Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 82

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 82
Náttúrufræðingurinn 82 um náttúru og umhverfismál mikilvæga. Þess vegna stóð Nátt- úrustofan meðal annars fyrir stofnun Umhverfishóps Stykkishólms, hefur fengið skólabörn í heimsókn og leitast við að bjóða upp á fræðslu- erindi starfsmanna eða gestafyrir- lesara fyrir almenning að minnsta kosti mánaðarlega yfir vetrartím- ann. Aðsókn hefur yfirleitt verið mjög góð og bæjarbúar og nær- sveitungar kunnað vel að meta. Þá hefur Náttúrustofan komið að gerð fræðsluskilta og -bæklinga. Meðal annarra verkefna eru seta í Breiðafjarðarnefnd, sem er umhverfisráðherra til ráðgjafar um verndarsvæði Breiðafjarðar (www. breidafjordur.is), auk þess sem starfsmaður Náttúrustofunnar sinnir daglegum rekstri nefndarinnar í hlutastarfi. Þá hefur Náttúrustofan átt fulltrúa í Framkvæmdaráði Snæ- fellsness frá upphafi en það hefur unnið að því að afla Snæfellsnesi Green Globe-umhverfisvottunar og viðhalda henni (www.nesvottun.is). Árið 2001 var fyrsti starfsmaður auk forstöðumanns ráðinn í hluta- starf. Frá árinu 2004 hafa fastir starfsmenn lengst af verið fjórir en heildarfjöldi starfsmanna á hverjum 3. mynd. Arnarungar í breiðfirsku hreiðri. Arnarrannsóknir eru unnar í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands o.fl. Ljósm.: Róbert A. Stefánsson. tíma mest farið í 10 haustið 2006. Ársstörf voru flest um 5,6 árið 2006. Nú eru fastráðnir starfsmenn fjórir talsins en þar fyrir utan er einn nemi og þrír verkefnaráðnir starfsmenn. Róbert A. Stefánsson, forstöðu- maður, er líffræðingur. Hann lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2000 og voru ferðir, landnotkun og fæðuval minks viðfangsefni rannsóknar hans. Síðan hefur hann haldið minkarannsóknum áfram og rannsakar nú til doktorsprófs stofngerð minksins og þá þætti sem áhrif hafa á minkastofninn. Þar fyrir utan hefur hann tekið þátt í fuglarannsóknum Náttúrustofunnar, setið í Breiðafjarðarnefnd og er nú- verandi formaður áðurnefnds Fram- kvæmdaráðs Snæfellsness. Menja von Schmalensee, sviðsstjóri, er líf- fræðingur. Hún rannsakar atferli og landnotkun minks til doktorsprófs en hefur að auki tekið virkan þátt í vinnu að umhverfismálum og fræðslu. Einnig sér hún um graf- íska vinnu fyrir Náttúrustofuna, þar með talið kortagerð. Sigríður Elísa- bet Elísdóttir er ritari Náttúrustof- unnar og sér um bókhald, rekstur Breiðafjarðarnefndar, gagnainnslátt og fjölmörg önnur skrifstofustörf. Þórunn Sigþórsdóttir er umhverf- isfulltrúi sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi og vinnur að fram- förum í umhverfismálum þeirra. Hún heldur utan um daglegan rekstur Green Globe-verkefnisins á Snæfellsnesi. Rannveig Magnús- dóttir vinnur að rannsóknum til doktorsprófs á fæðuvistfræði minks og mögulegum breytingum á fæðu- vali í kjölfar umhverfisbreytinga. Símon Sturluson, Guðmundur G. Símonarson og Guðmundur Hall- grímsson eru verkefnaráðnir við rannsóknir á minkum, refum og glókollum. Auk framantalinna samstarfs- aðila er Náttúrustofan í góðu samstarfi við aðrar náttúrustofur í gegnum Samtök náttúrustofa (SNS), Náttúrufræðistofnun Íslands og fjölmarga aðra aðila. Frekari upplýsingar um starfsemi Náttúrustofu Vesturlands má finna á heimasíðu hennar, www.nsv.is. 4. mynd. Almenningsfræðsla er mikilvæg. Úr fuglaskoðunarferð Náttúrustofunnar um Snæfellsnes. Ljósm.: Róbert A. Stefánsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.