Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 44
41
4. gr.
Þjóðkirkjan starfrækir tónskóla, sem söngmálastjóri veitir
forstöðu. Skal skólinn vera búinn nauðsynlegum hljóðfærum,
svo sem pfpuorgeli og píanói til kennslu og æfinga.
Hlutverk tónskólans er að veita verðandi kirkjuorganistum
menntun í orgelleik, söngstjórn, raddþjálfun, lítúrgíu, tón-
fræði, hljómfræði, tónheyrn og öðru því, er að kirkjutónlist
lýtur.
Skólanefnd skipa 3 menn: Starfandi prestur tilnefndur af
biskupi Islands, kennari í messusöng við Háskóla Islands
og maður tilnefndur af kirkjumálaráðherra.
Nánari ákvæði um hlutverk skólans og starfrækslu skulu
sett í reglugjörð.
Kostnaður við stofnbúnað og rekstur tónskólans greiðist
úr ríkissjóði.
5 . gr.
Þeir sem æskja inngöngu í Tónskóla þjóðkirkjunnar, skulu
hafa hæfileika til tónlistarnáms. Þeir skulu hafa meðmæli
sóknarprests síns.
6 . gr.
Lokapróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar veitir réttindi til
organistastarfa og tónlistarkennslu.
Nemendur tónskólans öðlast að öðru leyti ráttindi I sam-
ræmi við þá áfanga (námsstig), sem þeir ljúka í náminu
samkvæmt nánari ákvæðum I reglugjörð.
7. gr.
Störf organista skulu tengd tónlistarkennslu, þar sem
því verður við komið.