Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 85
165
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
óviðbúin komu bjarndýrs og af öryggisástæðum var
sú ákvörðun tekin að fella dýrið áður en menn misstu
sjónar á því til sjávar eða í þoku til fjalla. Aðgerðirnar
urðu strax mjög umdeildar og sitt sýndist hverjum. Þar
bar hæst sjónarmið um að tryggja bæri öryggi manna
annars vegar og hins vegar ómannúðlegt dráp á teg-
und sem ætti undir högg að sækja í náttúrunni og nær
hefði verið að bjarga dýrinu og koma til sinna réttu
heimkynna. Í kjölfar atburðanna ákváðu stjórnvöld
að útbúa viðbragðsáætlun sem stuðst yrði við þegar
hvítabirnir kæmu á land í framtíðinni. Þegar seinna
dýrið gekk á land rétt um tveimur vikum síðar var slík
vinna ekki hafin. Samt sem áður var nú allt kapp lagt á
að læra af fyrri reynslu og ákveðið að reyna til þrautar
að fanga dýrið lifandi. Leitað var til danskra sérfræð-
inga og sérhannað búr flutt með hasti norður á Skaga.
Í tilraun til að nálgast dýrið og koma í það deyfilyfi
tókst þó ekki betur til en svo að dýrið fældist og tók
á rás til sjávar. Því fóru leikar svo, þrátt fyrir viðleitni
til björgunar, að ákvörðun var tekin um að fella dýrið
áður en það næði til sjávar.
Athuganir á bjarndýrunum leiddu síðar í ljós að
fyrra dýrið var 22 ára karldýr og seinna dýrið 12–13 ára
birna. Bæði dýrin voru illa haldin og máttfarin.
Surtsey á heimsminjaskrá UNESCO
Merkum áfanga í sögu Surtseyjar var náð í júlí, þegar
heimsminjanefnd UNESCO skráði eyna sem einstakan
stað náttúruminja. Grundvöllur skráningarinnar er að
Surtsey hefur verið verndað friðland frá því hún mynd-
aðist í eldgosi á árunum 1963–1967. Auk þess hafa
landnám og framvinda lífríkis og jarðfræðileg þróun
eyjarinnar verið vöktuð og rannsökuð frá upphafi.
Í árlegum rannsóknaleiðangri til Surtseyjar, sem
farinn var í júlí, bar það helst til tíðinda að hrafn hafði
verpt í eynni og komið upp þremur ungum. Hrafninn
er því fjórtánda fuglategundin og fimmti landfuglinn
sem verpir í Surtsey og trónir þar efst í fæðukeðjunni.
Annar athyglisverður landnemi var mýrakönguló
(Pardosa sphagnicola) en nokkur fullvaxin dýr fundust
í máfavarpinu. Ekki er ljóst hvernig tegundin hefur
getað borist til Surtseyjar. Athygli vakti að sveifflugur
(Syrphidae) höfðu borist til eyjarinnar frá meginlandi
Evrópu í umtalsverðum mæli.
Andarnefja - séð frá litlu kajakbryggjunni við Nökkvahúsið á Akureyri. Ljósm.: Anna Gunnarsdóttir, 22.09.08.
Mýrakönguló. Ljósm.: Erling Ólafsson.
80 3-4#Loka_061210.indd 165 12/6/10 7:22:48 AM