Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 79

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 79
79 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags m.a. hvort bíða skyldi eftir opin- berum úrskurði um hver væri eigandi Surtseyjar eða hvort Nátt- úruverndarráð ætti að friðlýsa eyna sem fyrst og fá síðan úrskurð um eignarréttinn. Ráðsmenn töldu seinni leiðina vænlegri til að fá úrskurð um eignarréttinn, og þar að auki væri málið það áríðandi að ráðinu bæri að afgreiða það sem fyrst, semja um það greinargerð og senda menntamálaráðuneytinu til staðfestingar. Loks urðu stuttar umræður um hvort ætti heldur að friðlýsa Surtsey skv. D-lið 1. gr. laga nr. 48/1956 um náttúruvernd, þ.e. sem þjóðvang, eða skv. C-lið 1. gr. sömu laga, þ.e. sem friðland. Að þeim loknum var friðlýsing Surtseyjar sem friðlands samþykkt samhljóða og ritara falið að senda hana sem fyrst til ráðu- neytisins, sem þurfti samkvæmt 3. mgr. 12. gr. sömu laga að staðfesta hana áður en hún kæmi til fram- kvæmda. Einnig var ákveðið að fela Surtseyjarnefnd umsjón með eynni. Menntamálaráðuneytið staðfesti tillögu ráðsins óbreytta og tók hún gildi með birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaði 19. maí 1965 og hljóðaði þannig: „Náttúruverndarráð gerir kunnugt: samkvæmt heimild í C-lið 1. gr. og 3. mgr. 12. gr. laga nr. 48/1956, um náttúruvernd, hefur náttúruverndarráð ákveð- ið að lýsa Surtsey sem friðland. Friðlýsing Surtseyjar er eink- um gerð í þeim tilgangi að tryggja, að landnám lífs á eynni og framvinda þess á komandi árum verði með sem eðlilegust- um hætti og sem minnstum truflunum af manna völdum, en þetta er mjög mikilvægt frá vísindalegu sjónarmiði. Þess vegna er hér með bannað að ganga á land í Surtsey, nema með leyfi Surtseyjarnefndar, en þar sem sú nefnd hefur umsjón með öllum vísindarannsóknum í Surtsey, hefur náttúruverndar- ráð ákveðið að fela henni umsjón með eynni. Bannað er að raska við nokkru á eynni og að flytja þangað lif- andi dýr, plöntur, fræ eða plöntuhluta, einnig er bannað að skilja þar eftir hvers konar úrgang. Þeim, sem kunna að fá leyfi til landgöngu á eynni, er skylt að fara í einu og öllu eftir þeim reglum, sem náttúruverndarráð mun í samráði við Surtseyjar- nefnd setja um umgengni í eynni. Þeir, sem brotlegir gerast við ákvæði þessa úrskurðar, verða látnir sæta ábyrgð samkvæmt 33. gr. laga nr. 48/1956 um náttúruvernd.“ Náttúruverndarlögum breytt Árið 1972 tóku gildi ný náttúru- verndarlög, lög nr. 47/1971 um náttúruvernd, en þótt margt breytt- ist með nýju lögunum, m.a. ákvæði um skipan náttúruverndarráðs og að halda skyldi náttúruverndarþing þriðja hvert ár, þá breyttist afstaða ráðsins til Surtseyjar og friðlýsing- ar hennar ekkert. Á næstu árum endurskoðaði ráðið ýmsar eldri friðlýsingar, þar á meðal friðlýs- ingu Surtseyjar, og ný friðlýsing tók gildi 3. apríl 1974 og birtist hún í Stjórnartíðindum B, nr. 122/1974 (4. mynd). Þótt reglur um friðlandið séu þar í annarri röð en áður og orðalag sums staðar lítillega breytt er þessi endurskoðaða friðlýsing að öllu leyti efnislega samhljóða eldri friðlýsingunni, nema hvað bætt er við reglurnar um friðlandið ákvæði um að skot séu bönnuð nær eynni en 2 km. Ýmsar breytingar urðu svo á náttúruverndarmálum næstu árin; m.a. var sett á laggirnar umhverf- isráðuneyti árið 1990 og fluttust öll náttúruverndarmál þangað frá menntamálaráðuneytinu. Ný nátt- úruverndarlög (nr. 44/1999) tóku gildi 1. júlí 1999. Með þeim varð sú breyting að umhverfisráðherra friðlýsir svæði (auglýsir friðlýsingu svæða) að tillögu Umhverfisstofn- unar (áður Náttúruverndar ríkisins; þar áður Náttúruverndarráðs) og Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ef um er að ræða náttúrumyndanir í hafi þarf samþykki sjávarútvegs- ráðherra (sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra) og álit Hafrann- sóknastofnunarinnar. Með lögum nr. 90/2002, sem tóku gildi 1. janúar 2003, varð Umhverfisstofnun til, sem m.a. sér um náttúruverndarmál. 4. mynd. Kortið sýnir stærð friðlands eins og það var þegar Náttúruverndarráð birti aug- lýsingu í Stjórnartíðindum (Sérprent nr. 213) árið 1974 um friðlýsingu Surtseyjar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.