með öllu. 2003/04 kom ísskæni á vatnið síðast í janúar, en brotnaði upp tveimur vikum síðar. Aftur lagði vatnið nokkrum dögum síðar en aðeins um skamma hríð. Veturinn 2006/07 var ís á vatninu í aðeins fjóra daga eftir miðjan janúar og að hluta lagði það aftur um tíma í febrúar. Veturnir 2001/02 og 2007/08 (5. mynd) geta talist hefðbundnir hvað ísafar á vatninu snertir þó svo að í bæði skiptin hafi vatnið ekki lagt fyrr en komið var fram í febrúar. Flestir veturnir á árunum 1988– 1995 voru skakviðrasamir og storm- ar tíðir. Hitafarið var aftur á móti í stórum dráttum ekki fjarri því sem það er til jafnaðar (sjá t.d. 9. mynd). Ástæða þess að vatnið lagði seint marga þessa vetur var ekki sú að vatnið væri orðið nægjanlega kalt heldur hamlaði vindánauð og öldugangur sífellt ísmyndun. Veturinn 1990/91 lægði um stund með frosti 11. og 12. janúar og þá var þunnt ísskæni sagt vera á vatninu.5 Í kjölfarið hvessti og ísinn 1. tafla. Ísalagnir og ísabrot á Þingvallavatni. Gögn allt til 1986 eru frá Sigurjóni Rist og Guðmanni Ólafssyni.2 Frá 1987 til 1993 eru ísupplýsingar komnar frá Sigurjóni3 að hluta og eins úr dagbókum Steingrímsstöðvar. Frá aldamótum hefur Hörður Guðmannsson skráð upplýsingar um ísafar á vatninu, en skráningarbækur áranna þar á undan töpuðust þegar bærinn á Skálabrekku brann árið 2000. Þó er vitað að Þingvallavatn lagði öll þessi ár. Dag- setningar og athugasemdir á árunum 1993–2000 eru að mestu byggðar á skráningum Árna B. Stefánssonar í viðburða- og gestabók sumarhúss í Hestvík. – Observed data of ice forma- tion and ice melting on Lake Þingvallavatn. No ice was formed 2002/3 and 2005/6. Vetur Ísalagnir Ísabrot Athugasemdir 1951/52 10. jan. 28. apríl 1952/53 1953/54 1954/55 15. jan. 13. apríl 1955/56 20. jan. 24. apríl 1956/57 Óljósar heimildir um ísleysi 1957/58 5. jan. 16. apríl 1958/59 15. jan. 15. feb. 1959/60 15. feb. 15. mars 1960/61 ….. ….. 1973/74 1974/75 22. des 19. mars 1975/76 13. jan. 12. mars 1976/77 18. jan. 12. apríl 1977/78 2. jan. 15. april 1978/79 3. jan. 15. maí 1979/80 2. jan. 13. mars 1980/81 2. jan. 3. maí 1981/82 13. des. 18. apríl 1982/83 19. jan. 11. maí 1983/84 13. jan. 26. apríl 1984/85 23. jan. 8. mars 1985/86 19. jan. 23. apríl 1986/87 12. feb. 3. maí Dags. ísabrota ekki nákvæm 1987/88 20. jan. 8. maí Dags. ísabrota ekki nákvæm 1988/89 16. feb. 13. maí Dags. ísabrota ekki nákvæm 1989/90 20. feb. 12. maí Dags. ísabrota ekki nákvæm 1990/91 12. jan. Ís í örfáa daga, varla mannheldur 1991/92 13. mars Ís á hluta vatnsins í jan. og feb. 1992/93 6. jan. 1993/94 22. des. Enn ís 20. mars 1994/95 Vita a vatni var ísilagt ann 28. feb. 1995/96 21. des. 1996/97 7. jan. 13. apríl Vatni hálflagt e a ótraustur ís frá byrjun feb. 1997/98 17. jan. 1998/99 8. jan. 1999/00 6. apríl 2000/01 27. des. 2001/02 5. feb. 20. apríl Rek á ísnum og miklar vakir 2002/03 Vatni íslaust 2003/04 31. jan. 16. feb. Aftur ís 23. feb.–2. mars 2004/05 7. jan. 10. feb. 2005/06 Vatni íslaust 2006/07 22. jan 26. jan. Ís í fjóra daga. Aftur ís 6.–17. feb 2007/08 3. feb. 22. apríl

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.