Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 33
113
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Vegna þröngs tímaramma verkefn-
isins var ekki unnt að skilgreina
ferðasvæði á öllu landinu og meta
þau, þó svo að slíkt hefði gefið bestu
og réttustu niðurstöðuna. Þess í stað
var látið nægja að skoða einungis
þau svæði sem verða fyrir greinileg-
ustu áhrifunum. Einstök svæði, eins
og t.d. Geysir og Gullfoss, líða
töluvert fyrir þessa nálgun og hefðu
fengið hærri einkunn ef ekki hefði
þurft að nota hana. Auk Gullfoss og
Geysis nær t.d. Gullni hringurinn
yfir Þingvelli, Laugarvatn, Skálholt
og Reykjavík en þau svæði voru
ekki metin. Við matið er byggt á
lýsingum á virkjunarhugmyndum
að svo miklu leyti sem þær liggja
fyrir. Þar skortir þó oft talsvert á, t.d.
hvað varðar útlit og nákvæma stað-
setningu vega, raflína og annarra
mannvirkja.
Áhrif virkjana á viðföng
Til að meta áhrif virkjana á ferða-
svæðin er notuð sama aðferð og
í virðismatinu nema nú er hvert
viðfang metið eins og ef búið væri
að virkja og heildareinkunn svæðis-
ins með virkjun fundin. Áhrif ein-
stakra framkvæmda eru frá því að
vera nær engin og í að vera mjög
neikvæð. Einkunn fyrir sum viðföng
breytist frá því sem var án virkjunar,
en ekki fyrir önnur. Dæmi: Svæðið
Torfajökull fékk 10 í einkunn fyrir
viðfangið víðerni – náttúrulegt – mann-
gert umhverfi. Við virkjun fer virði
viðfangsins í 1. Mismunurinn á virði
svæða fyrir og eftir framkvæmdir
gefur til kynna hversu miklar afleið-
ingarnar yrðu. Afleiðingarnar eru að
jafnaði mestar á þeim ferðasvæðum
sem framkvæmdirnar myndu hafa
bein áhrif á, en mun minni á öðr-
um áhrifasvæðum virkjunarinnar.
Álftavatn er aðliggjandi svæði við
Torfajökul og lækkar viðfangið víð-
erni – náttúrulegt – manngert umhverfi
líka þar, en minna, eða úr 10 í 3.
Hópurinn gengur út frá þeirri for-
sendu að framkvæmdir á ósnortnu
svæði séu alvarlegri röskun en á
svæðum sem þegar hefur verið
byggt á eða hafa þegar verið nýtt
á annan hátt. Dæmi: Ferðasvæðið
Þórisvatn er þegar raskað og fékk
3 í einkunn fyrir viðfangið víðerni
– náttúrulegt – manngert umhverfi
en ef Skrokkölduvirkjun risi færi
virði viðfangsins í 1, þ.e. þarna
verður hlutfallslega minni skerðing
á einkunn en á Torfajökli þar sem
nær engin mannvirki eru fyrir og
svæðið mundi því breytast úr nær
ósnortnu svæði í svæði þar sem
áhrifa af virkjun gætir.
Um önnur viðföng gildir svipað.
Ef framkvæmdin er talin raska heild-
stæðu eða einstæðu svæði eða raska
landslagi var einkunn viðkomandi
viðfangs lækkuð. Það sama var gert
við önnur viðföng í flokknum eðlis-
rænir eiginleikar og við viðföngin
fegurð og stórbrotið. Ef virkjun er
inni á friðlýstu svæði fer virðið fyrir
viðfangið í 0 eftir virkjun en ef
virkjunin er ekki á friðlýsta svæðinu
sjálfu heldur einungis á ferðasvæð-
inu fer hún niður um einn flokk.
Viðfangið þolmörk ferðamanna getur
hækkað ef ferðamönnum fækkar
verulega, en ef þeim fjölgar og ef
umhverfið fer að láta verulega á sjá
þá lækkar það. Ef framkvæmdir eru
taldar hafa áhrif á ímynd svæðisins
lækkar sú einkunn einnig.
Afleiðingar fyrir afþreyingar-
möguleika eru metnar á sama hátt.
Gönguferðir liggja oft gegnum mörg
ferðasvæði og áhrif virkjana á slíkar
gönguferðir koma fram í því að
einkunn fyrir viðfangið lækkar, bæði
á framkvæmdasvæði virkjunarinnar
og á öðrum þeim ferðasvæðum sem
gönguleiðin nær til. Sama á við um
hestaferðir, hjólaferðir og jeppaferðir.
Einkunn fyrir bíltúr á fólksbíl hækkar
ef fyrirsjáanlegt er að fólksbílafær
vegur fylgi framkvæmdunum, en
á móti rýrast oft jeppaleiðir. Ekki er
gert ráð fyrir að virkjunum fylgi
breytingar á öðrum innviðum fyrir
ferðamenn og einkunn þeirra helst
því óbreytt. Ef framkvæmdir leiða
til bætts aðgengis og eyðileggja
ekki helsta aðdráttarafl svæðisins
er reiknað með að ferðamönnum
muni fjölga, en ef aðgengi er óbreytt
og/eða aðdráttaraflið eyðileggst, er
ekki reiknað með að þeim fjölgi og
jafnvel að þeim fækki á sumum
stöðum. Á svæðum sem ferðaþjón-
ustan nýtir mikið og búast má við að
framkvæmdir spilli umhverfinu er
einkunn fyrir ferðaþjónustu lækkuð.
Framkvæmdir hafa ekki áhrif á
6. mynd. Raflínur sjást oft víða að. – Electrical power lines are often very visible. Ljósm./Photo: Rögnvaldur Ólafsson.
80 3-4#Loka_061210.indd 113 12/6/10 7:22:15 AM