Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 8
5
Þar sem sókn hefur verið aflögð vegna sameiningar við aðra sókn
eða sóknir eða vegna þess , að hún eyðist af fólki, er heimilt að
gera kirkjuna að greftrunarkirkju.
II. KAFLI.
Um sóknarfólk.
7. gr.
Sóknarfólk eru allir skírðir Islendingar, sem hafa ekki formlega
sagt sig úr þjóðkirkjunni eða eru í öðrum trúfélögum.
Fólk nýtur réttinda og ber skyldur sem sóknarfólk, þar sem það átti
lögheimili næstliðinn 1. desember.
8- gr.
Sóknarfólk á rétt á kirkjulegri þjónustu £ sókn sinni, þátttöku í
guðsþjónustum og almennu safnaðarstarfi og hefur kosningarrétt og
kjörgengi á aðalsafnaðarfundi, þegar það hefur náð lögaldri.
Sóknarfólki er jafnframt skylt að hlíta samþykktum aðalsafnaðarfimda
og þeim skyldum öðrum, sem eru eða á verða lagðar með lögum.
9. gr
Sóknarfólk á rétt á guðsþjónustum í sóknum sínum, er skal að jafnaði
miða við eftirfarandi:
a. í sókn með 600 manns eða fleiri skal vera alkirkja með almennri
guðsþjónustu hvern helgan dag.
b. í sókn með 300 til 600 manns skal vera hálfkirkja með almennri
guðsþjónustu annan hvern helgan dag.
c. í sókn með 100 til 300 manns skal vera fjórðungskirkja með al-
mennri guðsþjónustu fjórða hvern helgan dag.
d. í sókn með færri en 100 manns skal vera áttungskirkja með almennri
guðsþjónustu áttunda hvern helgan dag.
Þjónusturéttur vegna fjölgunar eða fækkunar sóknarfólks skal endur-
skoðaður eigi sjaldnar en 10. hvert ár.
10• gr-
Sóknarfólk á rétt til kirkjulegrar sérþjónustu í sóknum sínum:
a. við barna- og æskulýðsstarf.
b. við fermingarfræðslu.
c. við sóknarfólk með sérþarfir, sem býr eða dvelur £ sókninni.
Þar er átt við alla þá, sem ekki geta notið kirkjulegrar þjónustu
á eðlilegan hátt vegna vinnu, dvalar fjarri heimili eða á stofn-
unum vegna sjúkleika.
III. KAFLI.
Um safnaðarfundi.
11. gr.
Aðalsafnaðarfundur skal haldinn einu sinni á ári. Hann er vettvangur
starfsskila og þar skulu rædd málefni sóknarinnar. Hann fer með
æðsta vald í málum sóknar og sóknarfólks, sem undir hann heyra sam-
kvæmt lögum þessum. Greini meirihluta sóknarnefndar á við samþykktir
aðalsafnaðarfundar, getur hann leitað úrskurðar héraðsfundar.
Aðra safnaðarfundi skal halda, ef meiri hluti sóknarnefndar fer fram
á það eða 1/4 hluti sóknarfólks.
12. gr.
Sóknamefnd boðar safnaðarfundi með minnst þriggja daga fyrirvara
á sama hátt og tíðkanlegt er um auglýsingar á guðsþýónustiam í sókn-
inni. Fundarefni skal kynnt, um leið og fundur er boðaður. Fundur
er lögmætur, ef rétt er til hans boðað, og ræður afl atkvæða úrslitum
mála.